Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 mánaða.
Ótrúlegar sviptingar á lista stærstu mjólkurvinnslufyrirtækjanna
Á faglegum nótum 10. október 2023

Ótrúlegar sviptingar á lista stærstu mjólkurvinnslufyrirtækjanna

Höfundur: Snorri Sigurðsson

Hollenski landbúnaðarbankinn Rabobank tekur saman reglulega margvíslegan fróðleik um þróun landbúnaðarins í heiminum og m.a. gefur út árlegt yfirlit yfir stöðu stærstu mjólkurvinnslufyrirtækja heims.

Undanfarin ár hafa ekki beint orðið miklar breytingar á listanum og væri nær lagi að tala um hliðrun á stöðu fyrirtækja, þar sem sum hafa haft sætaskipti á milli ára. Nú ber aftur á móti svo við að töluvert miklar breytingar hafa orðið á listanum, þegar staða þessara fyrirtækja árið 2021 er borin saman við árið 2022.

Mikil veltuaukning

Heildarvelta 20 stærstu fyrirtækjanna í heiminum, sem vinna úr mjólk, jókst um 7,3% árið 2022 miðað við fyrra ár, þegar veltan er reiknuð í bandaríkjadollurum en sé miðað við uppgjör í evrum jókst velta þessara sömu fyrirtækja um heil 21%. Skýringin felst auðvitað í sterkari bandaríkjadollar miðað við evru en önnur skýring á aukinni veltu almennt séð felst fyrst og fremst í hækkuðu verði afurða á markaði þegar flest þessara fyrirtækja hækkuðu verð til að mæta hærri verðbólgu. Athygli vekur að óvenju hátt hlutfall fyrirtækja settu veltumet árið 2022 og varð hálfgerð uppstokkun á heimsmarkaðinum þegar horft er til afurðafyrirtækja, þ.e. stöðu þeirra miðað við heildarveltu.

Einungis fimm fyrirtæki héldu röð sinni á listanum og það er harla óvenjulegt enda um gríðarlega stór fyrirtæki að ræða.

Þau 10 stærstu

Lactalis Franski risinn heldur áfram að stækka og ber orðið höfuð og herðar yfir önnur fyrirtæki á þessum markaði með heildarveltu upp á 3.903 milljarða íslenskra króna! Vöxtur fyrirtækisins skýrist m.a. af uppkaupum og samruna annarra fyrirtækja við Lactalis á árinu en einnig af aukinni sölu og hærra afurðaverðs. Af þekktum fyrirtækjum sem Lactalis keypti upp árið 2022 má nefna Jalna Dairy Foods frá Ástralíu, ferskvörudeild hins þýska BMI og franska fyrirtækið Verdannet, sem er sérhæft í ostagerð.

Þá hafa fregnir borist af því að Lactalis sé að reyna að kaupa núna brasilíska fyrirtækið DPA, sem er í dag í eigu Nestlé og Fonterra en bæði eiga í ákveðnum vanda þessi misserin og eru að leita að leiðum út úr vanda sínum.

Dairy farmers of America Bandaríska samvinnufélag þarlendra bænda gerði einstaklega vel árið 2022 og setti nýtt veltumet og skaust þar með upp fyrir bæði Danone og Nestlé! Einstakur árangur þessa merka félags sem náði árangrinum án þess að kaupa upp önnur fyrirtæki eða félög. Veltuaukninguna má því fyrst og fremst rekja til hærra afurðaverðs og aukinnar sölu.

Nestlé Í áraraðir var Nestlé ósnertanlegt í efsta sæti þessa lista Rabobank en nú er öldin önnur og hefur það nú fallið niður í það þriðja. Fyrirtækið hefur á undanförnum árum verið að draga saman seglin á þessum markaði og selja frá sér eignir og framleiðslueiningar.

Nú hefur þó verið gefin út spá um að veltuaukning sé fram undan á árinu 2023, en óvíst er hvaðan sú aukning muni koma.

Danone Franska fyrirtækið Danone fellur niður um sæti á listanum en ekki vegna þess að illa gekk heldur vegna þess að DFA stökk upp í annað sætið. Fyrirtækið er umsvifamikið á heimsmarkaðinum og árið 2022 gekk það frá kaupum á vörumerkinu Dumex í Kína, en það var áður í sameiginlegri eigu Danone og Mengniu. Dumex er eitt þekktasta vörumerkið innan mjólkurdufts fyrir börn. Fyrirtækið var einnig á árinu í hagræðingaraðgerðum sem skiluðu góðum árangri en hvort það sé nóg fyrir afkomuna árið 2023 skal ósagt látið en um mitt þetta ár tóku rússnesk yfirvöld Danone í Rússlandi eignarnámi.

Þessi armur fyrirtækisins var sá fimmti stærsti innan Danone svo líklegt er að um mikið högg sé að ræða fyrir fyrirtækið.

Yili Kínverska fyrirtækið Yili gekk ágætlega á heimamarkaði árið 2022 og jók söluna um rúm 5% en vegna falls hins kínverska yuan gagnvart bandaríkjadollar mælist vöxturinn ekki nema um 0,8% frá árinu 2021. Yili hélt áfram á árinu 2022 að styrkja stöðu sína í Asíu með því að kaupa upp fyrirtæki í mjólkurvinnslu í álmunni. Það sem er þó áhugaverðast við þessi uppkaup er að fyrirtækið gerir það einungis til að styrkja stöðu sína á kínverska markaðinum, þ.e. kaupir upp fyrirtæki utan landsins steina og flytur svo framleiðsluvörur þess heim til Kína.

Þess má geta að fyrirtækið, rétt eins og Mengniu, er að hluta til í opinberri eigu kínverskra yfirvalda.

Arla Foods Hástökkvari listans að þessu sinni er samvinnufélagið Arla Foods, sem er með höfuðstöðvar sínar í Danmörku. Félagið jók veltuna um rúm 23% árið 2022 og stökk upp um 3 sæti frá árinu 2021. Skýringin á aukningunni fólst fyrst og fremst í sterkri stöðu félagsins á hinum evrópska markaði og sterkum vörumerkjum sem neytendur hafa haldið tryggð við þrátt fyrir hækkandi verð. Þetta eru merki eins og Lurpak, Castello, Puck og Starbucks, en Arla foods er með einkarétt á framleiðslu og sölu margs konar kaffidrykkja í dósum, sem merkt eru hinni þekktu Starbucks kaffihúsakeðju.

FrieslandCampina Hið hollenska samvinnufélag hafði sætaskipti við Arla Foods að þessu sinni en félögin tvö hafa att kappi hvort við annað í fjöldamörg ár enda svipuð að stærð og uppbyggingu. Fyrirtækin bera sig títt saman hvort við annað, þegar horft er til afurðastöðvaverðs og almennrar uppbyggingar. FrieslandCampina lenti í kröppum dansi á sumum mörkuðum sínum og hefur upplifað samdrátt í innvigtun mjólkur frá hollenskum kúabændum sem margir þurfa að draga úr framleiðslu sinni vegna sértækra umhverfiskrafna þarlendra yfirvalda.

Til að mæta þessu var stjórn félagsins snögg að bregðast við og seldi frá sér einingar og lokaði vinnslustöðvum og skilaði það sér í því að félagið náði að auka veltu sína þrátt fyrir breytt starfsumhverfi!

Mengniu Mengniu, sem er kínverskt, fellur á listanum mest vegna gengis- þróunar á yuan en hélt áfram að vaxa vel á kínverska markaðinum. Alls jukust umsvif Mengniu um rúm 10% árið 2022 en fyrirtækið hefur nú hafið innreið sína inn á osta- og smjörmarkaðinn í Kína, en hingað til hafa kínversku afurðafyrirtækin látið þann markað eiga sig. Hægt og rólega hefur byggst upp stór markaður fyrir þessar vörur, byggt upp af innflutningsfyrirtækjum, og núna er markaðurinn nógu stór til þess að Mengniu hefur innreið á hann.

Þá heldur Mengniu áfram að vaxa á kínverska ísmarkaðinum, sem enn er í mikilli sókn.

Fonterra Þessi fyrrum risi á afurðamarkaðinum, hið nýsjálenska samvinnufélag þarlendra kúabænda, hefur átt betri ár og miðað við hin fyrirtækin féll það á listanum um þrjú sæti og heldur þar með áfram að gefa eftir enn eitt árið. Er nú í níunda sæti. Fáir hefðu líklega trúað þessu fyrir örfáum árum síðan!

Fonterra veðjaði á sínum tíma heldur hraustlega á kínverska markaðinn og þegar þarlendir bændur náðu vopnum sínum og framleiðslan þar jókst ár frá ári lentu þau fyrirtæki sem voru stórtæk í innflutningi í ákveðnum vanda.

Sum voru betur sett en önnur eins og gefur að skilja en Fonterra, sem seldi mikið af afurðum sínum sem hráefni fyrir önnur fyrirtæki, fékk skell sem enn er verið að vinna úr.

Saputo Í tíunda sæti listans er kandadíska fyrirtækið Saputo. Fyrirtækið er bara eitt þriggja á topp 10 listanum sem hefur ekki sætaskipti við annað fyrirtæki á milli ára. Saputo, sem hefur verið í miklum uppkaupum á öðrum fyrirtækjum undanfarin ár, notaði árið í að bæta reksturinn og nýta fjölbreytt eignasafn sitt til aukinnar sérhæfingar. Af þeim sökum hélt Saputo mikið til sjó á milli ára.

Flest með vörur úr plöntuafurðum

Athygli vekur að svo til öll afurðafyrirtækin 20 eru með framleiðslu á vörum úr plöntuafurðum, þ.e. með vörulínur sem eru fyrir neytendur sem ekki neyta mjólkurvara.

Enn sem komið er, segir í skýrslu Rabobank, er hlutfall þessara vara þó óverulegt og áhrif á heildarveltu fyrirtækjanna af sölu, á vörum unnum úr plöntum, lítil.

Spá verri afkomu 2023

Skýrsluhöfundar Rabobank telja að árið 2023 verði mun erfiðara fyrir mörg afurðafyrirtæki en árið 2022, þegar horft er til hagnaðarvonar. 

Felist það í því að afurðastöðvaverð hafi haldist hátt allt til þessa en verð afurðanna hafi verið undir pressu og hafi það sett arðsemina í ákveðinn vanda.

Ólíklegt megi því telja að jafn miklar framfarir í veltu og umsvifum fyrirtækjanna verið árið 2023 eins og varð árið 2022.

Heimild: Rabobank, 2023. Global Dairy Top 20.

„Spjallað“ við kýr
Á faglegum nótum 9. janúar 2023

„Spjallað“ við kýr

Atferli, hegðun, útlit og ástand nautgripa getur gefið gríðarlega mikilvægar upp...

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands

Á aðalfundi Landssambands skógareigenda (LSE) sem haldinn var í Borgarnesi í maí...

Lífræn framleiðsla – nú er lag
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Lífræn framleiðsla – nú er lag

Á undanförnum árum hefur VOR látið til sín taka með ýmsum hætti til að hvetja ti...

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið
Á faglegum nótum 3. janúar 2023

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið

Meindýr eru skaðvaldar í garð- og skógrækt og óvelkomnir gestir sem flestir vild...

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna
Á faglegum nótum 2. janúar 2023

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna

Vinna við norrænu næringarráðin (NNR), sem Norræna ráðherra­nefndin heldur utan ...

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022
Á faglegum nótum 30. desember 2022

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022

Í heildina var útkoma lamba í haust góð. Meðalfallþungi á landinu var 16,6 kg og...

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?
Á faglegum nótum 28. desember 2022

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?

Hér á landi fellur til gríðarlegt magn af lífrænum úrgangi á öllum stigum samfél...

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs
Á faglegum nótum 27. desember 2022

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs

Nú þegar líður að áramótum og allir eru búnir að skila haustskýrslu til matvælar...