Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Dómararnir Halla Eygló Sveinsdóttir, Guðlaugur V. Antonsson og Arnar Bjarki Sigurðsson.
Dómararnir Halla Eygló Sveinsdóttir, Guðlaugur V. Antonsson og Arnar Bjarki Sigurðsson.
Mynd / Anna Guðrún Grétarsdóttir
Á faglegum nótum 28. maí 2025

Kynbótasýningar vorsins og FM2025

Höfundur: Þorvaldur Kristjánsson og Halla Eygló Sveinsdóttir

Opnað var á skráningar á kynbótasýningar mánudaginn 5. maí. Skráningar fóru vel af stað og þegar þetta er skrifað er orðið uppselt á tvær sýningar, Rangárbakka dagana 26. til 28. maí og Rangárbakka 16. til 20. júní. Skráning og greiðsla fer fram eins og síðustu ár í gegnum heimasíðu RML www.rml.is en á forsíðunni er flýtihnappur sem skráð er í gegnum. Á forsíðu WorldFengs er einnig hægt að skrá hross til sýningar. Nánari leiðbeiningar varðandi skráningar er að finna á heimasíðu RML.

Í meðfylgjandi töflu má sjá hvaða sýningarstaðir eru í boði og lokaskráningardag á hverja sýningu en skráningu þarf að vera lokið á miðnætti þess dags. Ef sýning fyllist lokast sjálfkrafa á sýninguna þó svo skráningarfrestur sé ekki útrunninn. Eigandi/ umsjónamaður hrossins verður þá að velja aðra sýningu. Til að fá aðstoð er hægt að hringja í síma 516-5000, eða senda tölvupóst á netföngin halla@ rml.is og hross@ rml.is. Við bendum á að utan dagvinnutíma eru starfsmenn RML ekki til staðar til að svara síma eða tölvupósti og því hvetjum við eigendur/umsjónamenn hrossa til að skrá tímanlega.

RML áskilur sér rétt til að fækka dögum á sýningum ef skráningar eru færri en búist er við og sameina sýningar ef þess gerist þörf. Sýning verður ekki haldin nema lágmarksfjöldi skráninga náist sem eru 30 hross. Í töflu á síðunni má sjá sýningaáætlun vorsins og hvenær eru síðustu skráningadagar.

Allar upplýsingar um röðun niður á daga munu birtast á heimasíðunni www.rml.is, þegar þær eru tilbúnar sem verður nokkrum dögum fyrir sýningu.

Sýningargjöld og fleira

Verð fyrir fullnaðardóm er 44.600 kr. en fyrir sköpulagsdóm/ hæfileikadóm 33.960 kr. Ganga þarf frá greiðslu um leið og hrossið er skráð. Hægt er að greiða með debeteða kreditkortum, ekki er hægt að greiða með millifærslu. Um leið og hrossið hefur verið skráð og greiðsla framkvæmd, birtist hrossið strax inn á viðkomandi sýningu. Ef það gerist ekki er rétt að kanna hvort eitthvað hafi farið úrskeiðis við skráninguna. Aðeins þau hross sem hlotið hafa fullnaðardóm á sama sýningarári er hægt að skrá eingöngu í reiðdóm.

Endurgreiðslur á sýningargjöldum koma því aðeins til greina ef forföll eru tilkynnt með tölvupósti fyrir kl. 16:00 síðasta virka dag fyrir upphaf sýningarviku á netfangið hross@ rml.is. Endurgreitt er 26.315 kr. fyrir hross sem skráð hefur verið í fullnaðardóm og 20.000 kr. fyrir hross sem hefur verið skráð í sköpulags- eða hæfileikadóm. Þessar endurgreiðslur miðast við núverandi forsendur. Slasist hross eftir að sýning hefst er sama hlutfall endurgreitt gegn læknisvottorði.

Endurgreiðslukrafa vegna slasaðra hrossa þarf að hafa borist fyrir 1. júlí. Skipti knapi út hrossi í sýningu og velji að sýna annað hross en það sem skráð er, ber sá hinn sami fulla ábyrgð gagnvart þeim sem greiddi fyrir plássið. Greiðsla fyrir það hross sem skipt var út verður notuð til greiðslu á hrossinu sem kom í staðinn.

Minnum á eftirfarandi:

Ekki er hægt að skrá hryssur eða geldinga til sýningar nema búið sé að taka úr þeim stroksýni til DNAgreiningar og staðfesting á því liggi fyrir í WF.

Allir stóðhestar verða að vera DNA-greindir svo og foreldrar þeirra.

Úr öllum stóðhestum fimm vetra og eldri þarf að liggja fyrir í WF að búið sé að taka blóðsýni og röntgenmynda vegna spatts.

Ekki er hægt að skrá hross á kynbótasýningu nema þau séu örmerkt

Ef örmerki finnst ekki í hrossi sem mætir til dóms ber að örmerkja það á staðnum og taka stroksýni úr nös til DNA-greiningar á ætterni, með þeim kostnaði sem af því hlýst fyrir eiganda/forráðamann. Örmerki og DNA-sýni þurfa ávallt að fylgjast að.

Ekki er hægt að skrá hross til sýningar nema ofantaldar kröfur séu uppfylltar og skráning liggi fyrir í WorldFeng. Hross sem koma inn á sýningu í stað annarra skráðra hrossa og uppfylla ekki þessi skilyrði, verður án undantekninga vísað frá sýningu strax hjá mælingamanni. Sýningargjald er ekki endurgreitt í slíkum tilfellum.

Ef þess er nokkur kostur þá er fyrir alla aðila farsælast að skrá rétt hross á sýningu strax í upphafi því það einfaldar alla vinnu á sýningarstað. Munum því eftir að taka sýni og röntgenmyndir í tíma.

Dómar á tölti og skeiði – breytingar í vor

Í dómskala kynbótahrossa hefur staðið að til að hljóta 9,0 eða hærra fyrir tölt þurfi að sýna fram á að hesturinn sé sjálfberandi þegar honum er riðið í nokkrar sekúndur á slökum taumi. Það er nú búið að taka þetta út sem kröfu til hæstu einkunna og framvegis þarf ekki að sýna hestinn á slökum taumi til að fá 9,0 eða hærra fyrir tölt (einungis nefnt sem möguleiki til hækkunar). Hérna er textinn í dómskalanum er snýr að tölti eftir breytingu:

Töltið er dæmt á öllum þeim hraðastigum sem hesturinn býr yfir, þ.e. á hægri ferð, milliferð og greiðri ferð. Til þess að hljóta einkunn upp á 9,0 eða hærra er gerð krafa um að sýnd sé hraðabreyting (þ.e. greinileg uppkeyrsla og/eða niðurhæging) og að hesturinn viðhaldi þar takti, jafnvægi og mýkt. Ef sýnt er fram á að hesturinn sé sjálfberandi á slökum taumi getur það haft jákvæð áhrif á einkunnina.

Þá hefur eftirfarandi vinnuregla verið við dóma á skeiði á yfirlitssýningum:

Hross, sex vetra og eldri, sem hljóta 5,0 fyrir skeið í dómi verða að skeiða upp á að lágmarki 6,5 til að hreyfa einkunn.

Þessi regla hefur verið tekin út til einföldunar. Áfram er það þannig að til að hækka einkunn fyrir skeið á yfirlitssýningu verður að sýna hrossið einnig á tölti, þar sem horft er til þess að gæði töltsins séu svipuð og í dómi. Ef svo er ekki, þá verður einkunn fyrir skeið að vera að lágmarki 0,5 stigum lægri en sýning þess á yfirlitssýningunni býður upp á. Þessi vinnuregla hefur verið við lýði og heldur áfram og fær hrossið þá einkunn sem sýningin á yfirlitssýningu býður upp á óháð því hvaða einkunn hrossið fékk í dómi.

Þessi breytingar voru samþykktar á fundi ræktunarleiðtoga FEIFlandanna í byrjun febrúar og taka gildi í vor.

Nánari upplýsingar um reglur og annað sem viðkemur kynbótasýningum má finna á heimasíðunni www.rml.is eða hringja í síma 516-5000 hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið hross@rml.is.

Fjórðungsmót 2025

Fjórðungsmót verður haldið á Vesturlandi í ár, nánar tiltekið í Borgarnesi, dagana 3.–6. júlí. Hross sem eru í eigu aðila á Vesturlandi, Vestfjörðum, Húnavatnssýslum, Skagafirði eða Eyjafirði eiga þátttökurétt á mótinu og er miðað við að lágmarki 25% eignarhlut. Það er því mikilvægt að eigendur kynbótahrossa fari yfir upplýsingar um heimilisfang sitt í heimaréttinni í WorldFeng en það er hægt að lagfæra þær upplýsingar í flipanum Um mig í heimaréttinni ef þær eru ekki réttar. Ákveðinn fjöldi efstu hrossa í hverjum flokki byggt á aðaleinkunn þeirra eiga þátttökurétt á mótinu (sjá fjölda í töflu hér að neðan). Miðað er við að 86 kynbótahross verði á mótinu. Þegar kynbótasýningarnar byrja í vor verður birtur stöðulisti í WorldFeng sem sýnir hvaða hross eru inni á mótinu hverju sinni. Ef fleiri en eitt hross eru jöfn í síðasta sæti inn á mótið þá er þeim öllum heimil þátttaka á mótinu. Eins verða eigendur hrossa sem vinna sér þátttökurétt á mótinu en ætla sér ekki að mæta með þau af einhverjum ástæðum beðnir um að láta vita fyrir ákveðna dagsetningu, þannig að hægt sé að bjóða hrossum sem eru neðar á listanum þátttöku á mótinu.

Fjöldi kynbótahrossa á FM 2024:

Heimsmeistaramót í Sviss

Heimsmeistaramót íslenska hestsins verður haldið í Sviss dagana 4.–10. ágúst. Stefnt er að því að 6 kynbótahross fari fyrir hönd Íslands á mótið eins og verið hefur, í flokkum stóðhesta og hryssna; fimm, sex og sjö vetra og eldri. Val kynbótahrossa á HM verður að liggja fyrir 1. júlí í ár og verður því valið úr kynbótahrossum sem sýnd verða á sýningum á undan þeirri dagsetningu. Efstu hross sem eru í boði í hverjum flokki verða valin á mótið hvar sem þau eru sýnd í heiminum svo fremi sem þau séu fædd á Íslandi.

Sýningarárið 2025 með Fjórðungsmóti á Vesturlandi og Heimsmeistaramóti í Sviss er sannkallað tilhlökkunarefni og væntum við hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins góðs samstarfs við hrossaræktendur og sýnendur nú í vor sem endranær.

„Spjallað“ við kýr
Á faglegum nótum 9. janúar 2023

„Spjallað“ við kýr

Atferli, hegðun, útlit og ástand nautgripa getur gefið gríðarlega mikilvægar upp...

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands

Á aðalfundi Landssambands skógareigenda (LSE) sem haldinn var í Borgarnesi í maí...

Lífræn framleiðsla – nú er lag
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Lífræn framleiðsla – nú er lag

Á undanförnum árum hefur VOR látið til sín taka með ýmsum hætti til að hvetja ti...

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið
Á faglegum nótum 3. janúar 2023

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið

Meindýr eru skaðvaldar í garð- og skógrækt og óvelkomnir gestir sem flestir vild...

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna
Á faglegum nótum 2. janúar 2023

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna

Vinna við norrænu næringarráðin (NNR), sem Norræna ráðherra­nefndin heldur utan ...

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022
Á faglegum nótum 30. desember 2022

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022

Í heildina var útkoma lamba í haust góð. Meðalfallþungi á landinu var 16,6 kg og...

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?
Á faglegum nótum 28. desember 2022

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?

Hér á landi fellur til gríðarlegt magn af lífrænum úrgangi á öllum stigum samfél...

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs
Á faglegum nótum 27. desember 2022

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs

Nú þegar líður að áramótum og allir eru búnir að skila haustskýrslu til matvælar...