Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 8 mánaða.
Takmörkun á grisjun hámarkar kolefnisbindingu. Kolefnisskógrækt, nytjaskógrækt og skógrækt til útivistar fara ekki vel saman.
Takmörkun á grisjun hámarkar kolefnisbindingu. Kolefnisskógrækt, nytjaskógrækt og skógrækt til útivistar fara ekki vel saman.
Mynd / Sigurður H. Magnússon
Á faglegum nótum 11. mars 2025

Kolefnisskógrækt – bjargræði eða bölvun?

Höfundur: Ólafur S. Andrésson er fyrrverandi prófessor við Háskóla Íslands og Sigfús Bjarnason er fyrrverandi deildarstjóri við Umhverfisstofnun Evrópu.

Kannanir sýna að flestir landsmenn eru hlynntir skógrækt á Íslandi eins og hún hefur verið stunduð hingað til.

Skógrækt skapar skjól og útivistarsvæði og getur framleitt nytjavið. Skógrækt síðustu ára þar sem aðalmarkmiðið er að binda kolefni og framleiða kolefniseiningar á hins vegar ekki mikið skylt við hefðbundna skógrækt. Slík plantekruskógrækt getur haft verulega neikvæð áhrif á náttúruna og ásýnd landsins og vafasamt er hvort hún skili miklum árangri í baráttunni gegn hlýnun Jarðar.

Skógrækt og hlýnun Jarðar

Skógrækt hefur einkum áhrif á hitafar á tvennan hátt. Skógur bindur koltvísýring (CO2) og breytt yfirborð landsins hefur áhrif á endurkast sólarljóssins sem á það skín. Mikil áhersla hefur verið lögð á hið fyrra, en breytingar á endurkasti vega líka þungt. Aðrir þættir, svo sem aukning á uppgufun og skýjamyndun, vega mun minna. Loftslagslíkön sem þróuð hafa verið um áhrif gróðurhúsalofttegunda og endurkasts sólarljóss á hitafar Jarðar eru orðin býsna nákvæm. Tvöföldun á styrk CO2 í andrúmsloftinu veldur um 3 °C hækkun á hitastigi og hið sama á við ef endurkast lækkar um 3,7 W/m2. Binding á CO2 hjálpar þannig til að lækka hitastig en minna endurskin leiðir til hækkunar. Þegar loftslagsáhrif skógræktar eru metin þarf því að skoða hvort breyting verður á endurkasti sólgeislunar á viðkomandi svæði. Móar og graslendi eru sem mósaík margra og oft ljósra lita sem endurkasta sólarljósinu en ef sígrænn barrskógur er ræktaður á slíku landi dökknar yfirborð þess og endurkast minnkar sem getur vegið upp stóran hluta kælingarárhrifa kolefnisbindingarinnar. 

Hversu mikið CO2 bindur skógrækt?

Samkvæmt loftslagsbókhaldi Íslands bindur skóglendi á Íslandi nú rúmlega 0,5 milljónir tonna af CO2 árlega og þekur um 150 þúsund hektara. Það gerir nærri 4 tonn á hektara á ári sem er mun minna en almennt er gert ráð fyrir í útreikningum á bindingu í kolefnisskógrækt. Einnig er gert ráð fyrir að kolefni í jarðvegi aukist um jafngildi 58-85 tonna CO2 á 50 árum. Það er vafasamt, því að mörg dæmi eru um að jarðvegskolefni minnki við skógrækt, sérstaklega þar sem jarðvegur er kolefnisríkur. Breytingar á kolefnisforða jarðvegs eru ekki mældar í þessum verkefnum og því er ógerlegt að staðhæfa að þetta gerist. Losun CO2 úr jarðvegi er töluverð fyrstu árin eftir jarðvinnslu og vöxtur trjánna lítill þannig að ný verkefni leggja ekkert til þess að ná loftslagsmarkmiðum Íslands fyrstu áratugina.

Er kolefnisbinding í skógi varanleg?

Tré eru ekki eilíf, en villtir skógar endurnýja sig og þannig helst bundið kolefni á svæðinu til langs tíma. Laufskógar á norðurhveli ná jafnvel að auka sífellt kolefni í jarðvegi, eins og sýnt er í nýlegri grein Sólveigar Sanchez o.fl. um íslenska birkiskóga. Ef skógar eru ræktaðir til timburnytja þarf að meta hve mikið kolefni er á svæðinu til langframa. Gera má ráð fyrir að 90% af trjáviðnum sem fjarlægður er af svæðinu skili sér fljótlega aftur sem CO2 í andrúmsloftinu.

Hlýnunaráhrif kolefnisskógræktar á hektara geta verið frá því að jafngilda undir 180 tonna CO2 losun (gult) til yfir 260 tonna CO2 losun (rautt) og allt þar á milli (rauðgult). Heimildir: Veðurstofan (snjóþekjugögn) og Bright R.M. et al. (reiknilíkan)

Skilar kolefnisskógrækt nokkrum árangri?

Þegar tekið er tillit til ofannefndra þátta – breytinga á endurskini, ofmati á jarðvegsbindingu og engri tryggingu fyrir varanleika CO2 bindingar – er ljóst að kolefnisskógrækt getur, allt eftir aðstæðum, haft neikvæð loftslagsáhrif. Slík verkefni eru gjörsamlega tilgangslaus hvað varðar áhrif á loftslagið og munu ekki gefa eigendum sínum þann peningalega arð sem þeir vænta.

Vottun kolefnisbindingar er forsenda þess að hægt sé að selja kolefniseiningarnar á kolefnismarkaði og til þess að kaupandinn geti nýtt sér einingarnar sem mótvægi við eigin kolefnislosun. Til að hægt sé að votta verkefni verða þau að fylgja einhverjum staðli eða kröfusetti. Flest íslensk verkefni nota kröfusettið Skógarkolefni sem er í umsjá Lands og skógar. En vottun er lítils virði ef kröfusettið er gallað og lítur ekki á heildarmyndina. Auk þess njóta þau fyrirtæki sem nú sjá um vottanirnar ekki almennrar viðurkenningar á alþjóðavettvangi þar sem verið er að herða kröfur um vottun. Því má fljótlega búast við örðugleikum í sölu á kolefniseiningum úr íslenskum skógum.

Kolefnisskógrækt og umhverfið

Vanda þarf til verka þegar land er valið til kolefnisskógræktar. Það getur verið allt frá gróðurlitlu og illa förnu landi með litlu fuglalífi til kolefnisríkra og tegundaauðugra vistgerða með ríku fuglalífi eða gamalgróins ræktarlands sem hentar vel til fæðuframleiðslu. Þétt plantekrurækt skógartrjáa veldur miklum breytingum á lífríki og vistkerfum sem fólk metur mikils svo sem berjalöndum og kjörlendi fuglastofna. Íslendingar bera alþjóðlega ábyrgð á mörgum stofnum fugla sem huga verður að þegar land er lagt undir kolefnisskógrækt.

Við mat á áhrifum kolefnisskógræktar er mikilvægt að bera framkvæmdina saman við aðra kosti og hvað gerist ef ekkert er aðhafst. Samanburðarkosturinn gæti skilað svipaðri kolefnisbindingu þegar til langs tíma er litið. Skylt er að framkvæma umhverfismat fyrir skógrækt sem nemur 200 hekturum eða meir en strax eru komin dæmi um aðliggjandi skógræktarsvæði sem eru yfir 400 hektarar en hafa ekki farið í umhverfismat. Fyrirhuguð skógrækt á viðkvæmum svæðum er einnig tilkynningaskyld til Skipulagsstofnunar og sveitarstjórnar, en það er framkvæmdaaðila í sjálfsvald sett hvað hann metur tilkynningarskylt. Það þarf að koma á miklu betri og öflugri umgjörð til að tryggja gæði kolefnisskógræktar.

Skógrækt eða endurheimt votlendis?

Þegar bleytt er í framræstu landi dregur það strax úr losun CO2 en binding í trjám verður ekki veruleg fyrr en áratugum eftir plöntun. Endurheimt á helmingi framræsts votlendis gæti dregið úr CO2 losun um nærri 3,6 miljónir tonna á ári. Þegar kolefnislosun úr jarðvegi, breytingar á endurskini og eðlileg viðmið eru tekin með í mat á loftslagsáhrifum, dugir varla að leggja allt gróðurlendi Íslands undir ræktun sígrænna skóga til að ná fram sömu áhrifum og hægt er að ná með endurheimt votlendis!

Heimildir og ítarefni má finna á vef Vina íslenskrar náttúru (natturuvinir.is)

Skylt efni: Kolefnisskógrækt

„Spjallað“ við kýr
Á faglegum nótum 9. janúar 2023

„Spjallað“ við kýr

Atferli, hegðun, útlit og ástand nautgripa getur gefið gríðarlega mikilvægar upp...

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands

Á aðalfundi Landssambands skógareigenda (LSE) sem haldinn var í Borgarnesi í maí...

Lífræn framleiðsla – nú er lag
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Lífræn framleiðsla – nú er lag

Á undanförnum árum hefur VOR látið til sín taka með ýmsum hætti til að hvetja ti...

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið
Á faglegum nótum 3. janúar 2023

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið

Meindýr eru skaðvaldar í garð- og skógrækt og óvelkomnir gestir sem flestir vild...

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna
Á faglegum nótum 2. janúar 2023

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna

Vinna við norrænu næringarráðin (NNR), sem Norræna ráðherra­nefndin heldur utan ...

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022
Á faglegum nótum 30. desember 2022

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022

Í heildina var útkoma lamba í haust góð. Meðalfallþungi á landinu var 16,6 kg og...

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?
Á faglegum nótum 28. desember 2022

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?

Hér á landi fellur til gríðarlegt magn af lífrænum úrgangi á öllum stigum samfél...

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs
Á faglegum nótum 27. desember 2022

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs

Nú þegar líður að áramótum og allir eru búnir að skila haustskýrslu til matvælar...