Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 mánaða.
Starfsmenn Sawakami eignastýringasjóðsins: Frá hægri: Hiroaki Maeno, fyrrverandi atvinnumaður í fótbolta, Mitsuaki Kuroshima, umhverfisverkfræðingur og yfirmaður greiningardeildar Sawakami sjóðsins og Jun Suzuki, byggingaverkfræðingur.
Starfsmenn Sawakami eignastýringasjóðsins: Frá hægri: Hiroaki Maeno, fyrrverandi atvinnumaður í fótbolta, Mitsuaki Kuroshima, umhverfisverkfræðingur og yfirmaður greiningardeildar Sawakami sjóðsins og Jun Suzuki, byggingaverkfræðingur.
Mynd / Aðsend
Á faglegum nótum 9. október 2023

,,Arðsöm fyrirtæki eru forsenda sjálfbærni samfélaga“

Höfundur: Sigurgeir B. Kristgeirsson

,,Maðurinn er hluti náttúrunnar og verður að haga sér sem slíkur. Við verðum að vera ábyrg og láta gott af okkur leiða fyrir komandi kynslóðir þannig að lífskjör og lífsgæði batni,“ segir Mitsuaki Kuroshima, en hann heimsótti Ísland nýlega ásamt tveim öðrum starfsmönnum Sawakami eignastýringasjóðsins.

Erindi þeirra var að kynna sér sjálfbærar fiskveiðar og græna orku Íslendinga.

,,Starfsmenn sjóðsins verða að kynna sér stefnur og strauma heima og erlendis og afla sér þekkingar til að geta fjárfest með ábyrgum hætti fyrir hönd viðskiptavina sinna,“ bætti Mitsuaki við. Stefna sjóðsins vakti athygli og við gátum því ekki sleppt tækifærinu til að forvitnast um ástæður heimsóknarinnar og hvað að baki bjó.

Sawakami Fund og samfélagsleg ábyrgð

Sawakami sjóðurinn var stofnaður árið 1999 og er því að verða 25 ára. Heildareignir sjóðsins eru 384 milljarðar jena, jafngildi 345 milljarða króna.

Til samanburðar eru árlegar útflutningstekjur af sjávarútvegi á Íslandi 250–300 milljarðar króna. Sjóðurinn fjárfestir eingöngu til langs tíma í fyrirtækjum sem styðja við samfélög sín á einn eða annan hátt og eru líkleg til að bæta lífsgæði þeirra á næstu 10–20 árum.

,Fyrirtæki getur ekki stutt við samfélag sitt, hvort heldur lítið þorp eða þjóðina í heild, nema með því að skila hagnaði. Þannig vex og dafnar fyrirtæki samhliða samfélaginu og byggir undir betri framtíð og hefur burði til að fjárfesta í nýjungum og nýjum tækifærum þar sem ungt fólk sér tækifæri og framtíð sína. Við viljum fjárfesta í þannig fyrirtækjum,“ segir Mitsuaki.

Eingöngu einstaklingar

Sjóðurinn býður einungis einstaklingum að fjárfesta í sjóðnum með sparnaði sínum. Viðskiptavinir, þ.e.a.s. fjárfestar, í Sawakami sjóðnum eru nú 118.000.

,,Markmiðið er að gera líf einstaklinganna einfaldara og að þeir þurfi ekki að hafa fjárhagsáhyggjur. Hver einstaklingur á sitt líf og sína drauma. Með því að fjárfesta í Sawakami sjóðnum þá geta fjárfestar treyst því að sparnaður þeirra sé nýttur til uppbyggingar í þágu samfélags þeirra og þá um leið þeirra sjálfra. En grundvöllurinn verður alltaf að vera góð ávöxtun, alveg eins og náttúran sjálf gefur af sér í formi góðrar uppskeru eða góðrar veiði.

Þannig, og einungis þannig, er samhljómur náttúrunnar og mannanna sem eru að sjálfsögðu eðlilegur hluti hvort af öðru,“ segir Mitsuaki.

Heildareignir Sawakami sjóðsins standa nú í um 345 milljörðum króna, en hann var stofnaður árið 1999.

Starfsmenn sjóðsins

Starfsmenn sjóðsins verða sjálfir að heimsækja fyrirtækin sem sjóðurinn fjárfestir í og þekkja stjórnun, tilgang og markmið þeirra. Þeir verða að vera fullvissir um að stefna og markmið fyrirtækisins sé að bæta lífskjör samfélaga sinna.

,,Það er ekki nóg að þekkja fyrirtækin og afkomutölur þeirra, heldur verðum við einnig að þekkja stjórnendur og stefnu stjórnenda fyirtækjanna sjálfra. Við verðum að vera fullvissir um að markmið þeirra sé í samræmi við stefnu Sawakami sjóðsins,“ segir Mitsuaki.

,,Það er ekki nóg að þekkja fyrirtækin sjálf heldur verðum við að bera ábyrgð á fjárfestingum og fjárfestingarstefnu og geta kynnt hana milliliðalaust til þeirra sem leggja fé sitt í umsjón sjóðsins. Við verðum því að geta útskýrt, augliti til auglitis, fyrir fjárfestum hvers vegna félagi gengur vel eða illa og hverjar framtíðarhorfurnar eru,“ bætir Mitsuaki við.

Staða sjávarútvegs í Japan

Í viðtali í Bændablaðinu þann 12. ágúst 2021 lýsti Ayumo Katano fiskveiðistjórnun í Japan m.a. með eftirfarandi orðum: ,,Staða japansks sjávarútvegs er slæm. Fiskistofnar eru ofveiddir og því er dýrt að veiða fiskinn. Vegna slæms skipulags er meðalverð á japönskum makríl mjög lágt.

... Af þessu öllu leiðir að laun japanskra sjómanna eru afskaplega lág. ... Meðalaldur japanskra sjómanna er um 60 ár og endurnýjun lítil, sem er auðvitað eðlileg afleiðing af lágum launum,“ Katano hefur m.a. gefið út fjórar bækur um nauðsyn þess að breyta fiskveiðistjórnun í Japan.

En það er ekki allt slæmt í Japan. Í viðtalinu lýsti hann einnig hörpudisksveiðum þar sem sjómenn og fyrirtæki þeirra gæta búsvæða hörpudisksins, aðstoða við hrygningu og rækta í sumum tilfellum hörpudiskinn frá upphafi til enda. Þar er afrakstur góður. Fyrirtækin hagnast og hafa getu til að fjárfesta í skipum, vinnslum, tækni og markaðsmálum og sjómenn eru vel launaðir.

Miklar sveiflur eru á japönskum fiskmörkuðum í magni og verði því sjómenn kjósa að fiska sem mest, í stað þesss að reyna að hámarka verðmætin.

Hvers vegna til Íslands?

,,Við höfum heyrt af því hvernig íslenskur sjávarútvegur er rekinn. Að fiskveiðarnar séu sjálfbærar og að fiskistofnarnir séu ekki ofveiddir,“ sagði Mitsuaki.

,,Arðsöm fyrirtæki eru forsenda sjálfbærni samfélaga. Á sama tíma verða fyrirtækin og samfélögin að umgangast náttúruna og auðlindir hennar af virðingu, hlúa að henni og nýta með sjálfbærum hætti. Þetta er hinn mikilvægi samhljómur sjálfbærninnar þar sem fólkið sjálft er hluti hennar. Það er einnig mikilvægt að fyrirtækin sjálf séu arðsöm og geti staðið undir uppbyggingu í sjávarbyggðunum.

Okkur langaði mjög að kynna okkur hvernig Íslendingar stjórnuðu fiskveiðum sínum með sjálfbærum hætti og læra af reynslu þeirra,“ sagði Mitsuaki að lokum.

Greinarhöfundur er búfræðingur og framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar hf. í Vestmannaeyjum

„Spjallað“ við kýr
Á faglegum nótum 9. janúar 2023

„Spjallað“ við kýr

Atferli, hegðun, útlit og ástand nautgripa getur gefið gríðarlega mikilvægar upp...

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands

Á aðalfundi Landssambands skógareigenda (LSE) sem haldinn var í Borgarnesi í maí...

Lífræn framleiðsla – nú er lag
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Lífræn framleiðsla – nú er lag

Á undanförnum árum hefur VOR látið til sín taka með ýmsum hætti til að hvetja ti...

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið
Á faglegum nótum 3. janúar 2023

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið

Meindýr eru skaðvaldar í garð- og skógrækt og óvelkomnir gestir sem flestir vild...

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna
Á faglegum nótum 2. janúar 2023

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna

Vinna við norrænu næringarráðin (NNR), sem Norræna ráðherra­nefndin heldur utan ...

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022
Á faglegum nótum 30. desember 2022

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022

Í heildina var útkoma lamba í haust góð. Meðalfallþungi á landinu var 16,6 kg og...

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?
Á faglegum nótum 28. desember 2022

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?

Hér á landi fellur til gríðarlegt magn af lífrænum úrgangi á öllum stigum samfél...

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs
Á faglegum nótum 27. desember 2022

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs

Nú þegar líður að áramótum og allir eru búnir að skila haustskýrslu til matvælar...