Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 10 mánaða.
Kaldi 21020 frá Hraunhálsi í Helgafellssveit er undan Risa 15014 og móðurfaðir er Foss 09042.
Kaldi 21020 frá Hraunhálsi í Helgafellssveit er undan Risa 15014 og móðurfaðir er Foss 09042.
Á faglegum nótum 2. maí 2023

Af nautum og erfðamati

Höfundur: Guðmundur Jóhannesson, ráðunautur í nautgriparækt.

Nú er búið að keyra erfðamat í nokkur skipti og kynbóta-/erfðamat er nú uppfært því sem næst mánaðarlega í Huppu. Þetta þýðir að einkunnir einstakra gripa taka örar breytingum en þegar matið var keyrt 3-4 sinnum á ári. Það fylgir því ávallt nokkur spenna þegar gripir fá sitt fyrsta mat.

Nautin sem hafa verið í notkun á undan­ förnum vikum skarta erfðamati og nokkur þeirra einnig afkvæma­ dómi. Það liggur í hlutarins eðli að öruggasta matið er á þeim nautum sem hafa bæði arfgreiningu og afkvæmadóm og það á við um nautin fædd 2017. Þau nautanna sem yngri eru hafa erfðamat þar sem öryggið er nánast það sama og á nauti sem
nýlokið hefur afkvæmaprófun.

Stóra breytingin sem varð í haust þegar innleiðing erfðamengisúrvals hófst er sú að nú keyrum við ekki kynbótaskipulagið lengur með reyndum og óreyndum nautum. Þau naut sem eru í notkun núna er öll „reynd“ að því leyti að mat þeirra byggir á ætterni og arfgreiningum. Það þýðir að mat þeirra er nægilega öruggt til þess að setja þau í notkun án þess að fram hafi farið afkvæmaprófun. Á sama tíma var skipt yfir í að val og kaup nautkálfa á Nautastöðina á Hesti byggir alfarið á arfgreiningum. Með þeim hætti á að vera tryggt að sá hópur sem þangað kemur til kynbóta í íslenska kúastofninum er eins góður og kostur er, þetta er og verður rjóminn af nautum landsins.

Úr því minnst er á rjóma, þá erum við nú í þeirri stöðu að úr þeim nautum sem fædd voru 2018­-2022 fleytum við rjómann. Þá á ég við að við tökum eingöngu til nota allra bestu nautin úr þessum árgöngum enda sést það glöggt á þeim nautum sem til boða standa að þarna fara engir meðaljónar. Allt eru þetta naut sem hafa til að skarta einkunnum sem hingað til hafa þótt nautsfeðrum sæmandi. Nú er nautunum ekki lengur skipt
í nautsfeður og kýrfeður.

Öll naut sem í notkun eru
geta orðið nautsfeður. Þetta er rétt að hafa í huga og tilkynna um nautkálfa undan góðum og hátt metnum kúm og ekki síður efnilegum kvígum sem vonir eru bundnar við. Hver veit nema að kálfurinn sem fæddist í nótt eða morgun hafi til að bera flesta þá kosti sem við sækjumst eftir, það gæti verið nýr Kaðall, Birtingur, Sjarmi, Jörfi, Kvóti, Marmari, Banani eða Óðinn sem stendur hjá móður sinni í burðarstíunni. Þá er um að gera að hafa samband við okkur hjá RML, kanna hvort ekki sé áhugi fyrir kálfinum og saman tökum við ákvörðun um hvort taka eigi sýni úr gripnum.

Þarna gildir ekki hógværðin, ekki hugsa sem svo að það verði aldrei tekið naut á stöð frá búinu. Það er enginn erfðafræðilegur munur milli búa þannig að í hverju einasta fjósi landsins geta leynst gullmolar og því fleiri gripi sem við höfum úr að velja, því betra. Vinnulagið er þá þannig að kálfurinn fær DNA­ merki í eyrað, merkið er sett í til þess gerðan plastpoka merktan forgangssýni og sent. Sýnið fer þá í forgang í greiningu og að lokinni greiningu er keyrt erfðamat sem gefur til kynna hvaða eiginleikum kálfurinn býr yfir. Þá er tekin ákvörðun um hvort hann verður keyptur til kynbóta að Hesti eður ei.

Plastpokarnir sem ég minntist á eru sérmerktir og ráðunautar RML eru þessa dagana að dreifa þeim samhliða kúaskoðunum.

Þá er einnig hægt að fá á starfsstöðvum RML á Hvanneyri, Sauðárkróki, Akureyri, Egils­stöðum og Selfossi.

Nóg um það að sinni, nú er rétt að líta aðeins á nautin sem eru í notkun. Í kútum frjótækna eru nú 17 naut, hvert öðru betra.

Faðerni þeirra er dreift þannig að menn hafi sem breiðastan grunn til þess að velja úr og geti forðast pörun mjög skyldra gripa eins og kostur er. Hér á eftir fer stutt umfjöllun um þá í aldursröð.

Búkki 17031 frá Lundi í Lundar­reykjadal er Dropasonur 10077 og móðurfaðir er Bolti 09021. Eins og ætternið bendir til gefur Búkki stórar og háfættar kýr en hans meginstyrkur liggur í úrvalsgóðri júgurgerð. Helsti gallinn eru fremur stuttir og grannir spenar. Heildareinkunn 108.

Ós 17034 frá Espihóli í Eyjafirði er undan Úlla 10089 og móðurfaðir er Kambur 06022. Kostir Óss eru miklir, mjólkurlagni dætra, úrvalsgóð júgurgerð og góðar mjaltir en gallinn er lág efnahlutföll í mjólk. Heildareinkunn 109.

Títan 17036 frá Káranesi í Kjós er sonur Úranusar 10081 og móðurfaðir er Dynjandi 06024. Títan er öflugt naut sem skartar góðri júgurgerð dætra ásamt frábærum mjöltum og úrvalsgóðu skapi. Galla er fáa eða mjög litla að finna í dætrahópnum. Heildareinkunn 108.

Kollur 18039 frá Stóru­Mörk undir Eyjafjöllum er Skallasonur 11023 og móðurfaðir er Flóki 13020.

Þarna er á ferðinni naut sem á að gefa miklar mjólkurkýr með góða júgur­ og spenagerð og frábært skap. Gallar ættu að verða litlir sem engir og þá helst að efnahlutföll í mjólk muni liggja um meðallag. Heildareinkunn 110.

Tindur 19025 frá Hvanneyri í Andakíl er sonur Sjarma 12090 og móðurfaðir er Klettur 08030. Dætur Tinds verða að öllum líkindum fádæma mjólkurlagnar kýr með góða júgurgerð, úrvalsgóðar mjaltir og gott skap. Helstu gallar á þeim gætu orðið efnahlutföll í mjólk undir meðallagi og að þær verði í lágfættari kantinum. Heildareinkunn 112.

Skáldi 19036 frá Skáldsstöðum í Eyjafirði er undan Bárði 13027 og móðurfaðir er Klettur 08030. Þarna er fer enn eitt úrvalsnautið sem skartar væntingum um mjólkurlagnar kýr með góða júgurgerð, mjög góðar mjaltir og sélega gott skap. Eini gallinn á þeim verður líklega lágt próteinhlutfall í mjólk. Heildareinkunn 109.

Kvóti 19042 frá Ytri­Tjörnum í Eyja­firði, sonur Sjarma 12090 og dóttur­sonur Úlla 10089, kom til notkunar í haust með miklum glæsibrag. Hann skartar geysigóðu afurðamati, hefur til að bera mikla júgurhreysti og mjög góðar mjaltir og skap.

Helstu gallar eru að júgurgerð virðist um meðallag og rétt er að hafa í huga að spenar eru nettir. Fyrir áhugamenn um liti er Kvóti án efa spennandi en hann var dökkkolóttur með gráar yrjur og erfir því líklega frá sér gráan lit. Heildareinkunn 115.

Kvóti 19042 frá Ytri-Tjörnum í Eyjafirði, sonur Sjarma 12090 og dóttursonur Úlla 10089.


Bússi 19066 frá Búvöllum í Aðaldal er sonur Stera 13057 og móðurfaðir er Dynjandi 06024. Þarna er á ferðinni mikið afurðanaut þar sem saman fara mikil mjólkurlagni og há efnahlutföll í mjólk.

Spenagerð verður líklega góð en til galla verður að telja að júgurgerð verður um meðallag sem og mjaltir og skap. Heildareinkunn 113.

Bersi 20004 frá Birtingaholti 1 í Hrunamannahreppi er sonur Hálfmána 13022 og móðurfaðir er Baldi 06010. Hér fer afurðanaut, mjög gott mat fyrir mjólkurlagni og efnahlutföll. Júgurgerð verður líklega góð en júgurband þó ekki áberandi. Heildareinkunn 109.

Marmari 20011 frá Glitstöðum í Norðurárdal er undan Jörfa 13011 og móðurfaðir er Bambi 08049. Marmari kom fram á sjónarsviðið í haust með miklum látum enda hefur hann til að bera gott afurðamat og stórgóðu mati fyrir mjaltir og skap.

Eins og hann á kyn til er mat fyrir júgur- og spenagerð sérlega gott. Heildareinkunn 115.

Hengill 20014 frá Klauf í Eyjafirði, sonur Ýmis 13051 og móðurfaðir er Úlli 10089. Hengill sækir sína kosti einkum í júgur- og spenagerð ásamt mjög góðum mjöltum og frábæru skapi.

Afurðagetan verður líklega í góðu meðallagi og fituhlutfall í mjólk heldur neðan meðallag. Heildareinkunn 111.

Banani 20017 frá Vatnsenda í Eyjafirði er sonur Jörfa 13011 og móðurfaðir er Bambi 08049. Banani kom til notkunar í haust eins og stormsveipur. Eins og ætternið segir til um liggja styrkleikar Banana í frábærri júgur- og spenagerð auk þess sem vænta má stórgóðra mjalta og góðs skaps. Heildareinkunn 115.

Keilir 20031 frá Brúnastöðum í Flóa er undan Hálfmána 13022 og móðurfaðir er Bolti 09021. Styrkleika sína sækir Keilir í mjög gott fyrir júgurgerð, mjaltir og skap ásamt því að afurðamat er gott.

Rétt er að benda á að mat fyrir hæð dætra er sérlega hátt, nokkuð sem hann hefur frá afa sínum, Bolta 09021. Heildareinkunn 108.

Garpur 20044 frá Birtingaholti 1 í Hrunamannahreppi er sonur Jörfa 13011 og móðurfaðir er Bambi 08049. Það kemur ekki óvart ef horft er til ætternis að Garpur sækir sína kosti í júgur- og spenagerð en auk þess er mat hans fyrir afurðir, mjaltir og skap mjög gott. Fátt er um galla að segja enda er heildareinkunn 112.

Óðinn 21002 frá Birtingaholti 4 í Hrunamannahreppi er undan Kláusi 14031 og móðurfaðir er Úlli 10089. Þarna fer afurðanaut, mikil mjólkurlagni og hátt fituhlutfall í mjólk. Júgurgerð virðist góð, spenagerð mjög góð og mat fyrir skap er sérlega gott.

Mat um próteinhlutfall í mjólk er hins vegar neðan meðallags. Heildareinkunn 115.

Óðinn 21002 frá Birtingaholti 4 í Hrunamannahreppi er undan Kláusi 14031 og móðurfaðir er Úlli 10089.


Hákon 21007 frá Skeiðháholti 1 á Skeiðum er sonur Ýmis 13051 og móðurfaðir er Fossdal 10040. Þarna fer naut þar sem vænta má frábærrar júgurgerðar, júgurhreysti, mjalta og skaps.

Spenar aftur á móti stuttir og frekar grannir og afurðageta í góðu meðallagi þar sem próteinhlutfall er í lægri kantinum. Heildareinkunn 109.

Kaldi 21020 frá Hraunhálsi í Helgafellssveit er undan Risa 15014 og móðurfaðir er Foss 09042. Kaldi er yngsta naut sem komið hefur til notkunar fram að þessu án þess að teljast til óreyndra nauta, ekki enn liðin tvö ár frá fæðingu hans.

Kaldi skartar mjög góðu afurðamati ásamt góðu mati um júgur- og spenagerð og skap. Mjaltir verða líklega meðalgóðar og dætur hans ættu að verða stórar og háfættar kýr eins og ætterni hans segir til um. Heildareinkunn 111.

Eins og sjá má af þessari yfirferð er nautakosturinn afbragðsgóður og aldrei hafa eins ung naut verið í fullri notkun. Með því næst fram umtalsverð stytting ættliðabils sem aftur hraðar erfðaframförum verulega.

Þá styttist í að meirihluti íslenska kúastofnsins verði arfgreindur sem aftur styrkir nautsmæðravalið verulega og bætir enn í erfðaframfarirnar. Á næsta ári fara fyrstu kvígurnar, sem tekin voru sýni úr eftir að sýnataka varð almenn, að bera. Þar með mun hlutfall mjólkurkúa með erfðamat fara hratt hækkandi í stofninum.

Ég vil beina þeim tilmælum til þeirra sem ekki hafa enn hafið sýnatöku úr kvígunum að gera það hið fyrsta. Hér gildir hið fornkveðna með að allir taki þátt. Það sama á við um kynbótastarfið í heild sinni þar sem eitthvert stærsta vandamálið er lítil notkun sæðinga á kvígur.

Þetta leiðir af sér að kynbótastarfið er ekki keyrt á mestu mögulegum afköstum sem aftur dregur úr erfðaframförum og svo veldur þetta ákveðnum vandkvæðum í sæðingastarfseminni.

Með fækkun búa getur sá vandi komið upp að á einstaka svæðum verði fjárhagslegum grunni sæðinganna ógnað ef meginþorri búa á viðkomandi svæði notar ekki sæðingar á kvígur. Það er staða sem við viljum ekki að upp komi.

Ég óska ykkur svo gleðilegs og góðs sumars með þökk fyrir veturinn.

Skylt efni: erfðamat nauta

„Spjallað“ við kýr
Á faglegum nótum 9. janúar 2023

„Spjallað“ við kýr

Atferli, hegðun, útlit og ástand nautgripa getur gefið gríðarlega mikilvægar upp...

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands

Á aðalfundi Landssambands skógareigenda (LSE) sem haldinn var í Borgarnesi í maí...

Lífræn framleiðsla – nú er lag
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Lífræn framleiðsla – nú er lag

Á undanförnum árum hefur VOR látið til sín taka með ýmsum hætti til að hvetja ti...

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið
Á faglegum nótum 3. janúar 2023

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið

Meindýr eru skaðvaldar í garð- og skógrækt og óvelkomnir gestir sem flestir vild...

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna
Á faglegum nótum 2. janúar 2023

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna

Vinna við norrænu næringarráðin (NNR), sem Norræna ráðherra­nefndin heldur utan ...

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022
Á faglegum nótum 30. desember 2022

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022

Í heildina var útkoma lamba í haust góð. Meðalfallþungi á landinu var 16,6 kg og...

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?
Á faglegum nótum 28. desember 2022

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?

Hér á landi fellur til gríðarlegt magn af lífrænum úrgangi á öllum stigum samfél...

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs
Á faglegum nótum 27. desember 2022

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs

Nú þegar líður að áramótum og allir eru búnir að skila haustskýrslu til matvælar...