Garðyrkjufræðsla fyrir almenning hjá Endurmenntun LbhÍ
Á Garðyrkjuskólanum á Reykjum afla nemendur sérmenntunar í garðyrkjufræðum og útskrifast þaðan sem garðyrkjufræðingar af einni eða fleiri þeirra sex námsbrauta sem þar eru kenndar.
Áhugasamir garðeigendur, áhugafólk um trjárækt, náttúrunytjar og umhverfismál almennt, hafa að auki um áratuga skeið getað aflað sér aukinnar þekkingar á námskeiðum sem Garðyrkjuskólinn hefur haldið. Undanfarin 15 ár eða svo hefur námskeiðshaldið verið starfrækt undir hatti Endurmenntunardeildar Landbúnaðarháskóla Íslands, sem sinnir fjölbreyttri símenntun. Heildarfjöldi gesta á námskeiðunum hefur verið á annað þúsund síðastliðin ár.
Fjölbreytt fræðsla fyrir almenning
Sérstök námskeið eru ætluð starfandi bændum í hefðbundnum búgreinum en önnur höfða til almennings. Almenningsfræðslan tekur mið af þörfum þeirra sem vilja bæta við þekkingu sína á ýmsum sviðum garðyrkju, náttúrunytja, úrvinnslu heimaræktaðra matvæla og í umhverfismálum almennt. Námskeiðin eru haldin á Reykjum, á öðrum starfsstöðvum Landbúnaðarháskólans og víðar um land eftir atvikum. Þau eru mislöng, allt frá nokkurra klukkustunda fræðslu til dagslangra námskeiða og lengri námskeiðsraða. Um að ræða fyrirlestra í bland við verklegar æfingar.
Mörg stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til sí- og endurmenntunar af þessu tagi.
Úrval námskeiða
Dæmi um námskeið ætluð almenningi eru grunnnámskeið í blómaskreytingum, aðventuskreytingar, torf- og grjóthleðsla, náttúruvernd, ræktun og umhirða pottaplantna, ræktun og umhirða fjölærra garðblóma, berjaræktun, safnhaugagerð, matjurtaræktun í heimilisgróðurhúsum, trjárækt og umhirða skógarreita, notkun keðjusaga, tálgun og húsgagnagerð úr skógarefni, jurtalitun, ullar- og tóvinna, sveppir og sveppatínsla, kræklingatínsla og trjá- og runnaklippingar. Vert er að vekja athygli á að mörg stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til sí- og endurmenntunar af þessu tagi.
Fræðsla fyrir fagfólk
Sérhæfðari námskeið eru einnig í boði sem höfða meira til fagfólks, svo sem áburðargjöf í garðyrkju, trjáfellingar, meðferð plöntuvarnarefna, gerð grænna veggja, grunnnámskeið í efnafræði, endurheimt staðargróðurs, innviðir ferðamannastaða og námskeið fyrir umsjónarfólk skólagarða, borgarvistfræði og öryggi leiksvæða svo nokkur dæmi séu nefnd.
Kennarar með sérþekkingu
Sérfræðingar sem starfa við skólann sjá um mörg námskeiðanna en leitað er til fagfólks í hverri grein eftir því sem þörf er á. Þeir sem sækja þessa fræðslu geta því gert ráð fyrir að fá bestu fáanlegu upplýsingar á námskeiðunum. Endurmenntunardeilidin hefur einnig fengið hingað erlenda sérfræðinga og tekur þátt í alþjóðlegu samstarfi. Að auki er unnið náið með aðilum úr atvinnulífinu, td. Félag iðn- og tæknigreina, Iðuna fræðslusetur, jurtalitunarstofuna Hespuna og atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið.
Langar þig að fræðast?
Einfalt er að sækja um þátttöku í fræðslu á vegum Endurmenntunar LbhÍ. Á heimasíðunni endurmenntun.lbhi.is er gott yfirlit yfir þau námskeið sem í boði eru hverju sinni. Þar er hægt að sjá í stuttu máli efni námskeiðanna, hvenær þau eru haldin, lengd þeirra, kennara og fleira sem lýtur að skráningu á námskeiðin.
Umsjónarfólk endurmenntunarnámskeiðanna eru Björgvin Örn Eggertsson, Guðrún Lárusdóttir, Hinrik Þór Sigurðsson og Áshildur Bragadóttir.