Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 mánaða.
Smart #1 er nýr bíll sem veitir öðrum rafknúnum fólksbílum afar öfluga samkeppni. Allt útlit að innan sem utan er hannað af Mercedez-Benz, á meðan vélbúnaður og rafhlöður koma frá kínverska fyrirtækinu Geely.
Smart #1 er nýr bíll sem veitir öðrum rafknúnum fólksbílum afar öfluga samkeppni. Allt útlit að innan sem utan er hannað af Mercedez-Benz, á meðan vélbúnaður og rafhlöður koma frá kínverska fyrirtækinu Geely.
Mynd / ÁL
Líf og starf 3. október 2023

Afbragðsgóður Kína-Benz

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Bílategundin smart (nafnið á víst að vera í lágstöfum) er aftur mætt á sjónarsviðið, nú sem fimm sæta vandaður rafbíll á afar samkeppnishæfu verði. Þetta er miðlungsstór fólksbíll sem veitir Volkswagen Id.3, Tesla Model 3 og Nissan Leaf afar sterka samkeppni.

Þessi bíll er kominn langan veg frá því sem áður var. Smart bílar voru þekktir fyrir að vera tveggja sæta borgarbílar, það stuttir að hægt var að leggja þvert í stæði. Nú er smart af sömu stærð og venjulegir fólksbílar, eins og Volkswagen Golf. Þetta er ekki endilega ókostur, því þessi bíll hefur mikið og vandað innrarými og er enginn eftirbátur stærri lúxusbíla. Bíllinn í þessum prufuakstri var af gerðinni Pro+, sem þrátt fyrir að vera ódýrasta týpan er með öllum þeim búnaði sem mann vantar.

Nú er smart í helmingseigu Mercedes-Benz, á meðan kínverska bílasamsteypan Geely á hinn helminginn – sama fyrirtækið og á Volvo og Polestar. Við þróun þessa bíls sá Benz um allt sem kemur að útliti og útfærslu á innra og ytra byrði. Á meðan þróaði Geely drifrás, rafhlöður og undirvagn, sem á margt sameiginlegt með hinum nýja Volvo EX30. Sjálf framleiðslan á sér stað í Kína.

Að aftan minnir Smart á Mercedez-Benz EQB.

Mörg einkenni Mercedes-Benz

Að utan eru alls staðar mjúkar línur og ber bíllinn mörg sambærileg útlitseinkenni og stærri bifreiðar frá Mercedes-Benz. Þau eru skýrust þegar horft er aftan á bílinn, en hann virðist vera eins og smækkuð útgáfa af EQB.

Þegar inn er komið tekur á móti manni innrétting með miklum þokka. Þrátt fyrir að hart plast leynist víða er útlitshönnunin og notagildið næstum upp á tíu. Stýrið er með marga stillimöguleika og er mjúkt viðkomu, með tökkum fyrir helstu skipanir, eins og hraðastilli og hljóðstyrk.

Smart er fimm sæta og má segja að fjögur af þeim séu lúxussæti. Framsætin eru stillanleg með rafmagni og geta þeir leggjalengstu vel við unað. Einnig er mjóbaksstuðningur sem er hægt að stilla á fjölmarga vegu. Aftursætin eru afar rúmgóð, jafnvel þó framsætin séu í öftustu stöðu. Fram- og aftursætin eru í raun engu síðri en í stórum Benz, en önnur sætaröðin er til að mynda rúmbetri en sú sem er í Mercedez-Benz EQB.

Skottið er alla jafna ekkert sérlega rúmgott, en skotthlerinn er þó stór og flúttir við gólfið. Undir því er nothæf geymsla fyrir hleðslukapla og annað smádót. Þegar aftursætin eru lögð niður verða þau nær alveg flöt og rýmið því afar nytsamlegt. Jafnframt er önnur sætaröðin á sleða og því hægt að láta aftursætisfarþega fórna smá fótarými fyrir stærra skott.

Skottið er ekki mjög stórt en sætin leggjast nær alveg flöt.

Margmiðlunarskjár eins og snjallsími

Margmiðlunarskjárinn er stór og með mikla upplausn. Stýrikerfið er með því besta sem markaðurinn býður upp á. Í raun engu verra en í nýjustu snjallsímunum og mjög skamman tíma tekur að átta sig hvar allt er. Jafnframt gefur hann notandanum möguleika á að stilla og fikta í ótrúlegustu hlutum, eins og hversu hátt heyrist í stefnuljósunum. Valmyndin fyrir hita og blástur er alltaf sjáanleg neðst á skjánum og er miðstöðin snögg að hitna eða kólna.

Myndavélar eru að framan og aftan og undir báðum hliðarspeglum. Þær gera akstur í þröngum rýmum auðveldan, en þær sýna skýra og stóra mynd í öllum birtuskilyrðum. Þegar lagt er í stæði sést meira að segja hversu margir sentímetrar eru í fyrirstöðu.

Innréttingin er á pari við það sem þýskir bílaframleiðendur bjóða.

Fullkomlega lyklalaust aðgengi

Þegar kemur að akstri þarf notandinn einungis að vera með lykilinn í vasanum. Þegar gengið er að bílnum fer hann úr lás og um leið og sest er um borð og ýtt á hemlafetilinn er bifreiðin komin í gang. Gírstöngin er við stýrið og þarf ökumaðurinn einungis að ýta á D til að aka af stað. Þegar á leiðarenda er komið ýtir maður bara á P og stígur frá borði. Bíllinn sér sjálfur um að slökkva á sér og læsa öllum hurðum þegar hann skynjar að lykillinn er fjarri. Akstursupplifunin er með þeim hljóðlátustu og skákar smart mun stærri bílum. Því er hægt að slaka á og njóta tónlistar sem spilast úr fyrsta flokks hljóðkerfi. Rétt er að nefna sérstaklega hversu mjúk fjöðrunin er, sem er ólík mörgum nýrri rafmagnsbílum sem eiga það til að vera hastir, þar sem fjöðrunin þarf gjarnan að vera stíf til að bera þungar rafhlöðurnar.

Í innanbæjarakstri er smart léttur og lipur. Lítil fyrirhöfn er að snúa stýrinu og allt viðbragð er snöggt, enda úr 272 hestöflum að moða. Ef rafmagnsfóturinn (það sem áður nefndist bensínfótur) er settur í botn þrýstast þeir sem eru í bílnum aftur í sætin og næst hundrað kílómetra hraði á 6,7 sekúndum.

Með því að ýta á hnappa í stýrinu virkjast akstursaðstoðin, sem er meðal annars skynvæddur hraðastillir og akreinavari. Þessu tölvukerfi er vel hægt að treysta til að sjá um mest allan aksturinn á vegum þar sem vegmerkingar eru í lagi.

Aftursætin eru rúmgóð, jafnvel þó framsætin séu í öftustu stöðu.

Þrír ókostir

Eins og áður segir er smart með nánast allt upp á tíu, en það eru þrír smávægilegir ókostir sem rétt er að nefna. Fyrst er það inngjafarfetillinn sem er ekki upphengdur, heldur á löm í gólfinu. Þetta gerir hægri fótinn þvingaðan í akstri. Ókostur númer tvö eru stefnuljósin, en þau virðast geta hangið inni í óratíma, löngu eftir að búið er að beygja. Þriðji ókosturinn eru handföngin í hurðunum. Þau eru ankannalega formuð og of framarlega þannig að erfitt er að hafa stjórn á hurðinni þegar opnað er á þröngum bílastæðum – sérstaklega ef það er einhver vindur. Undirritaður endaði á að halda í brúnina á hurðavasanum til að missa dyrnar ekki í næsta bíl.

Tölur

Helstu mál í millímetrum: Lengd, 4.270; breidd, 1.822; hæð 1.636. Eigin þyngd 1.820 kílógrömm. Rafhlaða er 66 kílóvattstundir. Hægt er að hlaða með allt að 150 kílóvatta straum (með því besta sem býðst). Smart #1 Pro+ er afturhjóladrifinn, með 272 hestöfl og með drægni allt að 420 kílómetrum. Verðið á Pro+ er frá 5.990.000 krónum.

Að lokum

Þessi bíll er sá besti sem undirritaður hefur prufað lengi og fór langt fram úr öllum væntingum! Hér er tæki sem er vandað, hlaðið útbúnaði, vel útfært og á góðu verði.

Tekið skal fram að bíla- og vélaumboð borga hvorki nú né endranær fyrir umfjöllun hjá Bændablaðinu og þetta því einlægt álit blaðamanns.

Skylt efni: vélabásinn | prufuakstur

Safnað fyrir Einstök börn
Líf og starf 26. apríl 2024

Safnað fyrir Einstök börn

Stóðhestaveisla Eiðfaxa var haldin 13. apríl í HorseDay-höllinni á Ingólfshvoli ...

Umhverfisvænar blómaskreytingar
Líf og starf 25. apríl 2024

Umhverfisvænar blómaskreytingar

Náttúruleg fegurð var í fyrirrúmi á námskeiði um blómaskreytingar í Garðyrkjuskó...

Sumardagurinn fyrsti
Líf og starf 25. apríl 2024

Sumardagurinn fyrsti

Samkvæmt dagatalinu kemur sumarið 25. apríl. Bændablaðið leitaði því til lesenda...

Lóan
Líf og starf 23. apríl 2024

Lóan

Lóan er komin! Um þessar mundir eru heiðlóur að tínast til landsins en apríl er ...

Jöklapeysur úr íslenskum lopa
Líf og starf 23. apríl 2024

Jöklapeysur úr íslenskum lopa

Mjólkurfræðingurinn og frumkvöðullinn Pétur Pétursson setur nú á fót hönnunarsam...

Að höndla sér hross til reiðar
Líf og starf 22. apríl 2024

Að höndla sér hross til reiðar

Orðsins list kemur að þessu sinni úr Íslendingasögunum.

Sigurður í Pylsumeistaranum er Kjötmeistari Íslands
Líf og starf 16. apríl 2024

Sigurður í Pylsumeistaranum er Kjötmeistari Íslands

Sigurður Haraldsson í Pylsumeistaranum var krýndur Kjötmeistari Íslands í fagkep...

Paella með skelfiski
Líf og starf 16. apríl 2024

Paella með skelfiski

Paella er einfaldur réttur og til í ýmsum útgáfum, grunnurinn þó alltaf sá sami ...