Bryggjusauna nýopnuð á Ísafirði
„Að baða sig saman er andstæða hernaðar,“ segir Tuomas Toivonen, sem hannaði nýja íðilfagra sánu sem nú stendur hnarreist á einni af bryggjum bæjarins á Ísafirði og er öllum opin. Tuomas segir sánu einn af lyklunum til að gera loftslag norðurslóðanna ánægjulegt.
Eigendur og hvatamenn að Bryggjusaununni langaði að búa til samkomustað fyrir bæjarbúa og aðdráttarafl fyrir ferðamenn. Bryggjusaunan er vel búin almenningssána og opin frá morgni til kvölds allan ársins hring. Elena Dís Víðisdóttir, einn eigendanna, segir höfnina og bryggjurnar alltaf hafa verið líflegar og sánan sé óþekkt viðbót í hafnarlífið. Hún passi vel inn í ísfirskan lífsstíl og ferðaþjónustuna.
Andstæða við hernað
„Sána er margt. Í sögulegu samhengi er sána helgur staður til hreinsunar, fyrir heilsuna og til endurnýjunar, rými þar sem fæðing, hjónaband og greftrun líða hjá,“ segir Tuomas Toivonen. Hann er finnskur arkitekt, tónlistarmaður og bæði hannaði og rekur hina víðfrægu Kulttuuriisauna í Helsinki. Nú hefur hann hannað nýja sánu á Ísafirði, Bryggjusaununa, sem eins og heitið gefur til kynna er á bryggjunni.
„Frá sjónarhóli siðmenningarinnar eru almenningsböð líka borgaralegar stofnanir, allt frá helgiböðunum í Mohenjo Daro til rómversku baðhúsanna og evrópskra baðhúsa miðalda, til almenningssundlauga og líkamsræktarstöðva. Þetta eru staðir sem gera borgir líflegar,“ segir Tuomas. „Að baða sig saman er andstæða hernaðar. Það krefst trausts og samfélagslegs sáttmála.“
Samkomustaður og aðdráttarafl
Eigendur Bryggjusaununnar, þau Elena Dís, Tinna Rún, Gauti og Óli Rafn, kynntust almenningssánum við háskólanám í Noregi og Danmörku. „Okkur langaði að búa til samkomustað fyrir heimamenn og aðdráttarafl fyrir ferðamenn,“ segir Elena Dís. Ferlið hófst fyrir fjórum árum og hugmyndin fékk því góðan tíma til að þroskast og dafna.
Bryggjusaunan er almenningssána sem íbúar og ferðamenn hafa greiðan aðgang að. Hægt er að bóka sér stakt sæti eða leigja hana og hafa út af fyrir sig. Hún er ómönnuð, opnar snemma morguns og er opin fram á kvöld alla daga vikunnar allt árið um kring. „Við bjóðum upp á góða aðstöðu, búningsklefa, sturtu, gott útisvæði og aðgengi í sjóinn til kælingar,“ segir Elena Dís.
„Við unnum líka með Sonju Bent, sem gerði sápu fyrir okkur. Hún heitir Bryggja og sækir innblástur í hafnarlífið. Tjara, ryð og þang eru undirstöður ilmsins. Sápan hefur vakið mikla lukku en hún er þeim eiginleikum gædd að vera úr náttúrulegum ensímum sem leysast upp í sjónum og hefur engin skaðleg áhrif á umhverfið.“
Óþekkt viðbót í hafnarlífið
Elena segir undirstöðuna í kraftinum í uppbyggingu á Ísafirði hafa komið úr sjávarútveginum og tengdum greinum í gegnum tíðina. „Þess vegna hafa bryggjan og höfnin verið og eru líflegir staðir, þar er mikill erill. Bátar og skip koma og fara, með afla og annan varning og fólk á ferðalögum. Bryggjusauna býður upp á áður óþekkta viðbót í hafnarlífið, stað til þess að hægja á sér, staldra við og láta sér líða vel.“
Elena segir viðbrögðin hafa verið vonum framar og þau séu gríðarlega þakklát fyrir viðtökurnar. Hún segir bygginguna tilkomumikla og staðinn merkilegan í hugum bæjarbúa, hún sé í senn í hjarta bæjarins en þar sé hægt að vera út af fyrir sig.
Byggingin er úthugsuð
Hönnun byggingarinnar er eftirtektarverð, sérlega fagurlega útfærð fyrir þennan sérstaka stað, eina af bryggjum bæjarins sem eru þónokkrar. Línurnar eru fremur einfaldar og dökkar útlínurnar ber fagurlega við umhverfið. Bryggjusaunan er vel sýnileg frá bænum og verður vafalaust kennileiti þegar fram líða stundir.
Byggingin sver sig í ætt við aðrar byggingar bæjarins, er dæmigerð tjörguð timburbygging og sækir innblástur í elstu húsin á eyrinni, með bröttu þaki og tjörunni, svo sem Tjöruhúsið hvaðan ófáir gestir hafa farið saddir og himinsælir frá.
Gluggarnir eru úthugsaðir svo gestir geta notið útsýnis um stóra glugga og minni kýrauga. „Byggingin er margræð, nútímaleg og forn í senn,“ segir Tuomas. „Gufubaðsrýmið sjálft er einfalt, hæð bekkjanna og þrep hönnuð til að halda hitanum þar sem baðgestirnir eru.“
Óhaggandi kyrrð
„Sánan passar einstaklega vel inn í ísfirskan lífsstíl og ferðamennskuna,“ segir Elena. Ísafjörður er skíða- og tónlistarbær og aðspurð um hvernig sánan passar inn í bæjarandann segir hún hana vera tilvalda viðbót við alla útivist, „ekki síst skíði, þar er hægt að láta líða úr sér og ná í sig yl eftir daginn. Þar er einstaklega gott að sitja í sínum eigin hugsunum eða á spjalli við aðra og útsýnið yfir bæinn, fjöllin og pollinn virkar í senn dáleiðandi og veitir innblástur. Stórbrotið umhverfið sem útsýnisgluggar sánunnar gera góð skil verður áþreifanlegt en á sama tíma snertir það mann ekki, hvernig sem veður er eða vindar blása er sánan fastur punktur, fyrirsjáanlegur hiti og óhaggandi kyrrð.“
Loftslag norðurslóðanna ánægjulegt
„Sána er einn af lyklunum að því að gera kalt loftslag norðurslóðanna ánægjulegt,“ segir Tuomas. Hann segir að í Finnlandi sé gnægð hitans í sánunni afleiðing af skógunum, timbur til bygginga og viður til brennslu.
Hvað athöfnina sjálfa varðar, að fara í sánu, segir Tuomas nútímagufubaðið vera rými fyrir kyrrð og hugleiðslu, tækifæri til að hlusta á líkamann, dvelja í líðandi stund án áreitis eða tækja. „Rými til að fara í annað líkamlegt ástand og önnur efnaskipti þar sem hiti er framkallaður í líkamanum og ástandinu stjórnað með gufunni, kælingu og að hita sig upp aftur.“ Hann segir að friðinn í sánunni eigi að virða, þar eigi ekki að vera hávaði, hlátrasköll, illa talað um nokkurn mann né etið eða drukkið. Hann segir að þennan frið eigi að virða, hvort heldur er í einrúmi eða með öðrum.
Tuomas segir súrefnisflæðið gott í sánunni, „efniviðurinn er hreinn og fjarvera hvers kyns hluta leyfa augum, huga og líkama að hvílast. Fjörðurinn, fjöllin, himinninn og spegilmynd hans á haffletinum og svipmynd af bænum gerir Bryggjusaununa að stað sem þig langar að koma aftur til.“
