Freyvangsleikhúsið frumsýnir Útsynning
Mynd / Bubbi
Menning 5. október 2026

Freyvangsleikhúsið frumsýnir Útsynning

Höfundur: Sigrún Pétursdóttir

– Hefur þig einhvern tíma langað að vita hvað gerist baksviðs fyrir sýningu?

Freyvangsleikhúsið í Eyjafirðinum hefur verið fastur liður í tilveru margra, enda sífelld uppspretta skemmtilegheita, og nú 9. október nk. fer á fjalirnar verk sem enginn má missa af. Um ræðir frumsaminn gamanleik sem gerist í rauntíma og fjallar um leikhóp í áhugaleikhúsi sem er að setja upp leikritið Cloud nine eftir Caryl Churchill.

Jóhanna Ingólfsdóttir.

Fá leikhúsgestir Freyvangs hins vegar ekki að njóta Cloud nine, heldur fylgjast með leikurunum í búningsklefanum og hvernig stemningin er þegar þeir standa ekki á sviði. Hún getur eðilega orðið svolítið upp og ofan, enda misjafnt þolgæði fyrir lykt, þrengslum, hávaða eða skipulagi, auk þess sem það getur líka alveg riðlað dýnamíkinni þegar einhver sem er ekki partur af hópnum birtist og vill fara að stjórnast í hvernig hlutunum er háttað. Einnig getur hiti færst í leikinn þegar óteljandi spurningum er ósvarað, hvers vegna er hitt búningsherbergið ekki í notkun, hvað er málið með Geirmund húsvörð og er von til þess að sýningarstjórinn finni meiri klósettpappír?

Höfundur Útsynnings fer á kostum bæði á og utan sviðs

Höfundur verksins, Hjálmar Arinbjarnarson, hefur sjálfur staðið á sviði áhugaleikhúsanna í áratugi og m.a. skrifað leikþáttinn „Hlé!“, sem sýndur var í Borgarleikhúsinu haustið 2007 í tengslum við stuttverkahátíðina Margt smátt og fékk lof fyrir, enda hnyttið og skemmtilegt verk.

Hjálmar Arnibjarnarson.

Segir formaður Freyvangsleikhússins, Jóhanna Ingólfsdóttir, frá því að auk þess að standa á sviði, iðulega við mikinn hróður, sé Hjálmar mjög skapandi, magnaður penni. Hann hafi, til viðbótar við Útsynning, skrifað ýmislegt fleira sem ratað hafi á svið, en nú sé þetta hans fyrsta verk í fullri lengd.

Leikritið Útsynningur er gamanleikrit, mikið um að vera og þrettán leikarar á sviði. „Hjálmar hefur haft leikritið lengi í deiglunni, skrifaði fyrst stutt verk sem fór á svið Borgarleikhússins árið 2007, og það verk, Hlé, gerist í hléinu á þessu verki! Það er ekki partur af Útsynningi, heldur alveg sér verk sem áhorfendur fá ekki að sjá í þetta skiptið, “ segir Jóhanna hlæjandi.

„Hjálmar hefur unnið við að semja Útsynning í nokkurn tíma, en sendi mér verkið svo til yfirlestrar og hnoðunar ef svo má segja. Ég fékk vilyrði fyrir að það færi á svið núna með því skilyrði að ég myndi ekki sleppa aðventuverkunum,“ segir Jóhanna, en hún sér um leikstjórn verksins, nú hennar fyrsta í fullri lengd. Jóhanna sjálf hefur nóg á prjónunum, en m.a. hefur hún leikstýrt barnaverkum fyrir jólin, síðastliðin fjögur ár hjá Freyvangi.

Hún kemur því að að höfundurinn Hjálmar sé sjálfur leikari á sviði, og skemmtilegur snúningur sé á þessu öllu; árið 1993 stóð hann á sviði fyrir hönd Verkmenntaskólans í verkinu Cloud nine, sem í þýðingunni kallast „Fyrir austan mána“... þannig að hann hefur leikið í leikritinu sem þau eru að leika ... í Útsynningi. Ef þessi snúningur skilst lesendum!

Kemur fram í Morgunblaðinu laugardaginn 13. mars 1993 að þá hafi verkið verið sýnt í fyrsta skipti hérlendis. „Leikklúbburinn Locos í Verkmenntaskólanum á Akureyri frumsýnir á mánudagskvöld í fyrsta sinn á Íslandi leikritið „Fyrir austan mána“ (Cloud nine) eftir Caryl Churcill í þýðingu og leikstjórn Jóns Bjarna Guðmundssonar, leikara hjá Leikfélagi Akureyrar.“

Geirmundur húsvörður tryllir lýðinn

Greinilegt er að margt hæfileikafólk tengist Freyvangsleikhúsinu, og nefnir Jóhanna að í verki Hjálmars verði frumsamið lag eftir Hafþór Önundarson tónlistarmann.

„Útsynningur gengur svolítið út á að húsvörðurinn Geirmundur, sem aldrei sést í persónu þótt mikið sé talað um hann, hafi verið í hljómsveit á árum áður og hafi fyllt hitt búningsherbergið af hljómsveitargræjum, hamlað þannig leikurunum notkun og því hafi þeir einungis afnot af einum búningsklefa. Hafþór var fenginn til að semja lokalag sýningarinnar – þetta eina fræga sem Geirmundur húsvörður var þekktur fyrir á sínum tíma! Þannig það mun hljóma, þetta one hit wonder, sem hljómsveit Geirmundar húsvarðar var þekkt fyrir, í lok sýningarinnar. Þetta er alveg stórskemmtilegt verk,“ segir Jóhanna hlæjandi og bætir því við að eins og er séu áætlaðar sex sýningar, eingöngu í október, en frumsýningin verður þann 9. október. Miðar fást á Tix.is og í síma 857-5598.  

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 24. september 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vogin blómstrar í vinnu eða skóla og finnur fyrir mikilli hvatningu til að klára...

Fjögur sunnudagsskákmót
Líf og starf 23. september 2026

Fjögur sunnudagsskákmót

Sunnudaginn 30. ágúst síðastliðinn var mögulega einhvers konar skákmet slegið. G...

Græðgin er óseðjandi púki
Líf og starf 23. september 2026

Græðgin er óseðjandi púki

Veðrið var gott og sumarið enn ekki búið. Sviðið er sumarbridds í Síðumúlanum. M...

Eitt stærsta skordýrasafn Austurlands
Líf og starf 22. september 2026

Eitt stærsta skordýrasafn Austurlands

Páll Halldór Benediktsson, bóndi á Hákonarstöðum á Efri-jökuldal, á stórt safn f...

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 21. september 2026

Stjörnuspá vikunnar

Meyjan tekur nú fyrstu skref sín full sjálfstrausts inn í nýtt tímabil. Hún má t...

Vísnahornið
Líf og starf 21. september 2026

Vísnahornið

Um allt land eru göngur og réttir, Philip Vogler, hefur lengi hjálpað til við sm...

Heimsókn úr öðrum heimi
Líf og starf 21. september 2026

Heimsókn úr öðrum heimi

Hann klæddi sig og fór að öllu hljóðlega enda enn mið nótt. Þau höfðu ekki orðið...

Með smjörkveðju!
Líf og starf 20. september 2026

Með smjörkveðju!

Saga smjörs sem slík hefur hér áður verið rakin á handahlaupum, en ekki allir vi...