Vísnahornið
Líf og starf 21. september 2026

Vísnahornið

Höfundur: Magnús Halldórsson

Um allt land eru göngur og réttir, Philip Vogler, hefur lengi hjálpað til við smölun og skýrir kynslóðaskipti með braghendur.

Ungur lengi leika fékk ég lausum hala

en nýjan dreng þarf nú að ala,

nýtan engi og fjöll að smala.


Davíð Hjálmar Haraldsson þekkir haustannir og val á kynbótahrútum og hér koma nokkrar hrútavísur:

Þokki löngum þögull er

og þekkir góða siðu,

lagðmjúkur og liðasver.

Laus er hann við riðu.


Gáskafullan veit ég Val

er vorið hlær og angar

til gamans hann á Glerárdal

grimma refi stangar.


Næturkaldan nóvember,

nýársdag, á jólum:

Kringum ærnar Ýmir fer

eins og sé á hjólum.


Hérna eru tvær stökur eftir norska skáldið Aasmund Olavson Vinje. Úr kvæði sem Magnús Ásgeirsson, frá Reykjum í Lundarreykjadal, sá mikli þýðandi, snéri á góðan veg á íslensku:

Mér þótti slæmt hve forðum fór,

er fyrst ég valt af stokki, é

g þóttist fimur, frækn og stór,

en fann að ég var hnokki.


Mér þótti slæmt er komst á kjól

og kallast vildi maður,

og fyrst mér unni falda sól

að finna, að það var daður.


Magnús Ásgeirsson var þekktur af hnyttnum þýðingum og einnig sínum vísum. Þessi gæti átt við í fjölbýli:

Á loftinu er kæti og kliður

þótt klukkan sé orðin 12.

Og þá lýstur í þanka niður

að þak mitt er annars gólf.


Benedikt Valdimarsson var fæddur á Þröm í Garðsárdal í Eyjafirði. Þessa lýsingu munu gangnamenn kannast við:

Blóm á akri blunda rótt.

Björkin nakin skelfur.

Hljóðnar klakið fugla fljótt.

Flestar klakast elfur.


Smalar á fjöllum munu eflaust þekkja slíka lýsingu sem Benedikt yrkir um, hér í annarri snilldar hringhendu:

Fýkur blað um foldar kinn.

Frostið skaðar brumið.

Hörpu glaði heimurinn

hefur staðar numið.


Trúlega vita flestir um hvern Benedikt yrkir hér:

Enn er lundin ung og spræk,

um það ber ég sanninn.

Dái ég frá Djúpalæk

drenginn, skáldið, manninn.


Matthias Jochumsson, þjóðskáldið okkar, orti margt eins og menn vita. Um Bólu-Hjálmar sem fæddur var fyrir 230 árum orti skáldið þessa:

Bólu-Hjálmar bjó í skugga

böls og gremju. Hveljur saup.

Skjól í hálmi, skarni og frugga

skáldmæringur fékk í kaup.


Ekki var Hjálmar sáttur við alla presta, eins og kunn vísa leiðir í ljós, en letragrér mun vera prestskenning:

Þarna liggur letragrér

lýðir engir sýta.

Komi nú allir hrafnar hér

hans á leiði að skíta.


Einhverjir munu hafa farið með þessa vísu Bólu-Hjálmars í huganum eftir úrslitin í atkvæðagreiðslunni á dögunum:

Mínir vinir fara fjöld,

feigðin þessa heimtar köld,

ég kem eftir, kannske í kvöld,

með klofinn hjálm og rofinn skjöld,

brynju slitna, sundrað sverð og syndagjöld.


Umsjón: Magnús Halldórsson

mhalldorsson0610[hjá]gmail.com

Skylt efni: vísnahornið

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 8. október 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vogin má eiga von á, nú með nýju tungli, að reynt verði á samskipta- og/eða sams...

Ungir vinna Haustmótið
Líf og starf 7. október 2026

Ungir vinna Haustmótið

Haustmót Taflfélags Reykjavíkur kláraðist í síðustu viku með öruggum sigri Jósef...

Ásaspurning – en hvað er tromp?
Líf og starf 7. október 2026

Ásaspurning – en hvað er tromp?

Þegar ég lærði bridds fyrir hálfri öld voru ásarnir í spilinu bara fjórir. Og of...

Vönduð óþekkt
Líf og starf 6. október 2026

Vönduð óþekkt

Haustið er mætt og það þýðir að nú er kominn tími til að stokka aðeins upp í fat...

Lausn á vísnagátunni úr 17. tbl.
Líf og starf 6. október 2026

Lausn á vísnagátunni úr 17. tbl.

Hér er lausnin á vísnagátunni sem birtisti í 17. tölublaði Bændablaðsins.

Hugrekki persónulegrar tjáningar
Líf og starf 6. október 2026

Hugrekki persónulegrar tjáningar

Safnasafnið, vel kynnt höfuðsafn íslenskrar alþýðulistar, hefur um áraraðir unni...

Horfinn er séra Oddur
Líf og starf 6. október 2026

Horfinn er séra Oddur

Sveinn Pálsson, náttúrufræðingur og læknir, hélt dagbók öll sín fullorðinsár og ...

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 24. september 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vogin blómstrar í vinnu eða skóla og finnur fyrir mikilli hvatningu til að klára...