Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Undir viljayfirlýsingu um fjármögnun og undirbúning að menningarhúsi á Sauðárkróki  rituðu Lilja Dögg Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra og Stefán Vagn Stefánsson, formaður byggðarráðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar.
Undir viljayfirlýsingu um fjármögnun og undirbúning að menningarhúsi á Sauðárkróki rituðu Lilja Dögg Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra og Stefán Vagn Stefánsson, formaður byggðarráðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar.
Fréttir 27. júní 2018

Viðbygging og endurbætur á Safnahúsi Skagfirðinga

Höfundur: Margrét Þóra Þórsdóttir
Viljayfirlýsing um fjármögnun og undirbúning að menningarhúsi á Sauðárkróki var undirrituð á atvinnulífssýningu sem haldin var á Sauðárkróki nýlega. Undir yfirlýsinguna rituðu Lilja Dögg Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra og Stefán Vagn Stefánsson, formaður byggðarráðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar.
 
Í viljayfirlýsingunni felst að miðað er við að viðbygging og endurbætur á Safnahúsi Skagfirðinga rúmi bókasafn, skjalasafn og aðstöðu fyrir fræðastarfsemi, auk listasafns, leikhússaðstöðu og langþráð varðveislurými. Kostnaðarskipting verður með þeim hætti að hlutur ríkisins verður 60 hundraðshlutar á móti 40 hundraðshlutum, líkt og við byggingu annarra menningarhúsa á landsbyggðinni. Mennta- og menningarmálaráðuneytið mun gera tillögu um að fjárheimildir vegna verkefnisins verði lagðar fram sem hluti af frumvarpi til fjárlaga ársins 2020 og að gert verði ráð fyrir því í fjármálaáætlun 2020–2024 enda sé hlutverk stjórnvalda m.a. að skapa skilyrði fyrir fjölbreytni, sköpun og frumkvæði á sviði lista og menningararfs.
 
Forsagan nær til ársins 1999
 
Forsaga málsins er sú að árið 1999 tók ríkisstjórn Íslands ákvörðun um að veita stofnstyrki til uppbyggingar menningarhúsa utan höfuðborgarsvæðisins með það að markmiði að bæta þar aðstöðu til menningar- og listastarfsemi.
 
Á grunni þeirrar ákvörðunar undirrituðu Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þáverandi menntamálaráðherra, Gísli Gunnarsson, þáverandi forseti sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Agnar H. Gunnarsson, oddviti Akrahrepps, samkomulag árið 2005 um uppbyggingu menningarhúss í Skagafirði.
 
Slegið á frest vegna erfiðleika í efnahagslífi
 
Samkomulagið var byggt á niðurstöðum samstarfshóps skip­uðum fulltrúum menntamála­ráðuneytis og sveitarfélaganna í Skagafirði. Annars vegar var gerð tillaga um endurbætur á félagsheimilinu Miðgarði, þar sem áhersla yrði lögð á tónlistarflutning, stærri hátíðir og ráðstefnuhald. Var endurbætt hús, Menningarhúsið Miðgarður, formlega vígt við upphaf Sæluviku Skagfirðinga í apríl 2009. Hins vegar var gerð tillaga um að byggt yrði við núverandi Safnahús Skagfirðinga á Sauðárkróki og að þar yrði menningarmiðstöð með áherslu á fræðastörf og sýningar, sem hýsi m.a. sýningarsal, bókasafn, listasafn og skjalasafn. Vegna efnahagserfiðleika var öllum undirbúningi og framkvæmdum þessa síðari áfanga slegið á frest um nokkurra ára skeið að ósk mennta- og menningarmálaráðuneytisins en með undirritun ofangreindrar viljayfirlýsingar er undirbúningur hans hafinn á ný. 
Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...