Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 9 ára.
Til stóð að senda fyrstu uppskeru frá garðyrkjustöðinni á Brúnalaug á markað síðastliðinn föstudag. Eldur kom upp nóttina á undan og gerði þær áætlanir að engu. Hér er unnið að björgunarstörfum.
Til stóð að senda fyrstu uppskeru frá garðyrkjustöðinni á Brúnalaug á markað síðastliðinn föstudag. Eldur kom upp nóttina á undan og gerði þær áætlanir að engu. Hér er unnið að björgunarstörfum.
Mynd / MÞÞ
Fréttir 8. apríl 2015

Uppbygging hafin hjá Garðyrkjustöðinni Brúnalaug

Höfundur: Margrét Þóra Þórsdóttir
Tjón af völdum eldsvoða sem varð í garðyrkjustöðinni Brúnalaug í Eyjafjarðarsveit í liðinni viku hleypur á tugum milljóna. Hreinsunarstarf hefur staðið yfir síðustu daga og uppbygging er hafin. Hjónin Anna Sigríður Pétursdóttir og Gísli Hallgrímsson hafa rekið garðyrkjustöðina frá árinu 1986 eða í tæp 30 ár.
 
Þau segja áfallið vissulega gríðarlegt, mikið starf sé fram undan við hreinsun, tekjutap sé fyrirsjáanlegt, en þau ætli á næstu mánuðum að einbeita sér að uppbyggingu stöðvarinnar. 
 
Eldsupptök eru enn ókunn, en Rannsóknarlögreglan á Akureyri fer með rannsókn málsins.  Grunur beinist að því að bilun hafi orðið í rafmagnsbúnaði.
 
Sá eldsúlurnar standa upp í loft
 
Anna vaknaði aðfaranótt föstudagsins 20. mars,  gekk að vesturglugga íbúðarhúss síns og sá þá eldsúlur stíga til himins upp frá gróðurhúsunum og greinilegt að þau stóðu í ljósum logum. Slökkviliðið á Akureyri var  þegar kallað á staðinn, en tæplega 20  kílómetra leið er þaðan og að  Brúnalaug. Aðstoð fékkst frá Slökkviliði Akureyrarflugvallar og eins tóku félagar í björgunarsveitinni Dalbjörgu þátt í verðmætabjörgun á vettvangi að slökkvistarfi loknu. 
 
Um er að ræða tvö samliggjandi gróðurhús, hið stærra er tæplega 600 fermetrar að stærð en það minna um 300 fermetrar. Á milli þeirra var bygging þar sem allur stjórnbúnaður var hýstur m.a. sá sem stjórnar vökvunarbúnaði, búnaði vegna kolsýru sem notuð er við ræktunina, stjórnbúnaður fyrir ljós,  vigtar, pökkunarvél og heilmikið af umbúðum. Allt varð þetta eldinum að bráð.  Sem og einnig  varahlutir, tæki og tól af ýmsu tagi sem nýtt voru vegna starfseminnar.
 
„Við höfðum undanfarin ár komið okkur upp góðum og öflugum búnaði í garðykjunni en það má segja að við höfum hrapað allt aftur til ársins 2006 hvað varðar tækjabúnað vegna ræktunarinnar,“ segir Anna Sigríður.
 
Gleðidagur breyttist í martröð
 
Áhersla hefur verið lögð á paprikuræktun, um 1700 plöntur voru í stærra húsinu og til stóð að hefja uppskerustörf á föstudag í liðinni viku. „Við ætluðum að fylgjast með sólmyrkvanum og hefjast síðan handa og koma fyrstu sendingunni okkar á markað þann daginn. Þetta átti svo sannarlega að vera gleðidagur, en hlutirnir fóru heldur betur á hvolf og dagurinn varð líkastur martröð. Fyrir utan eignatjón og fyrirsjáanlegt tekjutap er þetta líka mikið tilfinningatjón, það er afskaplega erfitt að horfa upp á þessa eyðileggingu og allt það starf sem hér hafði verið unnið fara í súginn,“ segir Anna Sigríður. 
 
Gerðu ráð fyrir að senda 6 tonn á markað á næstu mánuðum
 
Áætlanir gerðu ráð fyrir að uppskera næmi um 6 tonnum næstu þrjá mánuði, þ.e. á tímabilinu frá lokum mars og fram í júní. „En það er alveg ljóst að uppskera þessa mánuði verður lítil sem engin,“ segir Anna Sigríður. Þegar er búið að sá fyrir nýrri uppskeru og hennar má vænta á markað í júlí. Ársframleiðsla á Brúnalaug hefur á liðnum árum numið um 23 tonnum.
 
Tjón hefur ekki að fullu verið metið, en Anna Sigríður segir að það nemi tugum milljóna, slík sé eyðileggingin. Stöðin er tryggð, en á þessari stundu er ekki ljóst að hve miklu leyti tjónið fæst bætt. „Það eru alls konar óvissuþættir vomandi yfir okkur og við vitum ekki strax hvernig þetta fer allt saman. Það þýðir hins vegar ekki að gefast upp og við munum einbeita okkur að hreinsunarstarfi og uppbyggingu næstu mánuði,“ segir hún.
 
Mikil samkennd
 
Anna Sigríður segir ómetanlegt að finna þann stuðning sem sveitungar, vinir og vandamenn hafi sýnt frá því eldurinn kom upp. Nágrannar hafi margir hverjir komið og aðstoðað við hreinsunarstarfið og kvenfélagskonur komu færandi hendi með mat og kaffi handa hjálparmönnum daginn eftir brunann þegar ekki var rafmagn heima við. Síðan hafi menn og konur, nágrannar og vinir komið færandi hendi. „Það er dásamlegt að finna fyrir þessari samkennd meðal nágranna sinna og sveitunga, það hleypir í mann auknum krafti á erfiðum tímum og fyrir það viljum við þakka kærlega.“

10 myndir:

Skylt efni: Eldsvoði

Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...