Landnýting og innflutt lifandi dýr í Útvarpi Bændablaðsins
Ágúst Sigurðsson, forstöðumaður Lands og skógar, og Halldór Runólfsson, fyrrverandi yfirdýralæknir, eru gestir í þrettánda þætti Útvarps Bændablaðsins.
Í fyrri hluta þáttarins er rætt um landrækt á Íslandi, stöðu hennar og framtíð, en í seinni hlutanum er umfjöllunarefnið innflutningur lifandi dýra og samningsmarkmið sem um slíkan innflutning þyrfti hugsanlega að setja í mögulegum viðræðum um inngöngu í Evrópusambandið.
Hér er hægt að hlusta á þáttinn.
