Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 9 ára.
Heimilisfólk í Hlíðartúni í Njarðvík, Margrét B. Hjarðar, Bóas Jakobsson og Jakob Sigurðsson. Myndin var tekin í haust þegar blaðamaður Bændablaðsins  var þar í heimsókn.
Heimilisfólk í Hlíðartúni í Njarðvík, Margrét B. Hjarðar, Bóas Jakobsson og Jakob Sigurðsson. Myndin var tekin í haust þegar blaðamaður Bændablaðsins var þar í heimsókn.
Mynd / MÞÞ
Fréttir 23. febrúar 2015

Spiluðum í lopapeysum við kertaljós

Höfundur: Margrét Þóra Þórsdóttir
„Það brunnu nú upp ansi mörg kerti hjá okkur, en það var í lagi því nóg var til,“ segir Jakob Sigurðsson sem býr ásamt konu sinni, Margréti B. Hjarðar, og Bóasi, syni þeirra, að Hlíðartúni í Njarðvík.  
 
Þar reka þau sauðfjárbú, eru með nautaeldi og starfrækja ferðaþjónustu.  Rafmagnslaust varð í 10 húsum í tæpa tvo sólarhringa á leggnum frá Borgarfirði eystra og að Njarðvík í haust, en einungis er búið í fjórum þeirra. Spennir í jarðstreng sem liggur frá Borgarfirði og yfir í Njarðvík gaf sig af einhverjum ástæðum.
 
Dúða sig vel undir sængina
 
„Það væsti ekki um okkur, íbúðarhúsið er vel einangrað og við fundum ekki fyrir miklum kulda, vorum bara vel klædd, lopapeysur komu að góðum notum og svo var bara að dúða sig vel undir sængina,“ segir Jakob. Þá höfðu þau gaseldavél innan seilingar og frá henni barst ágætis hiti þegar kvöldmaturinn var eldaður.
 
„Bóas fékk okkur til að spila, við sátum við það í kertaljósinu svo það má segja að við höfum fengið forskot á jólastemninguna og það var alveg ljómandi gott,“ segir hann.
 
Sat yfir fjárbókinni
 
Margrét sat yfir fjárbókinni í tölvunni þegar rafmagnið fór af um kl. 21 á sunnudagskvöld. Tölvan fór í gang að nýju og hafði ekki orðið fyrir skemmdum. Mestar áhyggjur segir Jakob að þau hafi haft af rafmagnstækjum, ísskáp og frystikistu og matvælum sem þar voru geymd, en svo virðist sem allt hafi sloppið nokkuð vel. „Við gáfum skepnum bara einu sinn á dag og þá vel, það var svo mikið myrkur og erfitt að paufast niður í hús. Þeim virðist ekki hafa orðið meint af og eru vel haldnar,“ segir Jakob. Engir gestir voru á vegum ferðaþjónustunnar á þeim tíma sem rafmagnsleysið varði.
Þakplötur fuku af hlöðu
 
Í óveðrinu sem geisaði fyrr í mánuðinum fuku þakplötur af hlöðunni við bæinn og voru félagar í björgunarsveitinni Sveinungum kallaðir til aðstoðar.  
 
„Það fuku þarna nokkrar plötur út í veður og vind og til allrar hamingju ollu þeir ekki neinu tjóni, en slíkt hefði vel getað orðið.  Þannig að það má segja að við höfum sloppið vel frá þessu öllu saman,“ segir Jakob.

2 myndir:

Skylt efni: rafmagnsleysi

Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...