Sigurbjörg Ottesen í formannsframboð
Sigurbjörg Ottesen býður sig fram til formanns deildar nautgripabænda Bændasamtaka Íslands en kosið verður um nýjan formann deildarinnar á deildarfundi nautgripabænda þann 24. mars nk. Rafn Bergsson er fráfarandi formaður nautgripabænda en hann hefur gegnt embættinu síðastliðinn þrjú ár.
Sigurbjörg er nautgripabóndi á Hjarðarfelli í Eyja- og Miklaholtshreppi á Snæfellsnesi. Hún er gift Gunnari Guðbjartssyni og eiga þau fjögur börn. Sigurbjörg var kosin í stjórn LK árið 2020 og hefur setið í stjórn deildar nautgripabænda BÍ síðan gömlu búgreinafélögin sameinuðust undir Bændasamtökin. Síðastliðin tvö ár hefur hún setið sem varaformaður nautgripabænda á sama tíma og hún hefur setið í stjórn Bændasamtaka Íslands. Formaður situr til tveggja ára í senn.
Sigurbjörg tilkynnti um framboð sitt í færslu á Facebook þar sem hún segir ástæðuna vera einfalda og skýra: „Ég trúi því að íslensk nautgriparækt eigi bjarta framtíð – ef við stöndum saman, tölum skýrt og tökum sjálf virkan þátt í mótun greinarinnar.“
Í færslunni segir hún ennfremur meðal annars:
„Nautgriparækt er ekki bara atvinnugrein. Hún er ein grunnstoða í íslenskum landbúnaði, í fæðuöryggi þjóðarinnar og byggðar um allt land. Nautgriparæktin byggir á kynslóðum þekkingar, seiglu og ábyrgðar – en hún stendur líka frammi fyrir raunverulegum áskorunum. Við búum við aukinn kostnað, kröfur um meiri hagkvæmni, aukna umhverfisábyrgð og hraðar breytingar í samfélaginu og neyslumynstri. Þetta eru ekki nein smámál fyrir okkur að etja við.“
