Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Riðutilfelli í Svarfaðardal
Fréttir 18. desember 2017

Riðutilfelli í Svarfaðardal

Matvælastofnun tilkynnti um það í morgun að riðuveiki hafi verið staðfest á búi í Svarfaðardal.

Þar kemur fram að þetta sé fyrsta tilfellið sem greinist á Norðurlandi eystra frá 2009 en þá greindist riðuveiki á bænum Dæli í Svarfaðardal. Matvælastofnun vinnur nú að öflun upplýsinga og undirbúningi aðgerða.

„Riðan greindist í sýni úr kind frá bænum Urðum í Svarfaðardal, þar sem fjöldi fjár er um hundrað. Sýnið var tekið samkvæmt skimunaráætlun Matvælastofnunar við slátrun í haust. Fjögur önnur sláturhúsasýni frá búinu voru einnig rannsökuð og reyndust neikvæð. Ekki hafði orðið vart neinna sjúkdómseinkenna. Sýnin voru rannsökuð á Tilraunastöð Háskóla Íslands að Keldum. Mikill fjöldi sýna er tekinn við haustslátrun og er því enn unnið að rannsókn á þeim.

Bærinn er í Tröllaskagahólfi og þar hefur riðuveiki komið upp á fimm búum á undanförnum 20 árum en á þessu búi greindist veikin síðast árið 2003. Riðuveiki hefur komið upp á mörgum bæjum í Svarfaðardal í gegnum tíðina og má því segja að um þekkt riðusvæði sé að ræða.

Þetta er fyrsta tilfelli riðuveiki sem greinist á árinu en í fyrra greindust tvö tilfelli á Norðurlandi vestra. Fram til ársins 2010 greindist riða á nokkrum bæjum á landinu á hverju ári en engin tilfelli hefðbundinnar riðu greindust á árunum 2011-2014. Riðan er því á undanhaldi en þetta sýnir að ekki má sofna á verðinum. Á undanförnum árum hafa sýni verið tekin við slátrun úr u.þ.b. þrjúþúsund kindum á ári.

Jafnframt hafa bændur verið hvattir til að senda hausa til Keldna af fé sem drepst eða er lógað heima vegna vanþrifa, slysa eða sjúkdóma, eða hafa samband við dýralækni um að taka sýni úr slíku fé. Aukin áhersla er á að fá slík sýni þar sem það eykur líkur á að finna riðuna. 

Héraðsdýralæknir vinnur nú að öflun faraldsfræðilegra upplýsinga og úttektar á búinu til að meta umfang aðgerða við förgun fjár, þrif og sótthreinsun. Því næst fer málið í hefðbundið ferli hvað varðar gerð samnings um niðurskurð,“ segir í tilkynningu frá Matvælastofnun.

Skylt efni: riða

Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...