Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 ára.
 Ný tækni vísindamanna við Leicester-háskóla kann að gjörbreyta stöðunni  varðandi endurvinnslu dýrra málmefna og mögulega einnig á viðhorfum fólks til liþíum-Ion rafhlaðanna.
Ný tækni vísindamanna við Leicester-háskóla kann að gjörbreyta stöðunni varðandi endurvinnslu dýrra málmefna og mögulega einnig á viðhorfum fólks til liþíum-Ion rafhlaðanna.
Fréttir 19. júlí 2021

Ný endurvinnslutækni fljótleg og vistvæn

Höfundur: Hörður Kristjánsson

Vísindamenn við Háskólann í Leicester hafa þróað nýja og snjalla aðferð til að endurvinna rafhlöður rafknúinna ökutækja með nýrri nálgun sem margir hafa kynnst í tannlæknastólnum. Það voru vísindamenn Faraday stofnunarinnar sem unnu að verkefni um endurvinnslu liþíumjónarafhlöðu (ReLiB) undir forystu Andy Abbott, prófessors við Háskólann í Leicester, sem uppgötvuðu þessa nýju en samt þrautreyndu aðferð. Tæknin felur í sér að nýta hljóðbylgjur, til að aðskilja dýrmæt efni frá rafskautum svo að hægt er að endurheimta efnið að fullu úr rafhlöðum að loknum líftíma þeirra. Greint var frá þessu á vefsíðu Science Daily 29. júní síðastliðinn. Núverandi endurvinnsluaðferðir við endurnýtingu litíumjónaða rafhlöðu væri að setja venjulega rafgeyma í tætara eða í háhitaofn. Síðan er þörf á flóknu eðlis- og efnafræðilegu ferli til að ná úr þessu nothæf efni. Þessar endurvinnsluleiðir eru orkufrekar og óhagkvæmar. Sýnt hefur verið fram á að með nýju aðferð vísindamann í Leicester-háskóla er hægt að endurheimta um 80% af því liþíum sem var í upprunalegu rafhlöðunum og í hreinna ástandi en mögulegt er með eldri aðferðum.


Vandinn snerist um að aðskilja dýrmæt efni

Áskorun vísindamannanna snerist um hvernig ætti að aðskilja mikilvæg efni svo sem liþíum, nikkel, mangan og kóbalt úr notuðum rafhlöðum á fljótlegan, hagkvæman og umhverfisvænan hátt. Hafa þeir dottið niður á nýja aðferð sem aðlagar tækni sem þegar er í mikilli notkun í matvælaiðnaðinum og m.a. í tannlækningum. Það er „Ultrasonic delamination“ tækni sem sprengir í raun virku efnin sem sóst er eftir úr rafskautunum og skilur eftir ál eða kopar. Ferlið hefur reynst mjög árangursríkt við að fjarlægja grafít og liþíum nikkel, mangan og kóbalt oxíð úr rafhlöðunum sem almennt er þekkt sem NMC. Rannsóknirnar hafa verið birtar í Green Chemistry og rannsóknarteymið undir forystu prófessors Abbott, sem hefur sótt um einkaleyfi á tækninni.

100 sinnum fljótlegri og vistvænni endurvinnsluaðferð

„Þessi nýja aðferð er 100 sinnum fljótlegri og vistvænni en hefðbundin tækni til að endurvinna rafhlöður. Þá leiðir hún til meiri hreinleika endurheimtra efna. Það virkar í meginatriðum á sama hátt og afkölkunartæki tann­læknis og brýtur niður límbönd milli húðarlagsins og undirlagsins. Það er líklegt að upphafleg notkun þessarar tækni muni fæða endurunnið efni beint aftur í framleiðslu línunnar fyrir rafhlöður. Þetta er raunverulegt skref sem gjörbreytir endurvinnsluferli rafgeymanna,“ segir Andy Abbott. „Til að hámarka notagildi rafhlöðutækninnar og innleiðingu hennar í Bretland verðum við að horfa á allt ferlið, frá námuvinnslu mikilvægra efna til framleiðslu rafgeyma og endurvinnslu þeirra. Þannig verðum við að skapa hringrás í hagkerfi sem er bæði sjálfbær fyrir jörðina og arðbært fyrir iðnaðinn,“ segir Pam Thomas, prófessor og forstjóri Faraday stofnunarinnar. „Rannsóknarhópurinn er í frumviðræðum við nokkra rafhlöðuframleiðendur og endurvinnslufyrirtæki um að setja upp tæknibúnað á þeirra iðnaðarsvæðum á yfirstandandi ári með það að markmiði að veita leyfi fyrir nýtingu tækninnar til lengri tíma. Rannsóknarteymið hefur prófað tæknina frekar á fjórum algengustu rafhlöðutegundunum og komist að því að hún skilar sömu afköstum í öllum tilvikum.“

Skylt efni: endurvinnsla | rafhlöður

Endurheimt vistkerfa á ríkisjörðum
Fréttir 12. mars 2026

Endurheimt vistkerfa á ríkisjörðum

Í undirbúningi er átak í endurheimt votlendis á ríkisjörðum í umsjón Lands og sk...

Framleiddu úrvalsmjólk alla mánuði
Fréttir 12. mars 2026

Framleiddu úrvalsmjólk alla mánuði

Alls uppfylltu 47 kúabú skilyrði Auðhumlu um framleiðslu á úrvalsmjólk alla mánu...

Setja ætti niður samningsmarkmið
Fréttir 12. mars 2026

Setja ætti niður samningsmarkmið

Bændasamtök Íslands (BÍ) setja sig ekki upp á móti því að áframhald viðræðna við...

Nýr vettvangur frumframleiðenda og ferðaþjónustuaðila
Fréttir 11. mars 2026

Nýr vettvangur frumframleiðenda og ferðaþjónustuaðila

Slow Food á Íslandi stendur fyrir stefnumóti frumframleiðenda og ferðaþjónustunn...

Ótrúlegur eldri borgari
Fréttir 11. mars 2026

Ótrúlegur eldri borgari

Það er mikill kraftur í honum Guðmundi Karli Guðfinnssyni, eða Mumma eins og han...

Bæjarskilti fyrir neðan Kambana
Fréttir 11. mars 2026

Bæjarskilti fyrir neðan Kambana

Hveragerðisbær vinnur að því að setja upp stórt bæjarskilti fyrir neðan Kambana ...

Opnað fyrir umsóknir um fjárfestingastuðning í sauðfjárrækt
Fréttir 10. mars 2026

Opnað fyrir umsóknir um fjárfestingastuðning í sauðfjárrækt

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um fjárfestingarstuðning í sauðfjárrækt. Umsókn...

3.750 holdakýr eru í landinu
Fréttir 25. febrúar 2026

3.750 holdakýr eru í landinu

Bændasamtök Íslands í samvinnu við Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins (RML) stóðu f...