Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Við undirritun samkomulagsins, talið frá vinstri: Jón Ágúst Þorsteinsson, forstjóri Klappa, Einar Einarsson, rekstrarstjóri MS, Gústaf Helgi Hjálmarsson, gæða-, umhverfis- og öryggisstjóra MS, og Sigrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri þjónustu og ráðgjafar h
Við undirritun samkomulagsins, talið frá vinstri: Jón Ágúst Þorsteinsson, forstjóri Klappa, Einar Einarsson, rekstrarstjóri MS, Gústaf Helgi Hjálmarsson, gæða-, umhverfis- og öryggisstjóra MS, og Sigrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri þjónustu og ráðgjafar h
Fréttir 25. júní 2018

Mjólkursamsalan semur við Klappir um mælingar á umhverfisálagi

Skrifað hefur verið undir þjónustusamning við Klappir um mælingar á umhverfisálagi Mjólkur­samsölunnar (MS). 
 
Markmið MS er að ná árangri í umhverfismálum og málum tengdum sjálfbærni. Klappir mun aðstoða MS við að draga saman upplýsingar um umhverfisálag og kolefnisuppgjör og veita MS ráðgjöf með það að markmiði að lágmarka kolefnisspor fyrirtækisins. 
 
Aðferðafræði og hugbúnaður Klappa gera fyrirtækjum, sveitar­félögum og stjórnvöldum fært að setja sér mælanleg markmið um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og upplýsa um árangur á hagkvæman og gagnsæjan hátt. Þó nokkur fyrirtæki eru að nýta sér þjónustu Klappa til þess að fylgjast með umhverfisáhrifum sínum. Klappir vinna samkvæmt alþjóðlegri aðferðafræði sem kallast „Greenhouse Gas Protocol“ sem auðveldar samanburð á alþjóðlegum mörkuðum. 
 
„Samningur þessi við Klappir er mikilvægt skref fyrir MS í umhverfismálum. Öll okkar starfsemi hefur áhrif á umhverfið og með því að þekkja þau áhrif í gegnum greiningu á gögnum þá getum við unnið markvisst að úrbótum sem skila MS mælanlegum árangri í umhverfismálum,“ segir Gústaf Helgi Hjálmarsson, gæða-, umhverfis- og öryggisstjóri MS.
 
Undirritun samkomulagsins er í takt við umhverfisstefnu fyrir­tækisins og þá mælikvarða sem settir voru en þar segir meðal annars:
 
„Mjólkursamsalan (MS) einsetur sér í allri starfsemi sinni, allt frá söfnun mjólkur frá framleiðendum til framleiðslu og dreifingar fullunninnar vöru til viðskiptavina, að starfa í sátt við umhverfi sitt og náttúru landsins hverju sinni. Með stefnu sinni leitast fyrirtækið við að endurspegla umhverfisvæn sjónarmið í öllum skrefum virðiskeðjunnar og leggja þar með ríka áherslu á bestu umgengni okkar til verndar umhverfinu og náttúru landsins.“ 

Skylt efni: Mjólkursamsalan | MS

Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...