Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 11 ára.
Kristín og Þórður Kalman Friðriksson, fimm ára sonur hennar og Friðriks Erlingssonar, sem var aðstoðarmaður móður sinnar við hjónavígsluna um páskana.
Kristín og Þórður Kalman Friðriksson, fimm ára sonur hennar og Friðriks Erlingssonar, sem var aðstoðarmaður móður sinnar við hjónavígsluna um páskana.
Fréttir 8. maí 2014

Hjónavígslur vinsælar við Skógafoss og Seljalandsfoss

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson
„Þetta er nú með því skemmtilegra sem maður gerir. Manni tekst vitanlega misvel upp en þegar þetta tekst vel er þetta virkilega gefandi og eftirminnilegt og þá vonandi tekst manni að skapa einhverja töfrastund fyrir hjónaefnin, sem sum hver eru komin um langan veg til að gifta sig hér,“ segir Kristín Þórðardóttir, fulltrúi sýslumannsins á Hvolsvelli, sem er oft kölluð til að gifta við Seljalandsfoss eða Skógafoss. Ein slík hjónavígsla fór einmitt fram við Skógafoss um páskana. 
 
Kristín er einnig oddviti sjálfstæðismanna og sveitarstjóraefni fyrir sveitarstjórnarkosningar 31. maí í vor í Rangárþingi eystra. Hjónavígslurnar eru framkvæmdar allan ársins hring og flestar úti í náttúrunni. 
 
„Einhvern veginn finnst mér alltaf hafa verið gott veður þrátt fyrir að stundum hafi nú gengið á með éljum og ég jafnvel lagst í lungnabólgu á eftir. Það er náttúrulega aldrei á vísan að róa í þessum íslensku veðurmálum, og það virðast útlendingarnir alveg vera með á hreinu, stundum held ég að þetta sé bara enn eftirminnilegra ef veðrið er dálítið skrautlegt. Fólk er að sækjast eftir einhverju ævintýri. Ég gifti annað par í byrjun mánaðarins í hávaðaroki og rigningu og þau voru alsæl,“ bætir Kristín við. Aðspurð segir hún að í fyrra hafi verið rúmlega 40 hjónavígsluathafnir og hafi færst vöxtur í þetta eins og annað því það sem af er þessu ári er búið að bóka 19 athafnir. 
 
Perlurnar við Seljalandsfoss og Skógafoss eru vinsælastar, og mest eru þetta erlendir ferðamenn, eða í rúmlega 80% tilvika t.a.m. árið 2013
Hækkun á afurðaverði til kúabænda og heildsöluverði mjólkur
Fréttir 15. maí 2025

Hækkun á afurðaverði til kúabænda og heildsöluverði mjólkur

Hækkun varð nýlega á afurðaverði til kúabænda og heildsöluverði mjólkur og mjólk...

Betri heimur með bættum landbúnaði
Fréttir 15. maí 2025

Betri heimur með bættum landbúnaði

Mannfjöldi í heiminum fer ört vaxandi með tilheyrandi aðsteðjandi vandamálum um ...

Nytjaskógarjarðir betur verðmetnar
Fréttir 15. maí 2025

Nytjaskógarjarðir betur verðmetnar

Borgþór Jónsson, skógarbóndi á Hvammi í Fljótsdal, fékk nýlega mun hærra verð fy...

Stærsta sólarorkuver landsins á kúabúinu Garði
Fréttir 15. maí 2025

Stærsta sólarorkuver landsins á kúabúinu Garði

Þrjú íslensk landeldisfyrirtæki hafa hafið framleiðslu, Samherji fiskeldi, First...

Einstakt ræktunarkerfi fyrir sælkerasveppi
Fréttir 15. maí 2025

Einstakt ræktunarkerfi fyrir sælkerasveppi

Nýsköpunarfyrirtækið Svepparíkið hefur þróað einstakt ræktunarkerfi á heimsvísu ...

Efling byggða á Ströndum
Fréttir 13. maí 2025

Efling byggða á Ströndum

Tillögur til eflingar byggða á Ströndum hafa nýlega verið birtar. Þær byggja á s...

Nýr íshellir til athugunar
Fréttir 12. maí 2025

Nýr íshellir til athugunar

Sveitarstjórn Bláskógabyggðar hefur lagt fram tillögu nýs deiliskipulags sem tek...

Ný lög um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga
Fréttir 9. maí 2025

Ný lög um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga

Frumvarp hefur verið lagt fram á Alþingi um ný heildarlög um Jöfnunarsjóð sveita...