Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 ára.
Magnús Sigsteinsson og Marta Guðrún Sigurðardóttir á Blikastöðum afhenda Bjarna Guðmundssyni, verkefnisstjóra á Landbúnaðarsafni Íslands á Hvanneyri, kornskurðarvélina góðu.
Magnús Sigsteinsson og Marta Guðrún Sigurðardóttir á Blikastöðum afhenda Bjarna Guðmundssyni, verkefnisstjóra á Landbúnaðarsafni Íslands á Hvanneyri, kornskurðarvélina góðu.
Mynd / Magnús Þór Magnússon
Líf og starf 3. október 2016

Gömul kornræktartæki sem þjónuðu bændum í Mosfellssveit um miðja síðustu öld

Höfundur: Hörður Kristjánsson
Hjónin Magnús Sigsteinsson á Blikastöðum, fyrrverandi búfræðiráðunautur hjá Bændasamtökum Íslands, og Marta Guðrún Sigurðardóttir komu á dögunum færandi hendi á Landbúnaðarsafn Íslands á Hvanneyri. 
Afhentu þau þá Bjarna Guðmundssyni verkefnisstjóra kornsláttuvél, gamla þreskivél og kornhreinsivél sem notaðar voru á Blikastöðum og fleiri bæjum í Mosfellssveit fyrir um sextíu til áttatíu árum. 
 
„Þetta eru kornræktartæki sem voru hér í geymslu á Blikastöðum. Þarna er um að ræða gamalt þreskiverk og kornhreinsara sem er frá 1936, eða frá búskapartíð Magnúsar Þorlákssonar, afa míns á Blikastöðum. Kornsláttuvélin sem við fórum líka með upp á Hvanneyri, eða „selvbinder“ eins og það heitir á dönsku, sló kornið og batt það í knippi og skilaði því þannig frá sér. Þetta er seinni tíma vél, líklega frá miðjum fimmta áratugnum,“ segir Magnús Sigsteinsson.
 
Hann segir að þau hafi farið tvær ferðir með búnaðinn á Landbúnaðarsafnið á Hvanneyri, en seinni ferðin var með sláttuvélina sem er mun meiri um sig en þreskiverkið. 
 
Notuð í Mosfellssveit á fimmta og sjötta áratugnum
 
„Sláttuvélin var notuð á nokkrum bæjum hér í neðanverðri Mosfellssveitinni á fimmta og sjötta áratug síðustu aldar. Það var á meðan kornrækt var þar almennt stunduð. Vélin var dregin af traktor og Árni G. Eylands nefnir m.a. þessi tæki í kafla um kornrækt í bókinni Búvélar og ræktun. Þá segir hann að þessi kornsláttuvél hafi verið til í Mosfellsbæ og notuð í Láguhlíð, sem var þá eitt af nýbýlunum úr Lágafellslandinu. Ég held ég fari örugglega rétt með að þessi kornsláttuvél hafi verið sameign nokkurra bænda og var faðir minn, Sigsteinn Pálsson,  þar á meðal. Hann var alltaf með kornrækt á Blikastöðum á einum til tveim hekturum. Dálítil kornrækt var líka á sumum nýbýlunum á Lágafellslandinu. Það var svo sem ekki mikið land sem fylgdi þessum nýbýlum, því allt í allt hafa þetta verið um 20 hektarar.“ 
 
Mjög ólíkt verklag frá því sem nú þekkist
 
„Ég man sjálfur eftir þessum kornskurði sem krakki. Þetta var gert á danska vísu. Kornknippin sem vélin skilaði frá sér voru tekin og reist upp tvö og tvö saman. Þannig var þetta látið standa úti í dálítinn tíma til að þurrka kornið ef veður var hagstætt. Síðan var það tekið í hús og þreskt og keyrt í gegnum þetta þreskiverk. Allt verklag við þetta var mjög ólíkt því sem þekkist í dag. 
 
Kornsláttuvélin var notuð á þessu svæði fram eftir sjötta áratugnum, eða þar til kornrækt lagðist þar alveg af vegna versnandi veðurskilyrða. Ég held að það hafi verið á árunum 1955 til 1957 sem síðast var ræktað korn hér heima á Blikastöðum. Eftir það fór vélin í geymslu á Blikastöðum. Þar hefur hún staðið, þar til við fórum að taka til og tæma allar þessar geymslur nú í sumar,“ segir Magnús Sigsteinsson. 
 
Þreskivélarnar í gamla daga voru dálítið öðruvísi en sá búnaður sem nú er notaður. 
Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...