Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 ára.
Sigurvegarar í A-flokki, talið frá vinstri: Jens Þór Sigurðsson og Groesfaen Nap frá Bretlandi, sem lentu í öðru sæti.  Aðalsteinn Aðalsteinsson og Burndale Biff frá Bretlandi sem hrepptu fyrsta sætið og Maríus Snær Halldórsson og Elsa frá Hallgilsstöðum
Sigurvegarar í A-flokki, talið frá vinstri: Jens Þór Sigurðsson og Groesfaen Nap frá Bretlandi, sem lentu í öðru sæti. Aðalsteinn Aðalsteinsson og Burndale Biff frá Bretlandi sem hrepptu fyrsta sætið og Maríus Snær Halldórsson og Elsa frá Hallgilsstöðum
Mynd / AJH
Fréttir 25. september 2019

Metþátttaka á landsmóti á Langanesi

Höfundur: Aðalsteinn Jóhannes Halldórsson
Landsmót Smalahundafélags Íslands var haldið á Hallgils­stöðum á Langanesi helgina 24.–25. ágúst. Þetta mót fer í sögubækurnar þar sem metþátttaka var á mótinu, eða 25 hundar. Eins og venjulega var keppt í þremur flokkum, A-flokki, B-flokki og Unghundaflokki. Níu hundar kepptu í unghundaflokki, þrír í B-flokki og 13 hundar í A-flokki. 
 
Mótið tókst með miklum ágætum. Austurlandsdeild Smala­hunda­félagsins hélt um það af miklum myndarskap. Veðrið setti þó reyndar mark sitt leiðinlega mikið á þessa daga en kalt var í veðri og vætusamt fyrri daginn og hvasst þann seinni. Engu að síður voru allir sáttir að móti loknu. 
 
Þessir hlutu heiðursverðlaun mótsins, Aðalsteinn Aðalsteinsson, formaður Smalahundafélags Íslands, og dómari mótsins, Gunnar Einarsson frá Daðastöðum.  
 
Dómgæsla var í höndum Gunnars Einarssonar frá Daðastöðum og Sverris Möllers frá Ytra-Lóni en þeir hlupu í skarðið þar sem Englendingurinn Edward Thornally forfallaðist á bókstaf­lega síðustu stundu. Austurlandsdeild Smalahundafélagsins vill koma á framfæri kærum þökkum til Gunnars og Sverris. Gunnar var einnig gerður að heiðursfélaga í Smalahundafélagi Íslands á meðan á móti stóð en óhætt er að segja að framlag hans til smalahundagreinarinnar á Íslandi sé mikið og án hans ósennilegt að greinin væri á þeim stað sem hún er í dag. Úrslit voru eftirfarandi:
 
Unghundaflokkur:
  1. Maríus Snær Halldórsson og Fríða frá Hallgilsstöðum 1.
  2. Svanur Guðmundsson og Skessa frá Dalsminni.
  3. Krzystof Krawczyk og Loki frá Hallgilsstöðum 1.
B-flokkur.
  1. Krzystof Krawczyk og Tígull frá Hallgilsstöðum 1.
  2. Björn Jóhann Steinarsson og Skriða frá Skriðu.
  3. Sigurður J. Hermannsson og Táta frá Skriðu.
A-flokkur.
  1. Aðalsteinn Aðalsteinsson og Burndale Biff frá Bretlandi.
  2. Jens Þór Sigurðsson og Groesfaen Nap frá Bretlandi.
  3. Maríus Snær Halldórsson og Elsa frá Hallgilsstöðum 1. 

Íslandsmeistarinn Aðalsteinn Aðalsteinsson. 

Sumarkomunni fagnað
Fréttir 25. apríl 2024

Sumarkomunni fagnað

Að venju verður opið hús í Garðyrkjuskólanum á Reykjum á sumardaginn fyrsta, fim...

Burðarhjálp: Leiðbeiningarmyndbönd
Fréttir 24. apríl 2024

Burðarhjálp: Leiðbeiningarmyndbönd

Síðan 2019 geta bændur og aðstoðarfólk notað fjölda leiðbeiningarmyndbanda, sem ...

Afurðamestu sauðfjárbúin
Fréttir 24. apríl 2024

Afurðamestu sauðfjárbúin

Í niðurstöðum skýrsluhalds í sauðfjárrækt fyrir síðasta ár, sem eru birtar hér í...

SS segir of flókið að upprunamerkja
Fréttir 24. apríl 2024

SS segir of flókið að upprunamerkja

Sláturfélag Suðurlands (SS) sér ekki hag í að upprunamerkja svínakjöt frá Korngr...

Hraðhlaðið við Galdrasafnið
Fréttir 23. apríl 2024

Hraðhlaðið við Galdrasafnið

Orkubú Vestfjarða hefur sett upp nýja 400 kW hraðhleðslustöð við Galdrasafnið á ...

Hámarksmagn minnkað í matvælum
Fréttir 23. apríl 2024

Hámarksmagn minnkað í matvælum

Innan skamms taka gildi breytingar á reglugerð þar sem leyfilegt hámarksmagn nít...

Greiða götu viðskiptasambanda við Indland
Fréttir 22. apríl 2024

Greiða götu viðskiptasambanda við Indland

Bæði þjónustu- og vöruviðskipti við Indland munu að öllum líkindum aukast á næst...

Jarðræktarmiðstöðin rís
Fréttir 22. apríl 2024

Jarðræktarmiðstöðin rís

Jarðræktarmiðstöð Landbúnaðarháskóla Íslands mun verða tilbúin árið 2027 gangi á...