Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Tóbakshorn – milljón bjöllur.
Tóbakshorn – milljón bjöllur.
Mynd / VH
Á faglegum nótum 31. maí 2022

Tími sumarblómanna

Höfundur: Vilmundur Hansen

Sumarblóm auka litadýrðina í garðinum og fara vel í beðum, pottum, kerum og svalakössum. Flest sumarblóm þurfa sólríkan stað, skjól til að dafna og blómstra ríkulega. Þau þola ekki frost þannig að óráðlegt er að planta þeim út fyrr en hætta á næturfrosti er liðin hjá.

Járnjurt.

Velja skal sumarblóm með tilliti til vaxtarstaðar því lítið gagn er í að setja blóm sem þurfa mikla sól í skugga, eða hávaxnar plöntur þar sem mikið blæs og þær eiga á hættu að fjúka um koll.

Undirbúið jarðveginn vel

Nauðsynlegt er að undirbúa jarðveginn vel áður en sumar­blómunum er plantað, hvort sem það er í beð eða ker. Æskileg jarðvegsdýpt fyrir sumarblóm er 15 til 20 sentímetrar. Stinga skal jarðveginn upp, hreinsa burt grjót, mylja jarðveginn og bæta í hann lífrænum áburði á nokkurra ára fresti.

Stjúpa.

Síðan er jarðvegurinn jafnaður til og lítils háttar af tilbúnum áburði stráð yfir.
Hæfilegt bil á milli sumarblóma er 10 til 20 sentímetrar. Þétt plöntun minnkar vinnu við að reyta illgresi þegar líður á sumarið. Gæta skal þess að ræturnar séu blautar þegar plantað er út til að draga úr líkunum á að moldin hrynji af þeim. Blómin eru fljótari að jafna sig eftir útplöntun sé moldin rök.

Vökvið vel

Við útplöntun skal gæta þess að setja hæstu tegundirnar aftast í beðið og í skjól svo að þær brotni ekki í vindi og raða plöntunum eftir lit og lögun eins og hverjum og einum þykir fara best. Eftir útplöntun þarf að vökva í nokkra daga á eftir, sé þurrt í veðri, en of mikil vökvun kælir moldina og tefur vöxt. Eftir að sumarblómunum hefur verið komið fyrir sjá þau yfirleitt um sig sjálf og þurfa litla umhirðu, nema þá helst að klippt séu af þeim visnuð blóm til að koma í veg fyrir fræmyndun, en hún dregur úr áframhaldandi blómgun.

Pelargónía. 

Sumarblóm í pottum og kerum

Hægt er að fá margar og fjölbreytilegar gerðir af ílátum undir blóm, til dæmis útipotta, tunnur, körfur og ker úr plasti eða leir. Einnig er boðið upp á gott úrval hengipotta, plast, bast og leir og svalakassa.

Þess sem einna helst þarf að gæta að við val á útikeri er að það þoli frost ef það á að standa úti yfir veturinn.

Sömu reglur gilda um jarðveg í keri og beði, það verður að vinna hann vel og gæta þess að frárennsli sé gott. Ef ekki er gat á kerinu er nauðsynlegt að setja lag af grófu efni, til dæmis grófan vikur, smásteina eða leirkúlur, í botninn þar sem afrennslisvatn getur safnast fyrir án þess að ræturnar fúni. Þetta á sérstaklega við ef kerið stendur undir berum himni. Ker sem stendur á þurrum stað þarf aftur á móti að vökva reglulega.

Flauelisblóm.

Yfirleitt eru sumarblómin smá þegar þeim er plantað út á vorin en þau stækka yfir sumarið og því er hæfilegt að planta þeim með 10 til 12 sentímetra millibili. Stórgerðar plöntur, eins og pelargóníur og margarítur, þurfa aftur á móti meira pláss. Kerið kann því að virðast tómlegt til að byrja með en gróðurinn þéttist fljótt.

Hægt er að setja allar tegundir sumarblóma í ker. Stjúpur, skrautnálar, sólboði, stjörnublik, flauelsblóm og silfurkambur njóta alltaf mikilla vinsælda en það er ekkert sem mælir gegn því að planta hádegisblómum, nellikum, fagurfíflum, pelargóníum og tóbakshorni. Einnig getur verið fallegt að planta hengijurtum eins og brúðarauga, skjaldfléttu eða hengitóbakshorn út við jaðra kersins og láta plönturnar flæða yfir brúnirnar.

Þeir sem eru hagsýnir geta plantað matjurtum í kerin. Blöð ýmissa matjurta geta verið mjög falleg, til dæmis á kartöflum, rófum, hnúðkáli, beðju, salati, steinselju og grænkáli. Það má einnig búa til lítinn kryddjurtagarð í kerinu og planta í það rósmaríni, sítrónumelissu, myntu eða öðrum tegundum kryddjurta.

Nokkur falleg sumarblóm

Bláhnoða (Ageratum houstonianum). 10 til 30 sentímetra há og fíngerð jurt með bláum og ljósbláum blómum. Einnig til hvít. Vex best í skjóli og á þurrum stað. Hentar vel sem kantblóm og í þyrpingar.

Skrauttóbak (Nicotiana × sanderae). Einær jurt, 20 til 60 sentímetrar á hæð. Blómin í ýmsum litum; rauð, bleik, hvít og fjólublá. Viðkvæm fyrir frosti. Þrífst ágætlega þótt hún fái aðeins sól hluta úr degi. Blómviljug og ilmar vel.

Fagurfífill (Bellis perennis). 10 til 20 sentímetrar á hæð. Blómin fyllt, hvít, bleik eða rauð. Mjög harðgerður og á það til að sá sér. Fagurfífill er sagður standa fyrir sakleysi, ást og hvatningu. Rómverjar notuðu safann úr fagurfífli til að græða sár.

Brúðarauga.

Flauelsblóm (Tagetes patula var. nana). 20 til 35 sentímetrar á hæð. Stönglarnir greinóttir og blöðin skipt. Blómin gul eða rauðgul, einföld eða ofkrýnd. Falleg jurt sem er ættuð frá Mexíkó og þarf sól og skjól. Viðkvæm fyrir frosti. Blóm notuð í matarlit og til að lita textíl.

Frúarhattur (Rudbeckia hirta). Hávaxið sumarblóm sem getur náð 60 sentímetra hæð. Blómin stór gul karfa með dökku auga. Blómgast í ágúst og september og stendur lengi.

Hádegisblóm (Dorotheanthus bellidiformis). Lágvaxin jurt, 5 til 10 sentímetrar á hæð, blöðin þykk og kjötkennd. Blómin stór og litskrúðug og til í mörgum og skærum litum. Falleg jurt í blóma en opnar sig eingöngu í sól.

Ljónsmunni (Antirrhinum majus). Er með stinna stöngla sem geta orðið 50 sentímetra háir og þarf því skjól til að fjúka ekki um koll. Blómin í klösum og til í mörgum litum, rauð, bleik, gul og hvít.

Morgunfrú (Calendula officinalis). 30 til 60 sentímetrar á hæð. Harðgerð og blómstrar stórum appelsínugulum eða gulum blómum og stendur langt fram á haust. Blöðin og blómin eru æt og tilvalin í salat. Jurtin hefur verið notuð til að græða sár á húð og blómin til litunar.

Silfurkambur (Senecio cineraria). 20 til 40 sentímetrar á hæð. Harðgerð jurt sem er ræktuð vegna blaðfegurðar. Blöðin silfurlituð og standa langt fram eftir hausti. Vex best á þurrum og sólríkum stað. Lifir veturinn iðulega af.

Fjóla.

Skrautnál (Lobularia maritima). 5 til 15 sentímetra há. Blöðin smá en blómin mörg og mynda litla þúfu. Blómin hvít, fjólublá eða bleik. Góð þekjuplanta í beð.

Skjaldflétta (Tropaeolum majus). Hengi- eða klifurjurt. Blöðin stór og næstum kringlótt. Blómin stór, gul, rauð og appelsínugul. Þarf sól og skjól. Blöð, blóm og fræ æt.

Sólboði.

Stjúpa (Viola ×wittrockiana). Drottning sumarblómanna. Harðgerð og ekkert sumarblóm kemst í hálfkvisti við hana hvað varðar fjölbreytni í lit, það er meira að segja hægt að fá hana svarta. Það er hægt að rækta stjúpur næstum því hvar sem er.

Tóbakshorn (Petunia × hybrida). 25 til 35 sentímetrar á hæð. Blómin stór, einföld og fyllt, til í mörgum litum – blá, hvít, rauð og tvílit. Þarf sól og skjól. Tóbakshorn eru venjulega seld undir heitinu petúníur. Til eru blómstór og sterkvaxin afbrigði sem kallast einu nafni Surfinía og mest ræktaðar í hengipottum. Þær eru sterkar, stórblóma hengiplöntur sem fást í mörgum hreinum og skærum litum, blómsæld þeirra er með afbrigðum mikil.

Blóðdropi Krists.

Skylt efni: sumarblóm

„Spjallað“ við kýr
Á faglegum nótum 9. janúar 2023

„Spjallað“ við kýr

Atferli, hegðun, útlit og ástand nautgripa getur gefið gríðarlega mikilvægar upp...

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands

Á aðalfundi Landssambands skógareigenda (LSE) sem haldinn var í Borgarnesi í maí...

Lífræn framleiðsla – nú er lag
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Lífræn framleiðsla – nú er lag

Á undanförnum árum hefur VOR látið til sín taka með ýmsum hætti til að hvetja ti...

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið
Á faglegum nótum 3. janúar 2023

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið

Meindýr eru skaðvaldar í garð- og skógrækt og óvelkomnir gestir sem flestir vild...

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna
Á faglegum nótum 2. janúar 2023

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna

Vinna við norrænu næringarráðin (NNR), sem Norræna ráðherra­nefndin heldur utan ...

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022
Á faglegum nótum 30. desember 2022

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022

Í heildina var útkoma lamba í haust góð. Meðalfallþungi á landinu var 16,6 kg og...

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?
Á faglegum nótum 28. desember 2022

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?

Hér á landi fellur til gríðarlegt magn af lífrænum úrgangi á öllum stigum samfél...

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs
Á faglegum nótum 27. desember 2022

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs

Nú þegar líður að áramótum og allir eru búnir að skila haustskýrslu til matvælar...