Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 ára.
Í dag standa 48 innlendir og erlendir samstarfsaðilar að Horses of Iceland, en fjármögnun þess er einnig tryggð með mótframlagi frá ríkinu. Íslandsstofa sér um framkvæmd  þess.
Í dag standa 48 innlendir og erlendir samstarfsaðilar að Horses of Iceland, en fjármögnun þess er einnig tryggð með mótframlagi frá ríkinu. Íslandsstofa sér um framkvæmd þess.
Mynd / Gígja Einarsdóttir
Fréttir 31. janúar 2017

Aukinn slagkraftur í markaðsstarfi með víðtæku samstarfi

Höfundur: Guðrún Hulda Pálsdóttir
Markaðsverkefni um íslenska hestinn á heimsvísu er að gefa góða raun strax á fyrsta ári og stefnt er á enn víðtækari útbreiðslu á ímynd hins náttúrulega, kraftmikla og tilgerðarlausa íslenska reiðhesti á næstu árum. „Við vonum innilega að fleiri vilji njóta íslenska hestsins sem er svo magnaður,“ segir Jelena Ohm, verkefnastjóri hjá Íslandsstofu, sem sér um framkvæmd Horses of Iceland.
 
Horses of Iceland markaðsverkefninu var ýtt úr vör formlega í apríl 2015 en þá hófst stefnumótun og undirbúningur. Því er ætlað að styrkja ímynd íslenska hestsins alþjóðlega, og auka verðmætasköpun og gjaldeyrisaukningu tengda greininni. Að verkefninu koma samtök og hagsmunaaðilar um allan heim, ásamt íslenska ríkinu. Um er að ræða fjármögnun verkefnis til fjögurra ára og er það Íslandsstofa sem sér um framkvæmdina.
 
Í fyrra, á fyrsta ári aðgerðaráætlunarinnar, var lögð áhersla á að kynna verk­efnið innan Íslandshestasamfélagsins til þess að afla fjármuna fyrir verkefnið. „Þar sem við fáum krónu frá ríkinu á móti hverri krónu frá fyrirtækjum og hagsmunasamtökum, telur hver króna frá atvinnulífinu gríðarlega. Í dag standa 48 samstarfsaðilar að verkefninu, sem flestir eru íslenskir. Sænsku Íslandshestasamtökin gengu nýlega til liðs við okkur og vonandi taka fleiri erlend samtök við sér. Það er mikilvægt fyrir okkur að nýta víðtæka reynslu og þekkingu sem er til í greininni og þess vegna reyndum við að ná sem mestri samstöðu meðal allra hestamanna sem gengur vel. Við höldum fundi með samstarfsaðilum reglulega til að ræða áherslur og þeir fá einnig fræðslu sem tengist markaðsmálum,“ segir Jelena Ohm, verk­efnastjóri markaðsverkefnisins. „Á þessum fjórum árum sem þessi fjármögnun nær til, fáum við tækifæri til að vekja athygli á íslenska hestinum úti um allan heim með öflugri hætti en áður hefur verið gert. Okkur þykir mikilvægt að senda sterk samræmd skilaboð og vinna saman að því að auka sýnileika íslenska hestsins. Á erlendri grundu erum við að keppa við önnur hestakyn og hér heima við mismunandi afþreyingu. Þess vegna þarf aukin nýliðun og auðveldur aðgangur fólks að íslenska hestasamfélaginu að vera í forgangi.“
 
Breið samstaða
 
Meðal verkefna Horses of Iceland í fyrra var framkvæmd alþjóðadags íslenska hestsins þann 1. maí, en þá opnuðu hestamenn hesthús sín fyrir áhugasömum og farið var í skipulagða félagsreiðtúra. Þá fór fram mikil skrúðreið um miðborg Reykjavíkur þann 30. apríl, þar sem 120 knapar og hestar tóku þátt. „Viðburðurinn var auglýstur fyrir ferðamenn og fylgdist stór hópur þeirra með skrúðreiðinni í blíðskaparveðri,“ segir Jelena. Þá var góður rómur gerður að Horses of Iceland café á Landsmótinu á Hólum í Hjaltadal, en þar voru fræðsluerindi í boði og samstarfsaðilar kynntu starfsemi sína í huggulegri kaffihúsastemningu. Í september var vefurinn horsesoficeland.is settur í loftið, en hann er kynningarvefur fyrir íslenska hestinn og samfélag hans um allan heim. Einnig er þar að finna upplýsingar um verkefnið sjálft og samstarfsaðila. Vefurinn er sem stendur á ensku en ráðgert er að hann verði einnig á íslensku, sænsku og þýsku á næstu misserum. 
 
Í tengslum við Laufskálarétt var erlendum blaðamönnum boðið í ferð um Norðurland. Blaðamennirnir voru annars vegar frá fagtímaritum í hestamennsku frá Svíþjóð, Danmörku og Þýskalandi og hins vegar frá ferðasíðum stærsta dagblaðs Þýskalands. „Við tókum upp mikið af kvikmynduðu efni og ljósmyndum til að nýta í markaðsstarfinu og á samfélagsmiðlum. Þrjú myndbönd hafa verð gerð og deilt á samfélagsmiðum og fleiri eru í bígerð. Póstkort eru komin í dreifingu hjá samstarfsaðilum og í vinnslu er stór kynningarbæklingur um íslenska hestinn á þremur tungumálum, sem kynntur verður á hestatengdum viðburðum á næstunni. Við erum einnig með stóra auglýsing í Leifsstöð sem vekur mikla lukku,“ segir Jelena.
 
Hún segir að árangur af verkefninu árið 2016 felist meðal annars í því hve breið samstaða hefur náðst um verkefnið og hve margir samstarfsaðilar taki þátt nú þegar. „Almennt má segja að við höfum alls staðar fengið mjög jákvæð viðbrögð og það er ánægjulegt að erlendir aðilar séu nú þegar komnir til liðs við okkur og við stefnum að því að breikka samstöðuna erlendis á þessu ári,“ segir Jelena.
 
Mikil viðbrögð á samfélagsmiðlum
 
Árangur verkefnisins er mældur á skipulegan hátt, með því að fylgjast með fjölda innri og ytri mælikvörðum, á borð við veltu og gjaldeyristekjur af útflutningi og ferðaþjónustu tengdum íslenska hestinum, með virkni og útbreiðslu á samfélagsmiðlum og könnunum á vitund og viðhorfi gagnvart íslenska hestinum.
 
Jelena segir samfélagsmiðlana eiga stóran þátt í góðum árangri verkefnisins árið 2016. „En auðvitað er verkefnið langhlaup og ekki hægt að búast við að allt breytist á einni nóttu. Í dag erum við með tæplega 25.000 fylgjendur á Facebook, Instagram, Twitter, Pinterest og Tumblr. Þetta er afar virkur hópur sem er duglegur að dreifa okkar efni og því náum við oft til 200.000– 300.000 manns úti í heimi sem sjá myndir og skilaboð um íslenskan hestinn reglulega. Við höfum farið í nokkur „Facebook live events“ þar sem hægt er að fylgjast með í beinni, t.d. á Sweden International Horse Show og í samstarfi við Inspired by Iceland. Það myndband náði til 336.000 manns og erum við afar ánægð með það. Í gegnum umfjöllun fjölmiðla í kjölfar fjölmiðlaferða til landsins, höfum við einnig náð að koma greinum um íslenska hestinn til almennings,“ bætir Jelena við.
 
Vilja standa fyrir fagmennsku
 
Nú, á öðru ári verkefnisins, verður meiri áhersla lögð á markaðssetningu á vefnum, sem og á alþjóðlegum viðburðum tengdum hrossum. Þá á að ná enn frekar til erlendra ferðamanna, framleidd verða myndbönd með örsögum um íslenska hestsinn. „Þetta snýst um að auka vitund með samræmdum skilaboðum og byggja upp vörumerkið eða brand fyrir íslenska hestinn,“ segir Jelena. Stefnt er að því að íslenski hesturinn verði þekktur á heimsvísu sem hinn náttúrulegi reiðhestur, kraftmikill, ævintýragjarn, án tilgerðar og ósvikinn hestur sem tekur þér opnum örmum. Stoðir vörumerkisins byggja á tengslum hans við sögu Íslands og menningu, ævintýri og félagsskap, nálægð við náttúruna. 
 
„Áherslurnar verða mótaðar út frá þeirri stefnu sem mótuð var í upphafi og þeim áherslum sem samstarfsaðilar og verkefnisstjórn mæla með. Einnig er horft til rannsókna og gagnlegra upplýsinga sem aflað er,“ segir Jelena. Stefnt er að því að eftir fjögur ár verði komin góð reynsla af markaðsstarfi fyrir íslenski hestinn hérlendis og erlendis og að þá sé eðlilegt að halda áfram. „Þá höfum við ekki bara náð til Íslandshestasamfélagsins og erlendra ferðamanna á Íslandi, heldur líka vakið athygli hestamanna annarra hestkynja um fjölhæfni íslenska hestsins og þær skemmtilegu áskoranir í reiðmennskunni fyrir þá sem vilja keppa. Við viljum standa fyrir fagmennsku, þekkingu og hágæða menntunarkerfi.“

4 myndir:

Burðarhjálp: Leiðbeiningarmyndbönd
Fréttir 24. apríl 2024

Burðarhjálp: Leiðbeiningarmyndbönd

Síðan 2019 geta bændur og aðstoðarfólk notað fjölda leiðbeiningarmyndbanda, sem ...

Afurðamestu sauðfjárbúin
Fréttir 24. apríl 2024

Afurðamestu sauðfjárbúin

Í niðurstöðum skýrsluhalds í sauðfjárrækt fyrir síðasta ár, sem eru birtar hér í...

SS segir of flókið að upprunamerkja
Fréttir 24. apríl 2024

SS segir of flókið að upprunamerkja

Sláturfélag Suðurlands (SS) sér ekki hag í að upprunamerkja svínakjöt frá Korngr...

Hraðhlaðið við Galdrasafnið
Fréttir 23. apríl 2024

Hraðhlaðið við Galdrasafnið

Orkubú Vestfjarða hefur sett upp nýja 400 kW hraðhleðslustöð við Galdrasafnið á ...

Hámarksmagn minnkað í matvælum
Fréttir 23. apríl 2024

Hámarksmagn minnkað í matvælum

Innan skamms taka gildi breytingar á reglugerð þar sem leyfilegt hámarksmagn nít...

Greiða götu viðskiptasambanda við Indland
Fréttir 22. apríl 2024

Greiða götu viðskiptasambanda við Indland

Bæði þjónustu- og vöruviðskipti við Indland munu að öllum líkindum aukast á næst...

Jarðræktarmiðstöðin rís
Fréttir 22. apríl 2024

Jarðræktarmiðstöðin rís

Jarðræktarmiðstöð Landbúnaðarháskóla Íslands mun verða tilbúin árið 2027 gangi á...

Fyrsti umplöntunarróbóti landsins
Fréttir 19. apríl 2024

Fyrsti umplöntunarróbóti landsins

Í maí í fyrra var settur upp umplöntunarróbóti á gróðrarstöðinni Sólskógum í Kja...