Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 ára.
Heilsárssamgöngur á landi eru grundvallaratriði fyrir allar byggðir landsins.   Hér er brúin yfir ána Pennu á veginum um Pennudal upp á Dynjandisheiði.
Heilsárssamgöngur á landi eru grundvallaratriði fyrir allar byggðir landsins. Hér er brúin yfir ána Pennu á veginum um Pennudal upp á Dynjandisheiði.
Lesendarýni 28. september 2018

100 milljarðar í almennar aðgerðir á ári í 5 ár munu gjörbreyta Íslandi!

Höfundur: Hallgrímur Sveinsson, Guðmundur Ingvarsson, Bjarni G. Einarsso
Okkar góða land þarf nýjar uppfærslur í byggðamálum. Gamla byggðastefnan, hver sem hún var, er löngu gengin sér til húðar. Út af fyrir sig ber ekki að vanþakka það sem gert hefur verið á liðnum árum til endurreisnar. Menn voru í góðri trú eins og oftast þegar ákvarðanir eru teknar. En nú hafa menn aðra sýn. Endalausar smáskammtalækningar eru vonlausar þegar á heildina er litið. Þær eru meira og minna atkvæðaveiðar á röngum forsendum. En hvað á að koma í staðinn?
 
 Við sveitamennirnir gerumst svo djarfir að benda á að stjórnvöld þurfa að standa að nokkrum stórtækum, almennum aðgerðum fyrir byggðir landsins nú þegar. Ef þau bera gæfu til þess, mun flest annað koma sjálfkrafa í kjölfarið. Gömlu góðu frumatvinnuvegirnir, sjávarútvegur, landbúnaður og iðnaður hvers konar ásamt ferðaþjónustu verða áfram kjölfestan. Atvinnumál eru undirstaða alls mannlífs í landinu. En það er lífsnauðsyn fyrir þjóðina að hún líti á Ísland sem eina heild. Ef við höldum jafnvæginu í byggðinni með almennum aðgerðum, þurfa stjórnvöld ekkert að skipta sér af hvar fólkið vill búa.
 
Nokkur dæmi um bráðnauð­s­ynlegar, almennar aðgerðir, sem þola enga bið:
  1. Samgöngur á landi. Heilsárssamgöngur á landi eru grundvallaratriði fyrir allar byggðir landsins. Allir ættu að komast akandi þangað sem þeir vilja fara ef veður leyfir, hvenær sem er. Það myndi gjörbreyta flestu hér á landi. 
  2. Öruggt rafmagn. Allir íbúar landsins geti stólað á rafmagn allan sólarhringinn árið um kring. Nýta þær vatnsvirkjanir sem fyrir eru eins vel og kostur er og reisa nýjar þar sem algjör nauðsyn krefur. Styrkja dreifikerfi raforku þar sem þörf er á. Allt samkvæmt ströngustu kröfum Lloyd‘s í umgengni við náttúruna og Náttúrulistasalinn Ísland. Langtímamarkmið að allar raflínur fari í jörð.
  3. Heilbrigðisþjónusta sem dugar. Allir geti fengið lækningu og fyrirbyggjandi heilsueftirlit í heimabyggð sé þess kostur. Hver einasti landsmaður hafi sinn heimilislækni líkt og var áður. Allir hafi beinan persónulegan aðgang að sínum lækni. Það mun koma í veg fyrir mörg mistök og þjáningar og spara heilbrigðisþjónustunni ómældar upphæðir sem hægt er að nota annars staðar í því kerfi. Um það var talað fyrir nokkrum árum, að virkt og rétt stillt heimilislæknakerfi geti sinnt 95 prósent þess vanda sem leitað er með til heilsugæslu. Spara þannig heilbrigðiskerfinu í heild umtalsverðar fjárhæðir. Er þetta ekki ennþá grunnurinn? Eða eigum við að horfa endalaust upp á að menn verði úti á hverjum degi í okkar góða heilbrigðiskerfi?  „Greiður aðgangur að heimilislækni, þekking á sjúklingi og fjölskyldu hans, ásamt trausti og samfellu í meðferð, er það mikilvægasta í þjónustu heilsugæslunnar og skiptir höfuðmáli. Slíkt verklag sparar mikla fjármuni.“ Svo skrifaði Halldór Jónsson, formaður Félags íslenskra  heimilislækna, í Læknablaðinu fyrir nokkrum árum. Vituð ér enn eða hvat?
  4. Örugg nettenging um land allt. Menn geti unnið við tölvuna sína hvar sem er og hvenær sem er á mesta mögulega hraða. Ljúka verkinu strax!
 
Hvar á að taka peningana? 
 
Ríkissjóður gefi út 50–75 milljarða skuldabréf á ári næstu fimm ár með sæmilegum vöxtum. Verkefni fyrir lífeyrissjóði og aðra sem hafa mikið fé undir höndum. Lánið endurgreiðist með sköttum sem lagðir eru á umferðina næstu 40 ár. Og því ekki happdrættisskuldabréf líka fyrir almenning?
Vegtollar lagðir á þar sem nauðsyn krefur. 
Hlutur ríkisins í Íslandsbanka verði seldur. Raunhæft verð, varlega áætlað, 130–140 milljarðar. 
Alls 500 milljarðar í 5 ár, sem komi til viðbótar núverandi framlögum.
Kannski stór upphæð, en hvað kosta allar hótelbyggingarnar á ári?   
 
Niðurlag:
 
Þegar þetta er allt komið í kring innan örfárra ára, getur landsstjórnin  minnkað stórlega allt byggðavesen. Landsins þegnar velji sér búsetu þar sem þeim þóknast. Sveitarstjórnir verði raunverulega gerðar ábyrgar fyrir sem flestum málum, hver á sínu svæði. Fjárveitingar til þeirra verður þá að stór-auka. Ríkið dragi saman seglin þar á móti og fækki starfsmönnum verulega. Margar ríkisstofnanir lagðar niður, eða sameinaðar. Punktur og basta!
 
Hallgrímur Sveinsson, Guðmundur Ingvarsson, 
Bjarni G. Einarsson

Skylt efni: Byggðamál | samgöngur

Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...