Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 ára.
Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi.
Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi.
Mynd / af vefsíðu
Menning 2. október 2023

Öflugt safnastarf

Höfundur: Elín S. Sigurðardóttir forstöðumaður

Ágætis aðsókn hefur verið á sýningar Heimilisiðnaðarsafnsins í sumar. Nú er hefðbundnum opnunartíma lokið en opnað er sérstaklega fyrir hópa eftir samkomulagi.

Fyrir 20 árum var nýja safnhúsið vígt við hátíðlega athöfn en eins og flestir vita að þá tengist það við litla safnhúsið sem er tileinkað lífi og starfi Halldóru Bjarnadóttur (1873–1981).

Með tilkomu nýja hússins opnaðist gott aðgengi gesta að safninu og munum þess og á hverju ári er opnuð ný sýning textíllistafólks. Þessar sérsýningar hafa verið mjög ólíkar á milli ára en eiga það þó sameiginlegt að gefa innsýn í fjölbreyttan listiðnað og handmennt og eru verk sýninganna gjarnan innblásin af munum safnsins.

Sumarsýning/sérsýning ársins sem opnuð var í vor er fjölbreytt yfirlitssýning á textílverkum Philippe Richart (1952–2021). Philippe var fæddur í Alsír en fluttist ungur til Frakklands þar sem hann ólst upp. Hann kynntist þar íslenskri eiginkonu sinni, Jóhönnu Hálfdánsdóttur, frá Bolungarvík og fluttist með henni til Íslands árið 1979 og bjó hér ævina á enda. Philippe var búfræðingur að mennt en eftir að hann kom til Íslands lærði hann vefnað hjá Guðrúnu Vigfúsdóttur á Ísafirði.

Heillaðist hann af gæðum og eiginleikum íslensku ullarinnar sem varð grunnur að hans listsköpun. Frá 1995 starfaði hann að mestu sem handverks- og listamaður á handverksstofu sinni og kenndi auk þess ýmiss konar listiðn s.s. spjaldvefnað, myndvefnað, leðursaum og tálgun ýsubeina. Þemað í verkum hans tengdist íslenskri náttúru og lagði hann áherslu á að viðhalda íslenskum handverkshefðum og nota íslenskt hráefni.

Þá skal nefnt að mörg undanfarin ár hafa verið haldnir Stofutónleikar í Heimilisiðnaðarsafninu og margt þjóðþekkt fólk stigið þar á svið sem og heimafólk. Rétt eins og með sumarsýningarnar að þá hafa Stofutónleikarnir verið mjög ólíkir á milli ára en skapað sérstakan sess í viððburðum safnsins og menningarlífi héraðsins.

Í sumar var það óperusöngkonan Alexandra Chernyshova sem söng fyrir okkur en um árabil bjó hún ásamt fjölskyldu sinni í Skagafirði og er okkur að góðu kunn. Alexandra hefur ekki aðeins sungið sig inn í hug og hjörtu landsmanna, heldur komið fram víða um heim. Áður en Alexandra fluttist til Íslands var hún fastráðin einsöngvari við óperuna í Kyiv.

Á Stofutónleikum myndast oft mikil og góð stemning enda nálægð flytjenda og tónlistargesta mikil. Hvað viðburði varðar á næstunni að þá er að venju stefnt á góðan fyrirlestur og síðar í haust mun verða haldið námskeið um íslenska þjóðbúninga og þjóðbúningaskart í samstarfi við Byggðasafn Skag- firðinga og Byggðasafn Húnvetninga og Stranda. Þá munum við halda í þá hefð að bjóða upp á Upplestur á aðventu ásamt heitu súkkulaði og smákökum. Þegar haustar að hefst ævinlega vinna við innra starf safnsins, s.s. skráningu og varðveislu á nýjum aðföngum sem og frágangi á rannsóknarverkefnum

Heimilisiðnaðarsafnið er viðurkennt safn en til að hljóta hana þarf að uppfylla fjölmörg skilyrði bæði um sjálfstæði, eignarhald og ábyrgð í rekstri. Safnið hefur hlotið ýmsar viðurkenningar en daglegt þakklæti og hlýja safngesta ásamt fallegum ummælum vegna upplifunar, hughrifa og fróðleiks á sýningum safnsins er það sem stendur uppúr.

Skylt efni: söfnin í landinu

Vísnahornið
Líf og starf 28. apríl 2026

Vísnahornið

Í síðasta þætti birti ég vísu um mun á Húnvetningum og Þingeyingum. Óskar í Meða...

Hámóðins með hækkandi sól
Líf og starf 28. apríl 2026

Hámóðins með hækkandi sól

Það er skemmtilegt þegar sólin tekur að skína og ekki síst þegar hægt er að busl...

Risinn Reykjavíkurskákmótið
Líf og starf 27. apríl 2026

Risinn Reykjavíkurskákmótið

Opna Reykjavíkurskákmótið fór fram í Hörpu dagana 25.–31. mars. Mótið er að öllu...

23 slagir í einu spili
Líf og starf 27. apríl 2026

23 slagir í einu spili

Undankeppni Íslandsmótsins fór fram á dögunum í Fjölbrautaskólanum í Ármúla og v...

Bók um Svein búfræðing
Líf og starf 27. apríl 2026

Bók um Svein búfræðing

Maður er nefndur Sveinn Sveinsson (1849–1892), austfirskur. Svein má með réttu t...

Samkeppni um hönnun lopapeysu fyrir kvenbændur
Líf og starf 21. apríl 2026

Samkeppni um hönnun lopapeysu fyrir kvenbændur

Árið 2026 er alþjóðlegt ár kvenbóndans en af því tilefni hefur Uppspuni í Ásahre...

Klassísk blómfegurð stofuhindar
Líf og starf 20. apríl 2026

Klassísk blómfegurð stofuhindar

Litir og form garðblóma heilla ræktendur en vinsældirnar eru hverfular, nýjar te...

Lausn á vísnagátunni
Líf og starf 20. apríl 2026

Lausn á vísnagátunni

Lausn á vísnagátu.