Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 mánaða.
Leikhúslíf hefur verið mikilvægur hluti af menningarsögu Húsavíkur í heil eitt hundrað tuttugu og sex ár.
Leikhúslíf hefur verið mikilvægur hluti af menningarsögu Húsavíkur í heil eitt hundrað tuttugu og sex ár.
Mynd / Úr safni
Menning 23. mars 2026

Lifandi leikhús í yfir heila öld

Höfundur: Sigrún Pétursdóttir

Leikhúslíf hefur verið mikilvægur hluti af menningarsögu Húsavíkur í heil eitt hundrað tuttugu og sex ár. Í gegnum áratugina hefur áhugi heimamanna á leiklist haldið starf- seminni gangandi og skapað sterkar rætur áhugaleikhúss í bænum.

Það var akkúrat um aldamótin 1900 sem fyrsta skipulagða leiklistarstarfsemin hófst á Húsavík, þá með stofnun Sjónleikafjelags Húsavíkur. Það félag lagði grunninn að því sem síðar varð Leikfélag Húsavíkur, eitt elsta starfandi leikfélag landsins, stofnsett 1928.

Á fyrstu árum leiklistar á Húsavík voru aðstæður einfaldar og oft þurfti að leysa ýmis praktísk vandamál með hugviti og samvinnu. Sýningar voru þó vinsælar og urðu fljótt mikilvægur samkomustaður fyrir bæjarbúa. Leikhúsið gegndi því ekki aðeins hlutverki sem afþreying heldur einnig sem félagslegur vettvangur þar sem fólk kom saman, vann að sameiginlegum verkefnum og efldi menningarlíf bæjarins.

Eins og gengur og gerist í áhugaleikhúsum hefur starfsemi félagsins gengið í ákveðnum bylgjum. Stundum hefur verið mikil uppsveifla í starfinu með stórum og metnaðarfullum uppfærslum, en á öðrum tímum hefur starfsemin verið minni. Þrátt fyrir það hefur leikfélagið alltaf náð að halda áfram starfsemi sinni og aðlagast breyttum tímum.

Leikfélagið hefur einnig lagt áherslu á að fá ungt fólk til liðs við starfið. Það hefur reynst mikilvægt til að tryggja áframhaldandi þróun félagsins og halda leikhúshefðinni lifandi. Þátttaka yngri kynslóða hefur oft fært nýjar hugmyndir og ferskan kraft inn í starfsemina.

Mynd/tímarit.is

„Það má vera dauður maður sem ekki getur hlegið ...“

Sem dæmi má nefna að árið 1985 frumfluttu meðlimir leikhússins verkið „Ástin sigrar“ eftir Ólaf Hauk Símonarson, í tilefni stórafmælis leikhússins. Fékk sýningin afar góða dóma og á síðum dagblaðsins Tímans sást fyrirsögnin „Það má vera dauður maður sem ekki getur hlegið á sýningunni“.

Leikfélagið hefur oftar en einus inni farið suður yfir heiðar með leiksýningar en árið 1987 sýndi það fyrst leikfélaga leikrit þeirra systra Iðunnar og Kristínar Steinsdætra, „Síldin kemur og síldin fer“. Það leikrit var sýnt fjórum sinnum fyrir troðfullu húsi í Hafnarfirði, segir í Morgunblaðinu árið 1992, auk þess sem sagt er frá því að fyrirhugaðar séu sýningar á Gaukshreiðrinu í Bæjarbíói Hafnarfjarðar.

„Gaukshreiðrið var frumsýnt á Húsavík í lok janúar og þegar sýningum lauk fyrir norðan um síðustu helgi voru sýningargestir við séum „bara“ áhugaleikfélag. Þessi sýning verður ekkert minna en stórkostleg með öllum þessum hæfileikaríku leikurum og söngvurum! Lofum einnig hörku ljósashowi, reyk, tæknibrellum, leikhústöfrum og síðast en ekki síst, hörku fjöri!“ segir í greininni.

Klæðskiptingurinn og vísindamaðurinn alkunni, Frank-N-Furter, hefur hrist upp í tilverunni hjá fleirum en tölu verður á komið.

Rocky Horror á sviðið

Um þessar mundir stendur Leikfélag Húsavíkur í metnaðarfullri uppsetningu á söngleiknum Rocky Horror sem flestir kannast við. Verkið er eftir breska leikarann og rithöfundinn Richard O'Brien og var fyrst frumsýnt árið 1973. Það vakti strax athygli fyrir fjöruga tónlist, óhefðbundna persónusköpun og kraftmikla sviðsframsetningu.

Uppfærslan á Húsavík hefur kallað á mikla samvinnu og undirbúning, bæði hjá leikurum, tónlistarfólki og þeim sem vinna að sviðsmynd, búningum og tæknimálum.

Karen Erludóttir, aðstoðar- leikstjóri og stjórnarmeðlimur leikhússins, tekur undir þessi orð en bætir við að þótt LH sé eitt af elstu leikhúsum landsins séu þau stöðugt að heyra frá fólki í samfélaginu að þeim þyki sem nýtt leikhús sé mætt í bæinn. 

„Við í stjórn tókum nefnilega þá ákvörðun í haust að í ár myndum við breyta aðeins um stefnu, brjóta upp úr vananum og vera smá djörf með því að gera ýmislegt sem hefur aldrei verið gert áður. Okkur langaði nefnilega að efla félagið, ná betur til unga fólksins og nútímavæða okkur betur. 

Leikstjórinn í ár er Eyvindur Karlsson og er hann búinn að gera vægast sagt frábæra hluti með leikhópnum okkar. Sjálf er ég aðstoðarleikstjóri ásamt því að vera í stjórn. Leikararnir eru 14 talsins og eru þau búin að standa sig eins og hetjur á þessu krefjandi, en skemmtilega æfingatímabili. Rocky Horror er nefnilega ekkert lamb að leika sér við, held að mér sé óhætt að segja að hver einn og einasti leikari sé að stíga vel út fyrir sinn þægindaramma á sviðinu og gera það eins og fagmenn, þrátt fyrir að við séum „bara“ áhugaleikfélag. Þessi sýning verður ekkert minna en stórkostleg með öllum þessum hæfileikaríku leikurum og söngvurum! Lofum einnig hörku ljósashowi, reyk, tæknibrellum, leikhústöfrum og síðast en ekki síst, hörku fjöri!“

Heyrst hefur að áhorfendur megi eiga von á sannkölluðu VÁ-mómenti en Eyvindur leikstjóri hefur ekki leyft deilingu mynda af æfingum ... svo því mega leikhúsgestir eiga von á góðu.

Nú er þá bara að ná sér í miða hið snarasta en þeir fást á vefsíðu tix.is.

Frumsýning var á laugardaginn þann 14. mars.

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 24. september 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vogin blómstrar í vinnu eða skóla og finnur fyrir mikilli hvatningu til að klára...

Fjögur sunnudagsskákmót
Líf og starf 23. september 2026

Fjögur sunnudagsskákmót

Sunnudaginn 30. ágúst síðastliðinn var mögulega einhvers konar skákmet slegið. G...

Græðgin er óseðjandi púki
Líf og starf 23. september 2026

Græðgin er óseðjandi púki

Veðrið var gott og sumarið enn ekki búið. Sviðið er sumarbridds í Síðumúlanum. M...

Eitt stærsta skordýrasafn Austurlands
Líf og starf 22. september 2026

Eitt stærsta skordýrasafn Austurlands

Páll Halldór Benediktsson, bóndi á Hákonarstöðum á Efri-jökuldal, á stórt safn f...

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 21. september 2026

Stjörnuspá vikunnar

Meyjan tekur nú fyrstu skref sín full sjálfstrausts inn í nýtt tímabil. Hún má t...

Vísnahornið
Líf og starf 21. september 2026

Vísnahornið

Um allt land eru göngur og réttir, Philip Vogler, hefur lengi hjálpað til við sm...

Heimsókn úr öðrum heimi
Líf og starf 21. september 2026

Heimsókn úr öðrum heimi

Hann klæddi sig og fór að öllu hljóðlega enda enn mið nótt. Þau höfðu ekki orðið...

Með smjörkveðju!
Líf og starf 20. september 2026

Með smjörkveðju!

Saga smjörs sem slík hefur hér áður verið rakin á handahlaupum, en ekki allir vi...

Fjögur sunnudagsskákmót
23. september 2026

Fjögur sunnudagsskákmót

Græðgin er óseðjandi púki
23. september 2026

Græðgin er óseðjandi púki

Eitt stærsta skordýrasafn Austurlands
22. september 2026

Eitt stærsta skordýrasafn Austurlands

Arndís Inga
23. september 2026

Arndís Inga

Spurningar um vernd og vind
24. september 2026

Spurningar um vernd og vind