Ævintýraland forms og áferðar
Varðhundur frá árinu 1984 tekur á móti gestum sem koma á Hlöðuloft Korpúlfsstaða þar sem myndhöggvarinn Brynhildur Þorgeirsdóttir sýnir verk sín. Rýmið hefur umbreyst í landslag sem gestir geta þrætt sig eftir og hitt fyrir fjöldann allan af forvitnilegum einstaklingum.
Korpúlfsstaðir eiga sér langa sögu og var á sínum tíma bjargað frá glötun af listamönnum í Myndhöggvarafélaginu í Reykjavík, eins og Brynhildur rifjar upp. Tugir verka hennar eru nú á einkasýningu á Hlöðuloftinu, skammt frá heimili hennar og vinnustofu. Andi hálendisins svífur yfir vötnum, en þar stóð hún vaktina þegar heitasta baráttan um náttúruvernd á Kárahnjúkum stóð yfir. Sýningin stendur til 15. nóvember.
Eldfjöll og firnindi
Brynhildur er fædd og alin upp á Hrafnkelsstöðum III í Hrunamanna- hreppi, dóttir Þorgeirs Sveinssonar og Svövu Pálsdóttur. Hún segir yngsta bróðurinn hafa verið skilinn eftir heima til að taka við búinu. Sjálf flutti hún til borgarinnar, síðar til Hollands og Bandaríkjanna og aftur heim til Íslands. Glettin bendir hún á að Hrunamannahreppurinn hafi nýlega verið kosinn besti hreppurinn, en á svæðinu í kringum Korpúlfsstaði skaut hún sjálf djúpum rótum.
Brynhildur kallar sýninguna heimildasýningu. Verkin telja einhverja tugi og raða sér niður í rýminu svo úr verða spúandi eldfjöll og firnindi, dalir og vogar. Lifandi landslag sem gestir geta notið að líða um.
Á Hlöðuloftinu eru haldnar reglulegar sýningar, en rýmið er bæði flennistórt og hrátt og ljáir verkunum góða umgjörð. Þar er mikið andrými og birtan sem berst úr þremur áttum breytileg eftir tímum dags.
Þriðja augað
Hildigunnur Birgisdóttir liðsinnti Brynhildi við mótun sýningarinnar. Brynhildur kallar hana þriðja auga sýningarinnar. Hildigunnur er enda eins og ljósmóðir, hefur einstakan hæfileika til að aðstoða við fæðingar í myndlistinni, sjá nýjar hliðar og sjónarhorn, finna jafnvægi, hárrétta spennu og stundum snúa öllu á hvolf svo það geti lent mjúklega. Við erum minnt á gildi góðs samtals.
Í texta sínum um sýninguna segir Hildigunnur: „Hún hugsar með höndum og er meistari forms og áferða.“ Blaðamaður andmælir því sannarlega ekki, þarna er ævintýraland forms og áferðar. Upplifunin er næstum eins og verkin séu beintengd náttúruaflinu. Þau eru þegar betur er að gáð náttúra í sjálfum sér. Nema hvað.
Pönk að sigrast á erfiðleikum
Mamma Brynhildar stakk upp á að hún lærða að verða teiknikennari. Hún tók þeirri ráðleggingu og hélt til náms í höfuðborginni. Hún komst á sporið, en að loknu námi langaði hana ekki að verða kennari, hlutverk sem hefur þó fylgt henni samhliða myndlistariðkuninni og farist vel úr hendi. Úr kennaradeild Myndlista- og handíðaskólans þefaði hún þó uppi allt það nýjasta í nýlistadeildinni.
Hún flutti til Hollands og komst í kynni við deild í Gerrit Rietveld Akademíunni þar sem verið var að nota gler í myndlist, sem þá var nýlunda. „Það var ekkert verið að blása neina vasa. Ég var alltaf í baráttu með glerið. Ég var líka pönkari, en að leita mér að öðrum efnum til að vinna með. Þú verður að sigrast á erfiðleikunum. Þetta er svo skemmtilegur prósess, þú getur svo auðveldlega misst tökin og þá gerist eitthvað óvænt.“
Jurtaríkið er í glerblæstrinum
Í Bandaríkjunum kynntist Brynhildur sandsteypu og kolféll fyrir þeirri aðferð, sem hún hefur unnið með æ síðan. „Glerið er náttúruefni, rennur í mót eins og hraun. Í sandsteypunni ertu komin í steinaríkið, en í glerblæstrinum í jurtaríkið. Í glervinnslu fer spuni í gang, alls konar gerist,“ segir Brynhildur.
Heita glerið vinnur hún erlendis með teymi glerblásara. „Maður þarf að ná þeim með sér í leik,“ segir hún og nýtur þess greinilega að vinna með þessu móti, sem byggir á að gefa fyrirmæli, vera í samtali en stjórna ekki útkomunni. Margt kemur út úr þeirri vinnu sem miserfitt reynist að kljást við. Hún segir glerið alltaf vera hjartað í verkinu, þar hefjist það og við taki samtal við einstakling í mótun um hvernig hann vill verða.
Elsta verkið af Gullströndinni
Fyrir sýninguna var markmiðið að tæma verkin af vinnustofunni á Bakkastöðum, þar sem hún byggði sér íbúð með vinnustofu í félagi við fleiri vini, randbyggð við Leirvoginn.
Hún segir frá röð verka sem höfðu legið ókláruð í hillu á vinnustofunni allt frá árinu 1982. Hún þurfti ýmist að nálgast þau upp á nýtt til að geta klárað þau eða endurnýja viðhorf sitt til þeirra svo þau fengju að vera eins og þau vildu vera. Samtalið við þriðja augað var lykilatriði. „Ég var í vafa öll þessi ár, þau voru ekki í vafa.“
Elsta verkið á sýningunni lúrir í einu horninu og varpar hvítum krítarskugga í hornið. Það er af sýningunni Gullströndin andar, sem var tímamótasýning í íslenskri myndlistarsögu og opnaði í JL húsinu í upphafi árs 1983. Nýjustu verkin eru unnin í sumar.
Vinnustofan öryggi listamannsins
„Ég hef oft opnað vinnustofuna heima og vil að fólk skilji hvað liggur á bak við verk myndlistarmanna.“ Lokahelgina, laugardaginn 14. nóvember, býður Brynhildur gesti velkomna á vinnustofuna sína á Bakkastöðum 113. „Ég man þegar ég var að byggja að smiðirnir spurðu hvort ég ætlaði að setja milliloft á vinnustofuna, en svaraði því til að ég ætlaði að nota lofthæðina til að hugsa. Vinnustofan er öryggi listamannsins.“
Hún talar um mikilvægi viðhorfs listamanna og agnúast út í letjandi ellilífeyriskerfi sem skapandi einstaklingar láta bremsa sig af í að taka að sér nærandi verkefni.
„Ég er ekki haldin afkomuótta. En þegar allt er á heljarþröm þá græja ég eitthvað. Ég valdi mér að vera listamaður og ég er ekki að kvarta. Þetta er dásamlegt líf. En staðreyndir blasa við mér.“
Frekari dagskrá er samhliða sýningunni og gestir geta keypt stór og smá verk á afborgunum beint frá listamanninum.
Listamennirnir sem björguðu Korpúlfsstöðum
Á Korpúlfsstöðum varð bruni árið 1969. Fjórum árum síðar gerði hópur listamanna á vegum Myndhöggvarafélagsins í Reykjavík samning við borgina um að greiða krónu á ári í leigu. Rýmin voru ekki árennileg en gerð var gangskör að því og hópurinn hélt úti vinnustofum sínum og kom upp fjölda sýninga. Þar var heilmikið líf og fjör, ógleymanleg partí og ríkulegt samtal um listina. Brynhildur varð virkur þátttakandi í starfseminni á Korpúlfsstöðum og bjó þar um tíma.
Allt þetta má fá innsýn í á sýningunni þar sem er að finna gamlar ljósmyndir og fleiri ummerki um sprúðlandi sköpunarkraftinn sem þar ríkti. Brynhildur hefur nefnilega haldið til haga og safnað saman heilmiklum heimildum; ljósmyndum, blaðagreinum, sýningarskrám og ýmsum smáhlutum sem tengjast þessum suðupotti.
Brynhildur hefur því sterkar taugar til Myndhöggvarafélagsins í Reykjavík. Hún hefur starfað mikið innan þess, var formaður um árabil og gerður heiðursfélagi árið 2004.
Náttúruverndarsinninn
Brynhildur hefur nánast alla ævi eytt miklum tíma á fjöllum og sótt mikinn efnivið á hina ýmsu staði. Litbrigði landsins birtast í verkunum, hún á enda safn af sandi frá fjölmörgum stöðum á landinu.
Hún er mikill náttúruverndarsinni og sameinaði um langt árabil það að sækja sér innblástur og efnivið og afla tekna með skálavörslu og því að kokka fyrir fólk á ferð um hálendið.
Vinnustofan sjálf hefur því alltaf tengst hálendinu, og vinnuferlið teygt sig alla leið þangað. Brynhildur stóð kokkavaktina í baráttunni gegn virkjuninni á Kárahnjúkum.
Pönkarinn kemst við þegar tal okkar berst inn á hálendið. „Ég fer að skæla þegar ég heyri Smávini fagra. Hugsa til Kárahnjúka. Þetta er okkar þjóðsöngur. Æ, ég fæ tár í augun núna. Þetta er saknaðartilfinning, sorg. Við erum búin að tapa þessu. Farið.“ Dálítil þögn tekur við.
Hún segist alltaf hafa lagst út í hraun þegar færi gafst í óteljandi hálendisferðunum. „Ég fattaði ekki hrauntenginguna í verkunum fyrr en mörgum árum seinna.“ Eftir ábendingu fór hún að para ljósmyndir víða að úr íslenskri náttúru við verkin sín og sá hana þá, jafnvel við staði sem hún hafði aldrei komið á. „Þetta er bara í okkur.“
