Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Í Marokkó á lífrænum búgarði þar sem krydd- og lækningajurtir eru ræktaðar.
Í Marokkó á lífrænum búgarði þar sem krydd- og lækningajurtir eru ræktaðar.
Mynd / Aðsendar
Líf og starf 29. desember 2022

„Hugsjónin verður alltaf hluti af mér“

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Ný stjórn Slow Food Reykjavíkur var kjörin á aðalfundi 22. nóvember. Markverðustu breytingarnar eru líklega þær að Dominique Plédel Jónsson er ekki lengur í stjórn hreyfingarinnar eftir rúmlega 20 ára samfellda stjórnarsetu. Hún segist vera komin á aldur í þessum félagsstörfum en hyggst halda sínu striki, vera aðgerðasinni um betri, hreinni og réttlátari heim og leiðsegja Íslendingum áfram um marokkóskar matarlendur.

Dominique er kunn fyrir þekkingu á mat og víni, hefur skrifað um þau efni um árabil í Gestgjafann ásamt því að reka Vínskólann í samstarfi við son sinn, Eymar Plédel Jónsson.
„Eftir síðasta aðalfund er ég ekki lengur í stjórn, það er kominn tími til að láta nýtt og yngra fólk taka við. Ég er búin að vera formaður síðan 2008 og í stjórn frá stofnun deildarinnar árið 2001 þar sem öll vinnan er unnin í sjálfboðavinnu,“ segir Dominique. Hún segist þó eiga einu verkefni eftir ólokið, sem er að halda utan um framleiðslu og prentun á sögumiðum Slow Food- hreyfingarinnar fyrir íslenskar geitfjárafurðir.

Sögumiði fyrir íslensku landnámshænuna.
Sögumiðar hinna vernduðu afurða

Íslenska geitin er skráð í verndaráætlun Slow Food sem Presidia heitir. Þar veljast inn matvæli eða aðferðir við matvælaframleiðslu sem metið er að búi yfir sérstöku varðveislugildi vegna gæða eða sem menningarverðmæti. Áður hefur íslenska landnámshænan verið skráð inn í verkefnið og íslenskir ræktendur því fengið að skreyta sínar vöruumbúðir með rauða sniglinum, einkennismerki Slow Food. Það var fyrsta húsdýrið á Norðurlöndunum sem fékk þann heiður. Á umbúðum landnámseggja er sams konar sögumiði og verið er að útbúa fyrir geitabændur, þar sem sagan á bak við hvern ræktanda og afurðanna er sögð. Auk þess er íslenska skyrið skráð í Presidia.

„Við eigum eftir að skoða betur framtíðaráætlunina með þessa skráningu inn í Presidia, hvaða þýðingu þetta hafi fyrir fram- leiðendur og neytendur ekki síður, hvað fólk vill varðandi ostagerð og fleira. Svo þurfum við að fá miðana prentaða fyrir geitabændurna,“ segir Dominique.

Unga fólkið tekst á við stóru vandamálin

Í störfum sínum fyrir hreyfinguna hefur Dominique lagt mikið upp úr því að virkja unga fólkið til þátttöku í hugsjónastarfinu. „Ungt fólk er áberandi í nýju stjórninni og það er við hæfi. Það þarf að takast á við stærri vandamál en mín kynslóð hefur nokkurn tíma þurft að glíma við. Það þarf að taka ábyrgð á því sem verður.

Mín kynslóð er brúin á milli, hefur reynslu af hinu eðlilega í sambandi við landbúnaðinn, matvælaframleiðslu og neyslu, en hefur farið langt út fyrir mörk hins eðlilega einmitt í neyslu, græðgi og sjálfhverfu. Við, eldri kynslóðin, þurfum að minna á að það er hægt að lifa í þessum heimi ef nægjusemi og meðvitaðar skynsamar ákvarðanir eru í fyrsta sæti. Slow Food hefur sagt þetta í meira en 30 ár og er líklega besti grundvöllurinn fyrir ábyrga framtíð, því gleðin er innifalin í því að framleiða og borða góðan mat til dæmis.“

Eldhugar sækja sér innblástur til Íslands

Dominique segir að starfið fyrir hreyfinguna hafi kannski aðallega falist í að sá fræjum hugmyndafræði Slow Food. „Við höfum haldið okkur fast við einkennisorðin um að maturinn eigi að vera góður, ómengaður og á sanngjörnu verði fyrir bæði framleiðandann og neytandann. Hér erum við að tala um jafnrétti í verki,“ segir hún.

Reglulega hefur Dominique fengið áhrifafólk – sem aðhyllist hugmyndafræði Slow Food og tekur þátt í að móta hana – í heimsókn til Íslands á vegum Slow Food Reykjavík. „Það hefur verið einstaklega gefandi að fá áhrifamikið fólk til landsins á vegum hreyfingarinnar. Sumt kom til að flytja okkur sterkan boðskap, eins og Michael Pollan og Vandana Shiva, annað til að sækja sér innblástur og benda á möguleikana okkar. Þar fer fremstur í flokki auðvitað Carlo Petrini, stofnandi og forseti Slow Food, en líka aðrir frá Slow Food á Ítalíu, eins og Paolo di Croce og Piero Sardo, sem hafa verið með Carlo frá upphafi, auk annarra Slow Food eldhuga frá öðrum löndum.“

Frá Terra Madre Nordic í Stokkhólmi. Önnur frá vinstri er Elisa Demichelis, tengiliður Íslands frá höfuðstöðvum Slow Food í Bra á Ítalíu, svo Jannie Vestargaard, verkefnastjóri fyrir Terra Madre Nordic og nú formaður Slow.
Norðurlandasamstarfið

Dominique hefur unnið þétt með fulltrúum annarra Norðurlanda – til dæmis í kringum hátíðir Slow Food í Tórínó á Ítalíu, sem haldnar hafa verið annað hvert ár. Hún er fædd í Frakklandi og uppalin, bjó í Danmörku og Noregi í um tíu ár eftir að hún flutti til Íslands árið 1970. „Frá 2009 höfum við reynt að fá Norðurlöndin til að vinna beint saman og ég hef verið þar innanborðs frá fyrsta degi. Það tókst hins vegar ekki fyrr en í 2018 þegar við náðum að halda Terra Madre Nordic í Kaupmannahöfn, þar sem Íslendingar gerðu mikla lukku. Upp frá því var ég beðin um að taka að mér formennsku í Slow Food Nordic sem við stofnuðum formlega í Ulvik i Hardangerfjord 2013 og reyndi það á þrautseigju og þolinmæði að halda út vegna Covid-faraldurs og allra hindrananna sem honum fylgdi. Ég steig niður úr þeirri stöðu á Terra Madre Nordic 2022 í Stokkhólmi sem sömuleiðis heppnaðist mjög vel. Árangurinn af þessari starfsemi er að Norðurlöndin tala orðið mjög vel saman og að sömuleiðis eru tengslin við það sem er að gerast í gegnum Norrænu ráðherranefndina mun sterkari og trúverðugleiki Slow Food hefur fest sig í sessi sem aðgerðaaðili á Norðurlöndum.

Það er nefnilega sterk tilfinning á Norðurlöndum að við séum komin lengra en margir aðrir, en tilhneiging er að vilja fara leið „techno-fix“ til að leysa vanda sem blasir við á sviði matvælaframleiðslu og í landbúnaðinum – í staðinn fyrir að horfa meira til þess að við erum fyrst og fremst neydd til að breyta okkar neysluhegðun.“

Ábyrgur og óeigingjarn neytandi

Dominique segir að upp úr standi helst, frá þessum 20 árum, að hugmyndafræði hreyfingarinnar hafi mótað hana sem ábyrgan og óeigingjarnan neytanda.

„Hugsjónin verður alltaf hluti af mér,“ segir hún. Í gegnum störf sín fyrir hreyfinguna hefur hún myndað sér sterkar skoðanir á frumframleiðslu matvæla á Íslandi, enda unnið náið með framleiðendum – einkum smáframleiðendum, en hún var einn af stofnendum Samtaka smáframleiðenda matvæla á Íslandi.

„Ég hef frá upphafi haft fulla trú á að frumframleiðslan á Íslandi eigi jafn mikla möguleika og annars staðar í heiminum, jafnvel þó hún sé algjörlega á eigin forsendum. Það hefur þurft að hafa meira fyrir henni í gegnum tíðina en það hefur um leið haft þau áhrif að leiðin að rótum okkar matarhefða er styttri, sem hefur nýst okkur vel til dæmis við skráningu inn í Presidia-verkefnin og í Bragðörkina – annað verndarverkefni þar sem Ísland hefur skráð inn 23 matvæli sem teljast í útrýmingarhættu.

Ömmurnar muna hér heima eftir þessum menningararfi, sem er lifandi. Víða annars staðar er það kynslóðin á undan sem varðveitti þessa þekkingu og hún var farin þegar menn vöknuðu til vitundar. Ég lærði auðmýkt við að hlusta á fyrri kynslóðir hér heima, lærði að „glöggt er gests augað“ er líka hárrétt orðatiltæki.“

Unnið með fullt af ótrúlega góðu fólki

„Ég hef unnið með fullt af ótrúlega góðu fólki sem hefur gefið mikið af sér. Þátttaka Íslendinga í Terra Madre hátíðinni í Tórínó og ýmsum viðburðum er kannski ofarlega í huga, því þar eru allir þenkjandi um sama málefni og allar umræður fleyta manni fram í rétta átt. Það er ótrúlegur suðupottur með fólki sem kemur alls staðar að úr heiminum – maður er aldrei einn á Terra Madre.

Svo sitja eftir margir sannleiksmolar sem ég hef safnað í gegnum tíðina og koma oftast frá Carlo Petrini, setningar eins og „aðgangur að góðum og ómenguðum mat á ekki að vera forréttindi, heldur mannréttindi“ og „maður kýs með buddunni“ – sem þýðir að það er pólitískur gjörningur að kaupa í matinn – og margt fleira mætti nefna.“

Dominique með Carlo Petrini, stofnanda og forseta Slow Food, þegar hann kom til Íslands vorið 2017. Hann flutti fyrirlestur í Háskóla Íslands.

Boðskapurinn skilar sér til stjórnvalda

„Það er bara gleðiefni að heyra valdamenn í stjórnsýslunni í sífellt meira mæli tileinka sér hugmyndafræði Slow Food fyrir íslenska matvælaframleiðslu, jafnvel án þess að nefna hvaðan áhrifin séu komin. Það þýðir að við höfum gert það sem þurfti og að skilaboðin frá okkur hafa skilað sér á réttan stað. Slow Food eru hagsmunasamtök já, en í þágu allra. Ég verð að segja að ég hef fulla trú á matvælastefnunni sem er í mótun, og að sjálfsögðu mun þurfa hugrekki til að gefa ekki eftir í mikilvægustum atriðum. Í þágu allra.“

Sigurður í Pylsumeistaranum er Kjötmeistari Íslands
Líf og starf 16. apríl 2024

Sigurður í Pylsumeistaranum er Kjötmeistari Íslands

Sigurður Haraldsson í Pylsumeistaranum var krýndur Kjötmeistari Íslands í fagkep...

Paella með skelfiski
Líf og starf 16. apríl 2024

Paella með skelfiski

Paella er einfaldur réttur og til í ýmsum útgáfum, grunnurinn þó alltaf sá sami ...

Flugvélarflak í Eyvindarholti
Líf og starf 10. apríl 2024

Flugvélarflak í Eyvindarholti

Við Eyvindarholt undir Eyjafjöllum hefur gömlu flugvélarflaki verið komið fyrir....

„Hann gat ekki beðið“
Líf og starf 10. apríl 2024

„Hann gat ekki beðið“

Bændablaðið er mörgum ansi hjartfólgið enda nýtur blaðið mikils trausts meðal le...

Sefgoði
Líf og starf 10. apríl 2024

Sefgoði

Sefgoði er flækingur af goðaætt og fannst nýverið við Þorlákshöfn. Það er einung...

Fræ í frjóa jörð
Líf og starf 8. apríl 2024

Fræ í frjóa jörð

Fræbankar hafa á síðustu árum skotið upp kollinum hér og þar, en Svanhildur Hall...

Skyndibitar fyrir sálina
Líf og starf 5. apríl 2024

Skyndibitar fyrir sálina

Veitingar á vegum úti hafa í gegnum tíðina helst hljóðað upp á undirstöðugóðan a...

Íslensk tunga kveikir elda
Líf og starf 4. apríl 2024

Íslensk tunga kveikir elda

Undir Eyjafjöllunum skín alltaf sól segja sumir. Tíðarfarið, eins og víðast anna...