Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 ára.
Chanel taska frá vefsíðu nytjavarnings.
Chanel taska frá vefsíðu nytjavarnings.
Líf og starf 1. júlí 2022

Vintage Valentino, Gucci, Ganni ...

Höfundur: Sigrún Pétursdóttir

Heyrst hefur bak við tjöld tískuunnenda að lúxusveldið Valentino hafi haft það fyrir augum að endurselja nokkuð af þeim fatnaði sem hefur verið að hringsóla um jörðina undir þeirra merki.

Vouge Business staðfesti orðróminn á dögunum og mun veldi Valentino bjóða til sölu vintage fatnað í fjórum útibúum sínum nú í mánuðinum, en vilja forsvarsmenn fyrirtækisins stíga skref samhliða þeirri umhverfisvænu stefnu sem nú er við lýði.

Valentino Vintage
Klassískur rauður kjóll úr smiðju Valentino

Hugmyndin kviknaði fyrir ári, en síðastliðið haust setti fyrirtæki Valentino í gang söfnun undir nafninu Valentino Vintage þar sem eigendur vintage vara voru beðnir um að endurselja þá til vörumerkisins í skiptum fyrir inneign
í verslun.

Núna eru þessir hlutir til sölu yfir tveggja vikna tímabil í júní, en veldi Valentino mun taka yfir búðirnar Madame Pauline Vintage í Mílanó, The Vintage Dress í Tókýó, New York Vintage og Resurrection Vintage í Los Angeles til þess.

Gucci Vault

Með þessa stefnu í huga eru þó fleiri. Til dæmis má nefna hugmyndafræðina á bak við Gucci Vault þar sem gömlum fatnaði og fylgihlutum er gert hátt undir höfði. Um ræðir vefverslun sem býður upp á afar sjaldgæfa muni fortíðarinnar, vandlega innpakkaða – en á pakkningunni má finna auðkennisnúmer hlutarins auk klútar til varnar ryki. (Fyrir forvitna, sjá https://vault.gucci.com)

Ganni einu skrefi framar

Danska tískumerkið Ganni sem hefur oftar en einu sinni sýnt lit þegar kemur

„Feathery Dress“ Ganna

að umhverfisvernd, setti upp síðu á þessum nótum árið 2019 undir nafninu Ganni Repeat. Þar er lögð áhersla á endursölu og viðgerðir, í viðleitni til að vinna innan hringrásarhagkerfisins. Nýlega hleypti fyrirtækið svo af stokkunum endursöluvett- vangi sem gefur fólki aðgang til að kaupa og selja notaðan fatnað undir merkjum þess. Seljendur nýta sér svo tækni Reflaunt til þess að ákvarða verðlagninguna - fyrirtækis sem brúar bilið milli lúxusmerkja við markaðstorg nytjavarnings - sem skilar sér svo aftur í hringlaga hagkerfi auk þess að opna augu neytenda fyrir langvarandi gildi vandaðrar tísku (reflaunt.com).

Þegar eigur þeirra eru seldar er í boði að velja milli bankamillifærslu eða kaupinneignar með 20% aukaverðmæti, til að eyða á vefsíðunni www.GANNI.com.

Nytjavarningur lúxusmerkja

Fyrir þá sem vilja annars gera góð kaup á vefsíðum sem bjóða upp á nytjavarning lúxusmerkja er einna helst hægt að líta á hewi

Þar má finna vörur eftir hönnuði Prada, Chanel, Loewe, The Row, Gucci auk annarra, en einnig má selja sínar eigin notuðu eða lítt notuðu merkjavörur.

What Goes Around Comes Around er svo önnur síða, ekki síður skemmtileg og upplagt að renna yfir hana með morgunkaffinu.

Einnig eru til ógrynni vefsíðna sem selja nytjavörur sem ekki eru endilega undir merkjum lúxus en engu að síðar endingargóðar – og eða skemmtilegar – og um að gera að finna sér eitthvað til að bjarga heiminum frá endalausum hrúgum fatnaðar sem fara á haugana beint úr verksmiðjunum.

Skylt efni: tíska | endursala

Lausn vísnagátunnar úr 19. tölublaði
Líf og starf 26. október 2026

Lausn vísnagátunnar úr 19. tölublaði

Hér er lausn vísnagátunnar úr 19. tölublaði Bændablaðsins sem kom út 22. október...

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 22. október 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vogin upplifir hópverkefni ganga vel og öll samskipti, líka sem viðkoma ástinni ...

Ætlar þú að vera umvafin hlýju í haust?
Líf og starf 21. október 2026

Ætlar þú að vera umvafin hlýju í haust?

Nú í blessuðu haustrokinu vefja margir sig treflum – eðlilega og umhugsunarlaust...

Landslið og skólalið
Líf og starf 21. október 2026

Landslið og skólalið

Í síðustu viku tók Vesturbæjarskóli þátt í Evrópuundanrásum heimsmeistaramótsins...

Útspil fyrir lengra komna
Líf og starf 21. október 2026

Útspil fyrir lengra komna

Það er komið að útspilsþraut fyrir lesendur Bændablaðsins. Og áður en lengra er ...

Blái hnötturinn á svið
Líf og starf 21. október 2026

Blái hnötturinn á svið

Leikverkið stórfenglega, Blái hnötturinn, fór fyrst á svið árið 2001, en það er ...

Sveppir voru það, heillin ...
Líf og starf 21. október 2026

Sveppir voru það, heillin ...

Sveppatínsla hefur aldrei verið vinsælli á Íslandi en einmitt nú á haustmánuðum,...

Stór byggð fuglahræða við Kópasker
Líf og starf 21. október 2026

Stór byggð fuglahræða við Kópasker

Í æðarvarpinu á Snartarstöðum 2 við Kópasker eru tugir skrautlegra fuglahræða se...