Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 ára.
Fyrsti kossinn – Keflavík
Fyrsti kossinn – Keflavík
Líf og starf 12. september 2022

Titringur í lofti & tilhlökkun í hjörtum sviðslistafólks

Höfundur: Sigrún Pétursdóttir

Nú er kominn sá tími árs að þeir fjölhæfu meistarar áhugaleikhúsanna fari að gyrða sig í brók og búa sig undir að æfa fyrstu takta tilvonandi sýninga þessa misseris.

Eða vinna bak við tjöldin. Áætlaður æfingatími er um 6-8 vikur og í kjölfarið gleður meistaraverkið þá sem á horfa til jafns við þá sem koma að því.

Yfirlit áhugaleikhúsa – ef þig langar að vera með

Áhugaleikhús má finna víða um land, allt frá höfuðborgarsvæðinu til Hornafjarðar – en fyrir forvitna og þá sem áhuga hafa – samkvæmt upplýsingum frá Herði Sigurðarsyni, framkvæmdastjóra Bandalags íslenskara leikara, eru aðildarfélögin eftirfarandi:

  • Freyvangsleikhúsið Eyjafirði
  • Halaleikhópurinn Reykjavík
  • Hugleikur Reykjavík
  • Leikdeild UMF. Gnúpverja
  • Leikfélag A-Eyfellinga
  • Leikfélag Blönduóss
  • Leikfélag Dalvíkur
  • Leikfélag Fjallabyggðar
  • Leikfélag Flateyrar
  • Leikfélag Fljótsdalshéraðs
  • Leikfélag Hafnarfjarðar
  • Leikfélag Hofsóss
  • Leikfélag Hólmavíkur
  • Leikfélag Hörgdæla
  • Leikfélag Hornafjarðar
  • Leikfélag Húsavíkur
  • Leikfélag Hveragerðis
  • Leikfélag Keflavíkur
  • Leikfélag Kópavogs
  • Leikfélag Mosfellssveitar
  • Leikfélag Norðfjarðar
  • Leikfélag Ölfuss
  • Leikfélag Rangæinga
  • Leikfélag Sauðárkróks
  • Leikfélag Selfoss
  • Leikfélag Seyðisfjarðar
  • Leikfélag Sólheima
  • Leikfélag Vestmannaeyja
  • Leikfélagið Borg
  • Leikfélagið Grímnir Stykkishólmi
  • Leikfélagið Skagaleikflokkurinn Akranesi
  • Leikfélagið Sýnir sem starfar á landsvísu
  • Leikflokkur Húnaþings vestra
  • Leikhópurinn Lopi á Suðurlandi
  • Litli Leikklúbburinn Ísafirði
  • Stúdentaleikhúsið Reykjavík
  • Umf. Biskupstungna Leikdeild Bláskógabyggð
  • Umf. Dagrenning Leikdeild Lundarreykjadal
  • Umf. Efling Suður-Þingeyjarsýslu
  • Umf. Íslendingur Leikdeild Skorradalshreppi
  • Umf. Reykdæla Logalandi Umf. Skallagrímur Leikdeild.
Allir geta lagt hönd á plóg

Það er þá úr nógu að moða fyrir þá sem hafa hug á að leggja leiklistina fyrir sig, en einnig er vert að benda á störf þeirra er sjá um uppsetningu leikmyndar, smíðar, saumaskap, ljós, hljóð, tónlist eða í raun allt það sem viðkemur sviðslistum. Þar vantar að sjálfsögðu snillinga líka og um að gera að hafa samband ef áhugi er fyrir því að fá að vera með. Eins og einhver sagði – áhugaleikhúsin eru nær einu félagasamtökin sem ekki kostar í, þar er allur aldur velkominn og allir sem geta lagt hönd á plóg.

Þjónustumiðstöð BÍL veitir aðstoð á margan hátt

Ágætt er að vita að í þjónustumiðstöð BÍL (Bandalags íslenskra leikara) sem er á Kleppsmýrarvegi 8, 104 Reykjavík, er að finna stærsta leikritasafn landsins fyrir þá er hyggja á að setja upp leikrit.

Starfsfólk miðstöðvarinnar aðstoðar við útvegun sýningarleyfa og sér um innheimtu höfundargreiðslna, auk þess að veita aðra ráðgjöf, en síminn hjá BÍL er 551- 6974.

Lista yfir leikstjóra má svo finna á vefsíðunni www.leiklist. is undir flipanum Þjónusta og um að gera að kynna sér feril þeirra og fjölbreytileika.

Staðan þessa dagana

Eitthvað er um að leikfélögin séu þegar komin með næsta verkefni, ráðningar leikstjóra eru í pípunum og eftirvænting hjá meðlimum.

Eins og staðan er núna hafa þessi leikhús hafið uppsetningu á eftirfarandi verkum:

  • Leikfélag Hveragerðis: Benedikt búálfur,
  • Leikfélag Keflavíkur: Ronja ræningjadóttir,
  • Leikfélag Sauðárkróks: Skilaboðaskjóðan,
  • Leikfélag Fljótsdalshéraðs: Gulleyjan (eftir Robert Louis Stevenson)
  • Leikfélag Kópavogs: Tvö Dario Fo verk - Betri er þjófur í húsi en snurða á þræði/Lík til sölu

Leikfélag Hörgdæla áætlar að setja verkið Stelpuhelgi í sýningu eftir áramótin eða í febrúar 2023.

Leikfélag Vestmannaeyja er einnig með hugmyndir um barnaleikrit nú með haustinu á borð við Ávaxtakörfuna og hefur þegar ráðið leikstjóra til starfa.

Allar horfur eru því á góðu leikári og áhugasamir hvattir til að vera í sambandi við leikhúsin, hvort sem um ræðir að kaupa miða á sýningar, aðstoða við uppsetningu leikmynda, ljósa, hljóðhönnun eða annars, til dæmis því að spreyta sig á sviðinu.

Skylt efni: Áhugaleikhús

Lausn vísnagátunnar úr 19. tölublaði
Líf og starf 26. október 2026

Lausn vísnagátunnar úr 19. tölublaði

Hér er lausn vísnagátunnar úr 19. tölublaði Bændablaðsins sem kom út 22. október...

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 22. október 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vogin upplifir hópverkefni ganga vel og öll samskipti, líka sem viðkoma ástinni ...

Ætlar þú að vera umvafin hlýju í haust?
Líf og starf 21. október 2026

Ætlar þú að vera umvafin hlýju í haust?

Nú í blessuðu haustrokinu vefja margir sig treflum – eðlilega og umhugsunarlaust...

Landslið og skólalið
Líf og starf 21. október 2026

Landslið og skólalið

Í síðustu viku tók Vesturbæjarskóli þátt í Evrópuundanrásum heimsmeistaramótsins...

Útspil fyrir lengra komna
Líf og starf 21. október 2026

Útspil fyrir lengra komna

Það er komið að útspilsþraut fyrir lesendur Bændablaðsins. Og áður en lengra er ...

Blái hnötturinn á svið
Líf og starf 21. október 2026

Blái hnötturinn á svið

Leikverkið stórfenglega, Blái hnötturinn, fór fyrst á svið árið 2001, en það er ...

Sveppir voru það, heillin ...
Líf og starf 21. október 2026

Sveppir voru það, heillin ...

Sveppatínsla hefur aldrei verið vinsælli á Íslandi en einmitt nú á haustmánuðum,...

Stór byggð fuglahræða við Kópasker
Líf og starf 21. október 2026

Stór byggð fuglahræða við Kópasker

Í æðarvarpinu á Snartarstöðum 2 við Kópasker eru tugir skrautlegra fuglahræða se...