Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 21. september 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn

Einhver straumhvörf verða í lífi vatnsberans um þessar mundir sem þarf að taka nokkur skref út fyrir sinn þægindaramma ef hann ætlar ekki að festast í einhverju sem angrar hann. Besta lausnin til framfara er að leggja allt á borðið. Vatnsberinn þarf að taka eftir smáatriðum og gæta þess að vera opinn fyrir tilboðum sem honum berast. Happatölur 15, 32, 14.

Fiskarnir

Yfir nokkurt skeið hafa fiskarnir drattast áfram í þægindalegu sleni hversdagsins. Ánægðir með sitt ... eða öllu heldur ekki það óánægðir að þeim finnist þeir þurfa að rífa sig upp úr aðstæðum. Nú er þó upplagt að spyrja sjálfan sig hvert þeir séu í raun að stefna – því annars mun hversdagsslenið festa sig allhressilega í sessi og verða til mikils ama. Happatölur 16, 6, 78.

Hrúturinn

Nú hefur hrúturinn þraukað sumarið – þraukað jú, því eitthvað er það sem liggur honum á hjarta. Ástarmálin eða tilvera hans sjálfs yfirhöfuð er eitthvað sem honum finnst hann þurfa að krukka í en er hér með beðinn af öllum heimsins stjörnum að fá faglega aðstoð. Það gengur ekki lengur að þykjast geta fundið út úr öllu sjálfur. Happatölur 3, 12, 1.

Nautið

Nautið er umvafið jákvæðum öflum þessa dagana og nýtur bæði aðdáunar auk þess að finna ofurlítið til sín. Það ætti endilega að nota þennan umbreytingartíma (sem hann er í raun) til að missa ekki niður mojoið en heldur efla sig og finna hvernig sjálfstraustið – og álitið trekkir til sín hin ýmsu skemmtilegheit. Happatölur 45, 71, 13.

Tvíburarnir

Áhugaverður tími er að renna í garð, en máltækið enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur á hér við. Einhvern veginn er tvíburinn þannig samansettur að hann virðist lítið taka eftir sínu nánasta umhverfi, en þó, þegar eitthvað á vantar setur það skarð í flæði hugsana hans og tilveru. Tvíburinn skal því nú hafa augun opin og gæta vel að sínum nánustu. Happatölur 15, 16, 8.

Krabbinn

Krabbinn er loks á þeim stað sem honum ber að vera. Heimilið er honum mikill griðastaður og nú, ef hann færir nokkra hluti til, er bara eins og allt sé í nýju ljósi ... og krabbinn getur sæll unað haustvindunum. Hann þarf að muna að veita öllum athygli, ást og umhyggju en ekki einblína bara á sjálfan sig þó honum sé það tamast. Happatölur 27, 14, 9.

Ljónið

Ljónið þarf að gæta sín á umtali, bæði góðu sem slæmu því þau ljón sem hafa legið í dvala tvíeflast. Gæta þarf þess að fara ekki offari því afleiðingarnar gætu orðið til ama. Ljónið ætti, sem endranær, að gefa sér góðan tíma til að hlúa að sjálfum sér og sínum nánustu enda verður heilun aldrei fullkomin nema að litið sé sér nær. Happatölur 16, 52, 6.

Meyjan

Meyjan tekur nú fyrstu skref sín full sjálfstrausts inn í nýtt tímabil. Hún má treysta því að hún er akkúrat á þeim stað sem henni er ætlað að vera – og þær meyjur sem ekki eru sannfærðar, eða þjást af einhvers lags neikvæðni í eigin garð er bent á að hætta þeirri vitleysu. Happatölur, 21, 22, 14.

Vogin

Vogin er örlítið óörugg um þessar mundir, en þarf þess alls ekki ef litið er á heildarmyndina. Hún þyrfti í raun einungis að styrkja trúna á sjálfa sig, enda vel metin og þokkuð í alla staði. Vogin þarf annars nú með haustinu að gæta þess að klæða sig vel en henni er einna hættast við kvefi eða öðrum óskunda þegar kólna fer í lofti. Happatölur 16, 43, 73.

Sporðdrekinn

Öllu linnir um síðir, er máltæki sem sporðdrekinn ætti að hafa yfir í huganum nokkrum sinnum á dag, enda er nú fremur annasömu tímabili að ljúka og allt að fara í fastari skorður. Sporðdrekinn ætti eftir fremsta megni að njóta sín til hins ýtrasta með nánustu ástvinum og hugsa BARA um sjálfan sig. Happatölur 5, 24, 51.

Bogmaður

Bogamaður lítur til fjallanna með eftirsjá og hugsar um liðna daga. Ýmislegt hefði mátt betur fara gegnum tíðina, en nú er um að gera – miðað við tunglsstöðu – að rifja upp og helst ganga frá erfiðum málum sem þarfnast úrlausnar. Einhver veikindi eru í kortunum og því upplagt að nýta þann tíma til að hugsa svolítið. Happatölur 14, 12, 6.

Steingeitin

Gott er að hafa skýra sýn á það sem eftir líður vetri og einungis búast við hinu góða. Sleppa tökum á öllum kvíðavaldandi hugsunum og muna að njóta þess bara að vera til sem lengst því lífið getur boðið upp á svo margt ánægjulegt sem ekki þarf að flokkast undir keppni við aðra. Eins og steingeitin veit nú svosum. Happatölur 15, 5, 66.

Skylt efni: stjörnuspá

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 21. september 2026

Stjörnuspá vikunnar

Meyjan tekur nú fyrstu skref sín full sjálfstrausts inn í nýtt tímabil. Hún má t...

Vísnahornið
Líf og starf 21. september 2026

Vísnahornið

Um allt land eru göngur og réttir, Philip Vogler, hefur lengi hjálpað til við sm...

Heimsókn úr öðrum heimi
Líf og starf 21. september 2026

Heimsókn úr öðrum heimi

Hann klæddi sig og fór að öllu hljóðlega enda enn mið nótt. Þau höfðu ekki orðið...

Með smjörkveðju!
Líf og starf 20. september 2026

Með smjörkveðju!

Saga smjörs sem slík hefur hér áður verið rakin á handahlaupum, en ekki allir vi...

Drottning sveitasöngvanna
Líf og starf 18. september 2026

Drottning sveitasöngvanna

Söngkonan og mannvinurinn Dolly Parton var þekkt fyrir stórkostlega tónlist, gja...

Lausn á vísnagátunni
Líf og starf 14. september 2026

Lausn á vísnagátunni

Í 16. tölublaði hljómaði vísnagátan svona:

Lausn loftmyndagetraunar
Líf og starf 14. september 2026

Lausn loftmyndagetraunar

Lesendur voru að þessu sinni beðnir um að bera kennsl á þorp þar sem rúmlega 100...

Æfingamót Skákskólans hafið!
Líf og starf 9. september 2026

Æfingamót Skákskólans hafið!

Æfingamót Skákskólans er í fullum gangi þessa dagana. Mótið var upphaflega hugsa...