Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Jón Halldór Guðmundsson, Þröstur Árnason og Þorsteinn Bergsson voru meðal spilara á Skúlamótinu og skemmtu sér konunglega.
Jón Halldór Guðmundsson, Þröstur Árnason og Þorsteinn Bergsson voru meðal spilara á Skúlamótinu og skemmtu sér konunglega.
Líf og starf 22. september 2025

Lygileg sagngleði

Höfundur: Björn Þorláksson, bjornthorlaksson@gmail.com

Vestur gefur enginn á hættu. Á öðru borðinu voru spiluð 2grönd í suður og samningurinn lak einn niður.

Á hinu borðinu sátu Plejdrup og Lahrmann hinn ungi. Þeir spiluðu sex lauf í AV í stað þess að sitja í vörninni í 2 gröndum og unnu sitt spil, þar sem aðeins eitt útspil hefði banað samningnum, laufás.

Spilið kom upp í fjórðungsúrslitum í rimmunni um Bermúdaskálina í leik Svía og Dana.

Þar sem Plejdrup og Lahrmann höfðu völdin, opnaði vestur á laufi, pass, makker sagði spaða, suður stakk inn tveimur tíglum og vestur meldaði 2 hjörtu. Norðu meldaði nú þrjá tígla, dobl frá Larhmann, pass og nú gat vestur meldað 3 hjörtu og sýnt með því fimm hjörtu og lengra lauf. Sex til sjö stykki. Það dugði hinum tvítuga Lahrmann til að keyra í 6 lauf eftir að vestur hafði sýnt fyrstu fyrirstöðu í tígli. Nánast sannaður með eyðu í litnum eftir sagnir. Ef norður hefði fundið að spila út laufás og meira laufi væri þessi hetjusaga ekki sögð en svo fór ekki og 11 impar til Svíanna.

Lahrmann hefur vakið athygli fyrir lygilega innsýn í sögnum. Hljóta það að vera uppörvandi skilaboð til ungra spilara að hann hafi verið kominn í flokk bestu spilara heims aðeins 15 ára gamall í raun en hann stendur nú á tvítugu.

Skemmtilegt Skúlamót

Minningarmót um Skúla Sveinsson fór fram á Borgarfirði eystra á dögunum, en mótið er í hópi þeirra alskemmtilegustu að sögn aðstandenda og spilara. Þar er tilgangurinn með hittingnum ekki síður að kynnast fögru umhverfi og eiga huggulega stund saman en berjast með ásum, kóngum og öðrum spilum briddsíþróttarinnar. Úrslit tvímenningsins urðu þannig að Sigfinnur Snorrason-Sigurjón Karlsson unnu mótið. Þröstur Árnason-Björn Snorrason tóku silfrið en Vigfús Vigfússon-Jóhanna Gísladóttir silfrið.

Skylt efni: bridds

Lausn vísnagátunnar úr 19. tölublaði
Líf og starf 26. október 2026

Lausn vísnagátunnar úr 19. tölublaði

Hér er lausn vísnagátunnar úr 19. tölublaði Bændablaðsins sem kom út 22. október...

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 22. október 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vogin upplifir hópverkefni ganga vel og öll samskipti, líka sem viðkoma ástinni ...

Ætlar þú að vera umvafin hlýju í haust?
Líf og starf 21. október 2026

Ætlar þú að vera umvafin hlýju í haust?

Nú í blessuðu haustrokinu vefja margir sig treflum – eðlilega og umhugsunarlaust...

Landslið og skólalið
Líf og starf 21. október 2026

Landslið og skólalið

Í síðustu viku tók Vesturbæjarskóli þátt í Evrópuundanrásum heimsmeistaramótsins...

Útspil fyrir lengra komna
Líf og starf 21. október 2026

Útspil fyrir lengra komna

Það er komið að útspilsþraut fyrir lesendur Bændablaðsins. Og áður en lengra er ...

Blái hnötturinn á svið
Líf og starf 21. október 2026

Blái hnötturinn á svið

Leikverkið stórfenglega, Blái hnötturinn, fór fyrst á svið árið 2001, en það er ...

Sveppir voru það, heillin ...
Líf og starf 21. október 2026

Sveppir voru það, heillin ...

Sveppatínsla hefur aldrei verið vinsælli á Íslandi en einmitt nú á haustmánuðum,...

Stór byggð fuglahræða við Kópasker
Líf og starf 21. október 2026

Stór byggð fuglahræða við Kópasker

Í æðarvarpinu á Snartarstöðum 2 við Kópasker eru tugir skrautlegra fuglahræða se...