„Hann hét Erlendur Guðmundsson. Hann vildi aldrei fara til Kanada. Ósk hans var að fá að búa áfram á Íslandi. Annað hvort á Sæunnarstöðum í Hallárdal inn af Skagaströnd, þar sem hann hafði búið árin á undan í skjóli tengdaföður síns, eða á jörð foreldra sinna, Mörk í Laxárdal í Austur-Húnavatnssýslu.“
„Hann hét Erlendur Guðmundsson. Hann vildi aldrei fara til Kanada. Ósk hans var að fá að búa áfram á Íslandi. Annað hvort á Sæunnarstöðum í Hallárdal inn af Skagaströnd, þar sem hann hafði búið árin á undan í skjóli tengdaföður síns, eða á jörð foreldra sinna, Mörk í Laxárdal í Austur-Húnavatnssýslu.“
Mynd / Eysteinn Guðni Guðnason
Líf og starf 21. september 2026

Heimsókn úr öðrum heimi

Höfundur: Kristján B. Jónasson

Hann klæddi sig og fór að öllu hljóðlega enda enn mið nótt. Þau höfðu ekki orðið hans vör og hann vonaði að þau létu ekki á sér kræla. Honum hafði flogið þessi leið í hug daginn áður, að hann gæti komist undan þeim ef hann færi út á veginn og gengi góðan spöl frá bænum, að þau myndu ekki elta hann. Hann byggði þetta á hugboði. Hugur hans fálmaði eftir leiðum til að komast undan þeim og fá frið því nú var liðið á aðra viku frá því að hann svaf síðast lengur en sem nam stuttum blundi.

Það hafði skipt um frá því fyrsta daginn að hann tók á móti þeim. Þá hafði hann verið alsæll. Loksins hafði honum auðnast ekki aðeins að heyra hvað þau höfðu að segja, heldur sjá þau og ræða við þau. En mesti fögnuðurinn hafði þó verið að sá sem kom fyrst var bróðir hans „sem fús mundi hafa verið að leggja líf sitt í sölurnar mín vegna, ef á hefði þurft að halda,“ eins og hann skrifaði í frásögn sinni af þessum furðulegu dögum.

Nauð vesturfarans

Hann hafði verið í Manitoba í tuttugu og tvö ár. Allra fyrst, þegar hann kom vestur, hafði hann búið í Selkirk, um það bil miðja vegu milli Winnipeg og Gimli, en síðan höfðu þau konan hans, Ingibjörg Kristmundsdóttir, eignast skika við vatnið norðan við Gimli á stað sem nefndur er Loni Beach og var þegar leið á tuttugustu öld vinsæll sem sumardvalarstaður Winnipeg-búa. Þar bjuggu þau með hænur og höfðu kýr til heimilisnota. Hann átti nú tvö ár í sextugt, hafði verið þrjátíu og fimm ára þegar hann fór vestur, ári á eftir Ingibjörgu og dætrum þeirra tveimur.

Hann hét Erlendur Guðmundsson. Hann vildi aldrei fara til Kanada. Ósk hans var að fá að búa áfram á Íslandi. Annaðhvort á Sæunnarstöðum í Hallárdal inn af Skagaströnd, þar sem hann hafði búið árin á undan í skjóli tengdaföður síns, eða á jörð foreldra sinna, Mörk í Laxárdal í AusturHúnavatnssýslu. Frá því að hann hóf búskap á Sæunnarstöðum hafði hann eflst og efnast. Hann gegndi með öðrum oddvitastörfum fyrir hreppinn, Vindhælishrepp, sem var enginn smáhreppur, teygði sig frá Laxárdal fremri og Refasveit alla leið út að sýslumörkum nyrst á Skaga og hafði innanborðs þéttbýlið á Skagaströnd og síðar þorpsnefnuna Kálfshamarsvík. Þess vegna voru oft miklir snúningar hjá honum en honum fannst það léttvægt, honum fannst mikilvægt að vinna samfélagi sínu og sveit eitthvað til heilla. Hann var framfaramaður. Hann átti gott bókasafn. Hann velti mikið fyrir sér hvernig byggja mætti upp arðbæran rekstur í sveitunum, hvernig haga mætti málum svo erfiðið bæri ávöxt, hafði áhuga á trúmálum og sögu héraðsins, en var að öðru leyti ekki mjög upptekinn af pólitík, hinum flókna menúett sjálfstæðisbaráttunnar.

En honum fannst hann þurfa að fara. Honum fannst skömmin að því að skilja við eiginkonu sína og verða eftir á Íslandi of mikil til að hann gæti afborið hana. Ingibjörg hafði einsett sér að fara og hún tók stelpurnar með sér. Erlendur varð eftir til að ganga frá, selja eignir og gera upp skuldir, innheimta það sem út af stóð. Hann hafði margreiknað að vesturfararnir stórtöpuðu á flutningunum. Þeir sem eftir urðu sátu um að kaupa góss, skepnur og jarðir á slikk, því þegar ákvörðun hafði verið tekin um að fara virtist sem fólk léti bjóða sér nánast hvaða verð sem var fyrir það sem það átti. Vonin var hagsýninni yfirsterkari. Honum gramdist þetta. Honum fannst vesturferðirnar byggja á glópatrú.

Honum gramdist líka þrá eiginkonu sinnar eftir nýju lífi í Kanada. Í ævisögu sinni, „Heima og heiman“, kallar hann ákvörðun hennar „skapadóm“ sinn. Ingibjörg hafi ímyndað sér lífið í nýju landi þannig að allt erfiði íslenskra sveita yrði á bak og burt, þar þyrftu konur ekki að vinna. Hvað Ingibjörgu fannst sjálfri vitum við ekki, hún skildi ekki eftir ritaðar heimildir um langanir sínar.

Setið við oüija-borðið

Dætur þeirra tvær voru enn á barnsaldri þegar móðir þeirra fór með þær vestur. Þær gengu í skóla í Gimli og nágrenni og þegar þær urðu eldri fóru þær burt til að vinna og læra. Sú eldri, Brynhildur, kynntist smið ættuðum úr Borgarfirði. Þau settust að í Seattle á Kyrrahafsströnd, reistu þar hús og eignuðust börn. Sú yngri, Elín, vann í hinni frægu stórverslun Eaton's í Winnipeg og trúlofaðist manni þaðan úr bænum. Þar bjuggu þau haustið 1918 þegar spænska veikin gekk. Þau dóu bæði.

Andlát Elínar var foreldrum hennar reiðarslag, ekki síst föður hennar, sem var mjög hændur að börnum sínum, dætrunum tveimur og syni sem þau Ingibjörg höfðu eignast eftir komuna til Kanada. Þegar Erlendur heyrði af því að hægt væri að komast í samband við framliðna í gegnum „oüija“-borð, eða það sem við köllum nú oftast „andaglas“, keypti hann eitt slíkt. Hann vonaðist til að geta heyrt í dóttur sinni og hvernig henni reiddi af meðal hinna framliðnu.

Þetta bar árangur. Hann skráði samviskusamlega samræður þeirrar Elínar, spurningar og svör. Henni leið vel. Hún var komin á nýtt þroskastig. Erlendur skrifaði án afláts. Hann hafði gert það alla ævi, alveg frá því að hann var ungur maður í Mörk. Þá voru vel yfir tuttugu bæir í byggð á Laxárdal. Nú er framdalurinn allur farinn í eyði og bæjarstæðin gömlu græn tóttarbrot, þar með talin Mörk sem stóð í austurhlíðunum út og upp undan Auðólfsstaðaskarði, rétt niður undan Litla-Vatnsskarði þar sem þá lá alfaraleið úr þessum sveitum og út á Sauðárkrók um Víðidal á Vesturfjöllum. Raunar höfðu þau Erlendur og Ingibjörg fyrst hist á Króknum þegar Erlendur brá sér þangað frá Mörk til að sjá stórklassíkerinn „Ævintýri á gönguför“, kom auga á Ingibjörgu í áhorfendaskaranum og hreifst af því að hún var sú eina sem ekki hló.

En nú fór ýmislegt fleira að gerast við oüija-borðið.

Komið að handan

Á aðventunni árið 1921 gerðist nokkuð. Erlendur hafði þá um langt skeið rætt við framliðið fólk í gegnum andaglasið. Samt fékk hann ekki nóg. Hann vildi vita meira og fá að heyra meira.

Og honum varð að ósk sinni. Þann 17. desember stóð Jón bróðir hans einfaldlega fyrir framan hann eins og lifandi væri og hann lét aldeilis dæluna ganga. „Hefði einhver í gær spáð mér því, að ég ætti að ganga í gegnum það sem ég hefi persónulega reynslu fyrir á síðustu 22. kl.t., þá er enginn vafi á, að mér hefði þótt óspámannlega komist að orði.“ Jón reyndist ekki aðeins kominn til heims lifenda, heldur var hann einnig fjörugur og skemmtilegur og Erlendur átti nú loks aftur þær samræður sem hann mest þráði, samræður um kveðskap og sögur sem höfðu verið eftirlæti þeirra bræðra á meðan báðir lifðu. Jón hafði látist úr brjóstveiki heima í Mörk árið 1887, efnispiltur sem hafði gengið í Möðruvallaskóla og ætlaði að verða barnakennari.

Jón flutti Erlendi kveðju frá móður þeirra, Steinunni Erlendsdóttur, sem fædd var og uppalin á Sveinsstöðum í Þingi, og mundi vel til þess þegar Agnes og Friðrik voru höggvin þar uppi á hól. Steinunn hafði látist í Mörk árið 1898. Hún stóð svo fáeinum dögum síðar fyrir framan Erlend líkt og Jón, en koma hennar var ekki jafn gleðileg og fundurinn við bróðurinn. Hún ásakaði Erlend um ýmislegt og það sem kannski verra var, hélt fyrir honum vöku. Fleira fólk gerði sig heimakomið úr handanheimum, til að mynda enskir vísindamenn í hvítum sloppum, en verst voru þau mæðgin. Þau gátu ekki unnt Erlendi að hvílast og sofa, sama hvað hann reyndi. Þau ofsóttu hann og eltu og þegar hann loksins í örvæntingu sinni ákvað að flýja heimili sitt og ganga í áttina að Gimli reyndi hann hvað hann gat að hugsa ekki til áætlana sinna í von um að þau sæju ekki við honum.

En Erlendi varð ekki kápan úr því klæðinu. Þar sem hann gekk í dimmri desembernóttinni stóð Jón bróðir hans fyrir framan hann á veginum og spurði hvert hann væri að fara. Erlendur fór undan í flæmingi, sagðist bara hafa viljað fá sér frískt loft. „Það er ekki rétt,“ sagði Jón. „Ég veit að þú ert að flýja frá okkur.“ Erlendur spurði þá hvers vegna hann vissi það. „Af því að ég er í huga þér.“

Erlendur Guðmundsson vaknaði svo einn daginn á útmánuðum 1922, útsofinn. Jón og Steinunn og allir hinir voru á bak og burt. Hvernig það bar að er löng saga. Látum nægja að sinni að geta þess að oüija-borðið var ekki haft við hönd lengi á eftir.

Skylt efni: sagnaþáttur

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 21. september 2026

Stjörnuspá vikunnar

Meyjan tekur nú fyrstu skref sín full sjálfstrausts inn í nýtt tímabil. Hún má t...

Vísnahornið
Líf og starf 21. september 2026

Vísnahornið

Um allt land eru göngur og réttir, Philip Vogler, hefur lengi hjálpað til við sm...

Heimsókn úr öðrum heimi
Líf og starf 21. september 2026

Heimsókn úr öðrum heimi

Hann klæddi sig og fór að öllu hljóðlega enda enn mið nótt. Þau höfðu ekki orðið...

Með smjörkveðju!
Líf og starf 20. september 2026

Með smjörkveðju!

Saga smjörs sem slík hefur hér áður verið rakin á handahlaupum, en ekki allir vi...

Drottning sveitasöngvanna
Líf og starf 18. september 2026

Drottning sveitasöngvanna

Söngkonan og mannvinurinn Dolly Parton var þekkt fyrir stórkostlega tónlist, gja...

Lausn á vísnagátunni
Líf og starf 14. september 2026

Lausn á vísnagátunni

Í 16. tölublaði hljómaði vísnagátan svona:

Lausn loftmyndagetraunar
Líf og starf 14. september 2026

Lausn loftmyndagetraunar

Lesendur voru að þessu sinni beðnir um að bera kennsl á þorp þar sem rúmlega 100...

Æfingamót Skákskólans hafið!
Líf og starf 9. september 2026

Æfingamót Skákskólans hafið!

Æfingamót Skákskólans er í fullum gangi þessa dagana. Mótið var upphaflega hugsa...