Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
Aðalleikendur og tískufyrirmyndir sjónvarps- þáttanna vinsælu, Yellowstone.
Aðalleikendur og tískufyrirmyndir sjónvarps- þáttanna vinsælu, Yellowstone.
Líf og starf 27. september 2023

Dress í anda Yellowstone

Höfundur: Sigrún Pétursdóttir

Þann 7. desember árið 1977 birtist grein undir þáverandi „Tískuhorni“ Dagblaðsins, með yfirskriftinni: Kúrekaföt og prjónaðar sokkabuxur í tísku fyrir veturinn og vorið.

Þá reið bandarísk kúrekatíska yfir veröldina, allt frá beinsniðnum gallabuxum, kúrekahöttum og tilheyrandi jökkum. Kemur fram í greininni að þær konur sem kjósa síður að klæðast buxum megi bera grófar sokkabuxur við kjóla eða pils. „Sem betur fer fyrir okkur á þessu skeri eru nú í tízku þykkar mjög grófar sokkabuxur, jafnvel prjónaðar. I tízkuritum segir að þessar sokkabuxur eigi einnig að vera i mörgum og skærum litum og eigi konurnar að vera í gamaldags prjónaleistum utan yfir. Leistana á síðan að bretta niður á hálfhá stigvél eða ef verið er í síðbuxum að gyrða þær niður í leistana.“

Bendir greinarhöfundur á að sokkabuxur sem þessar megi sem best fitja upp á sjálf/sjálfur og þá um 60 lykkjur fyrir konur í meðalstærð. Lengd fer auðvitað svo eftir stærð þess sem mun klæðast sokkabuxunum.

Ekki fer sögum af hvernig almennt gengur að prjóna sokkabuxur svo vel fari en eflaust eru einhverjir lagnir við slíkt.

Yellowstone (þjóðgarðurinn)

Í dag er ekki annað hægt að segja en kúrekatískan sé farin að kitla marga, eins og vant er með reglulegu millibili. Tískufrömuðir vilja helst meina að þessar stundirnar sé það helst vegna áhrifa einna vinsælustu þáttaraðar Netflix um þessar mundir – Yellowstone. Fjalla þættirnir – sem hefur verið líkt við vestræna útgáfu af The Sopranos – um Dutton-fjölskylduna sem rekur nautgripabúgarð í bandaríska ríkinu Wyoming. Þar á fjölskyldan í erjum við hina og þessa en deilt er um landamæri eigna, við nágranna, indíána, byggingaverktaka svo eitthvað sé nefnt. Fyrir áhugasama má víst horfa á þættina í sjónvarpi Símans en einn aðalleikara er enginn annar en Kevin Costner (sem er í furðu góðu formi miðað við aldur).

Ríkið Wyoming er annars hvað þekktast fyrir Yellowstone-þjóðgarðinn, sem er fyrsti og elsti þjóðgarður heims, stofnaður árið 1872, og má rekja upphaf skipulegrar náttúruverndar beinustu leið til hans. Í þjóðgarðinum má finna heita hveri á borð við einn frægasta goshver heims, „ Old Faithful“, sem fær nafn sitt af því hve hann gýs reglulega. Áhugavert er að á meðan þarna er að finna mikið skóglendi urðu yfir 3.000 ferkílómetrar fyrir skógareldum árið 1988. Til þess að virkja betur vöxt trjáa eftir þau ósköp, var tekin sú ákvörðun, um 10 árum seinna, að úlfar voru fluttir í þjóðgarðinn, en þeim hafði verið útrýmt þar á þriðja áratug 20. aldar. Breytingar urðu á gróðurfari í kjölfarið og uxu ösp og víðir í meira mæli þar sem úlfarnir höfðu áhrif á staðsetningu grasbíta sem nörtuðu áður í trén.

Einn frægasta hver heims, „Old Faithful“, má finna í Yellowstone-þjóðgarðinum.

Klæðnaður alvörukúreka

Fyrir þá sem taka kúrekatískuna alvarlega má finna tillögur á aragrúa vefsíðna hverju helst á að klæðast. Ef um alvarlega fjárfestingu er að ræða þykir ráðlegast að byrja á því að festa kaup á Stetson kúrekahatti, einu vandaðasta merki kúrekahatta. Annað vandað merki, sem hóf göngu sína á vegum borgarinnar Dallas árið 1927, ber nafnið Resistol. Var nafnið leikur að orðum, en þar er vitnað í enska orðið resistance enda á hatturinn að gagnast í öllu veðri.

Stetson-hattar af bestu gerð

Fyrir smarta kúreka af öllum kynjum, má smella sér á Ralph Lauren gallaskyrtu, en öllu þekktari í hópum harðsvíraðra kúreka er merkið Ariat. Það verður þó með sanni að segjast að skyrturnar eru keimlíkar en þetta er allt spurning um hvort fólk er atvinnukúrekar eða helgardjammarar í kúrekalíki. Ariat skyrturnar eru öllu ódýrari, eða um þriðjungur þess sem þarf að punga út fyrir RL skyrtuna.

Nú, svo verður að nefna tegund skyrtu frá merkinu Filson sem hefur verið kúrekum innan handar síðan fyrir þarsíðustu aldamót (1897 ATH.). Þar ber hæst þykk bómullarskyrta undir nafninu „Moleskin Seattle Shirt“ og er hún talin hvað endingarbest allra skyrtna.

Kvenstígvél frá merkinu Ariat

Er merkið Ariat aftur á vörum manna er kemur að skófatnaði og eftir lýsingunni að dæma komast engin önnur kúrekastígvél með tærnar þar sem þau hafa hælana. Frá þeim koma handgerð stígvél meistara Leonborgar Mexíkó, en sú borg er annáluð fyrir listræna og vandaða handverksmenn. Fyrir áhugasama má leita eftir nafninu Stillwell cowboy boot a vefsíðu Ariat, en þau eru gerð úr úrvals amerísku buffalóleðri, með tvöföldum hæl, táfýluvörn og sterkum sóla og ekki víst að nokkurt skótau eigi þar sinn líka.

Óþvegnar gallabuxur og prjónaskapur

Að endingu verður að taka fram að hér hefur verið farið lauslega yfir fatnað ætluðum öllum kynjum og fyrir þá sem kjósa að ganga í kjólum fer ekki sögum af handprjónuðum sokkabuxum á vefsíðum tískunnar. Gallabuxur má hins vegar finna hvar sem er, aðalatriðið er að þær séu alls ekki úr teygjuefni, heldur endingargóðu gamaldags denimefni. Taka skal fram að þær fara best ef þær eru ekki þvegnar í nokkra mánuði ... Verði ykkur að góðu.

Skylt efni: tíska

Lausn vísnagátunnar úr 19. tölublaði
Líf og starf 26. október 2026

Lausn vísnagátunnar úr 19. tölublaði

Hér er lausn vísnagátunnar úr 19. tölublaði Bændablaðsins sem kom út 22. október...

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 22. október 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vogin upplifir hópverkefni ganga vel og öll samskipti, líka sem viðkoma ástinni ...

Ætlar þú að vera umvafin hlýju í haust?
Líf og starf 21. október 2026

Ætlar þú að vera umvafin hlýju í haust?

Nú í blessuðu haustrokinu vefja margir sig treflum – eðlilega og umhugsunarlaust...

Landslið og skólalið
Líf og starf 21. október 2026

Landslið og skólalið

Í síðustu viku tók Vesturbæjarskóli þátt í Evrópuundanrásum heimsmeistaramótsins...

Útspil fyrir lengra komna
Líf og starf 21. október 2026

Útspil fyrir lengra komna

Það er komið að útspilsþraut fyrir lesendur Bændablaðsins. Og áður en lengra er ...

Blái hnötturinn á svið
Líf og starf 21. október 2026

Blái hnötturinn á svið

Leikverkið stórfenglega, Blái hnötturinn, fór fyrst á svið árið 2001, en það er ...

Sveppir voru það, heillin ...
Líf og starf 21. október 2026

Sveppir voru það, heillin ...

Sveppatínsla hefur aldrei verið vinsælli á Íslandi en einmitt nú á haustmánuðum,...

Stór byggð fuglahræða við Kópasker
Líf og starf 21. október 2026

Stór byggð fuglahræða við Kópasker

Í æðarvarpinu á Snartarstöðum 2 við Kópasker eru tugir skrautlegra fuglahræða se...