Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 ára.
Stutt var í hláturinn á æfingum en þó reyndi fólk að hemja sig. Þarna eru þau Runólfur Óli Daðason sem Grettir, Jórunn (í stólnum), Guðný Lára Gunnarsdóttir og Stefán Örn Viðarsson í hlutverki Jóns Borgar. Í bakgrunni er Súsanna, eða Jónheiður Ísleifsdóttir.
Stutt var í hláturinn á æfingum en þó reyndi fólk að hemja sig. Þarna eru þau Runólfur Óli Daðason sem Grettir, Jórunn (í stólnum), Guðný Lára Gunnarsdóttir og Stefán Örn Viðarsson í hlutverki Jóns Borgar. Í bakgrunni er Súsanna, eða Jónheiður Ísleifsdóttir.
Líf og starf 28. október 2021

Beint í æð með Leikfélagi Selfoss

Höfundur: Sigrún Pétursdóttir

Leikfélag Selfoss var stofnað þann 9. janúar árið 1958 fyrir tilstuðlan Kvenfélags Selfoss. Leikfélagið var upphaflega nefnt Leikfélagið Mímir en nafninu var fljótlega breytt eftir beiðni þess efnis frá nemendafélagi Menntaskólans á Laugarvatni sem bar sama nafn.

Leikfélag Selfoss hefur frá upphafi verið afar virkt og verið í hópi virkustu leikfélaga landsins en settar hafa verið upp 1-2 sýningar nánast hvert einasta ár frá stofnun. Því ber helst að þakka gríðarlega dugmiklu og hæfileikaríku fólki sem starfað hefur í leikfélaginu í gegnum tíðina og hefur unnið sitt starf eingöngu af leiklistaráhuga. Síðan 1988 hefur leikfélagið haft til fullra afnota gamla iðnskólahúsið á Selfossi sem nú er kallað Litla leikhúsið við Sigtún – en þar er iðulega glatt á hjalla.

Undanfarnar vikur hefur staðið yfir uppsetning og æfingar á gamanleikritinu Beint í æð eftir Ray Cooney í þýðingu Gísla Rúnars Jónssonar heitins. Verkið er hvorki meira né minna en bráðfyndið og drephlægilegt, eða „Bráðdrepandi og hlægilega fyndið“ eins og leikstjórinn, Gunnar Björn Guðmundsson, mismælti sig svo skemmtilega á einni æfingunni.
Á sviðinu verða bæði þrautreyndir og glænýir leikfélagar, og úrvalsfólk á bak við tjöldin. Ellefu leikarar eru á sviði en í heildina koma um 40 manns að uppsetningunni í ár.

„Við vildum endilega hefja leikárið með hlátri og gleði, það veitir ekki af eftir síðustu misseri,“ segir Guðný Lára Gunnarsdóttir, formaður leikfélagsins. Frumsýning er þann 29. október en samkvæmt formanni eru aðrar sýningar flesta þriðjudaga kl. 18, fimmtudaga og föstudaga kl. 20 og sunnudaga kl. 18. Einhverjar sýningar geta forfallast en áætlað sýningarhald er út nóvember með möguleika á áframhaldi eftir áramót ef landið liggur þannig.

Vísnahornið
Líf og starf 28. apríl 2026

Vísnahornið

Í síðasta þætti birti ég vísu um mun á Húnvetningum og Þingeyingum. Óskar í Meða...

Hámóðins með hækkandi sól
Líf og starf 28. apríl 2026

Hámóðins með hækkandi sól

Það er skemmtilegt þegar sólin tekur að skína og ekki síst þegar hægt er að busl...

Risinn Reykjavíkurskákmótið
Líf og starf 27. apríl 2026

Risinn Reykjavíkurskákmótið

Opna Reykjavíkurskákmótið fór fram í Hörpu dagana 25.–31. mars. Mótið er að öllu...

23 slagir í einu spili
Líf og starf 27. apríl 2026

23 slagir í einu spili

Undankeppni Íslandsmótsins fór fram á dögunum í Fjölbrautaskólanum í Ármúla og v...

Bók um Svein búfræðing
Líf og starf 27. apríl 2026

Bók um Svein búfræðing

Maður er nefndur Sveinn Sveinsson (1849–1892), austfirskur. Svein má með réttu t...

Samkeppni um hönnun lopapeysu fyrir kvenbændur
Líf og starf 21. apríl 2026

Samkeppni um hönnun lopapeysu fyrir kvenbændur

Árið 2026 er alþjóðlegt ár kvenbóndans en af því tilefni hefur Uppspuni í Ásahre...

Klassísk blómfegurð stofuhindar
Líf og starf 20. apríl 2026

Klassísk blómfegurð stofuhindar

Litir og form garðblóma heilla ræktendur en vinsældirnar eru hverfular, nýjar te...

Lausn á vísnagátunni
Líf og starf 20. apríl 2026

Lausn á vísnagátunni

Lausn á vísnagátu.