Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Ullarvikupeysa 2022
Hannyrðahornið 6. september 2022

Ullarvikupeysa 2022

Höfundur: Hönnun: Guðbjörg Björgvinsdóttir Útfærslauppskriftar: AnnaDóraogMargrét.

Efni:
450-500-500-500-550 gr Þingborgarlopi í aðallit

50 gr af þremur litum í mynstur

20 gr af einum lit í mynstur

Í Ullarversluninni Þingborg fást pakkar með lituðu tvíbandi, 5 hespur 25 g hver. Eins fást pakkar með lituðum lopa, 4 dokkur 25 g hver. Þessir pakkar eru tilvaldir í mynstrið á peysunni. Eins gefur mynstrið á peysunni þann möguleika að leika sér enn meira með liti, hafa fleiri en gefið er upp eða jafnvel færri. Notið hugmyndaflugið og setjið saman liti að smekk hvers og eins.

Sokkaprjónar nr 3,5 og 5
hringprjónar nr 3,5, 40 og 80 cm
langir hringprjónar nr 5, 40, 60 og 80 cm langir heklunál

Munið að lesa alla uppskriftina áður en byrjað er.

Prjónafesta: 14 l og 21 umf í sléttuprjóni=10x10cm

Prjónað er úr plötulopanum tvöföldum. Bolur og ermar eru prjónuð í hring.

Bolur opin peysa:

Fitjið upp 123-133-148-163-173 l á 80 sm hringprjón nr 3.5, með aðallit, prj. fram og tilbaka byrjað á að prjóna brugðið á röngu og slétt á réttu, 3 umf, skipta yfir í mynsturlit 4, prjóna stroff (sjá mynstur á stroffi), fyrsta umf er á réttunni og byrjað á þremur sléttum lykkjum og umf endar á sama hátt. Í byrjun og enda á stroffi eru 3 sl l, ein l hvoru megin fer undir hneppulista. Að loknu stroffi er skipt yfir á 80 sm hringprjón nr. 5, tengt saman í hring, aukið út í fyrstu umferð um 0-0-1-0-6 l. Fitjaðar eru upp 2 aukalykkjur í upphafi umf sem eru prj brugðnar upp að stroffi í hálsmáli. Prjónað sl uns bolur mælist 44-48 sm. (Mælið viðkomandi og metið bolsídd.) Á dömupeysu er fallegt að gera ,,mitti“ á peysuna með því að taka úr á bol. Setjið merki í hliðar, takið úr 2lhvorumegin,*prj2lsaman,prj1lprj2lsaman*. Fyrst er tekið úr er bolur mælist 8-12 sm og síðan 2x aftur með 5 sm á milli. Alls eru teknar úr 12 l. Prj 5 sm, þá er aukið út aftur samsvarandi og með sama millibili og tekið var úr og endað með sama lykkjufjölda. Mælið ykkur og metið hvað þið viljið hafa bolinn síðan og hvar þið viljið að úrtaka byrji.

Bolur heil peysa:

Fitjið upp 125-135-145-160-175 l á 80 sm hringprjón nr 3,5, með aðallit, prj. í hring 3 sléttar umf, skipta yfir í mynsturlit 4, prjóna stroff (sjá mynstur á stroffi). Að loknu stroffi er skipt yfir á 80 sm hringprjón nr. 5, aukið út um 3-3-1-0-1 l í fyrstu umferð eftir stroff. Prjónað sl uns bolur mælist 44- 48 sm. (Mælið viðkomandi og metið bolsídd.) Gera mittissnið ef vill, sjá hér að ofan.

Ermar:

Fitjið upp 30-35-35-40-40 l á sokkap. nr. 3.5, með aðallit eins og neðan á bol og síðan með mynsturlit 4, prjónið í hring. Skiptið yfir á sokkap. nr. 5 þegar stroffi er lokið og aukið út um 6-6-6-6-6 l jafnt yfir umf. Prjónið 6 umf, aukið út um 2 l, (1 l eftir fyrstu lykkju og 1 l fyrir síðustu l í umf). Endurtakið aukningu 7-8-8-8-8 x upp ermi, með u.þ.b. 7-8 umf á milli þar til 52-59-59-64-64 l eru á prjóninum. Skiptið yfir á stutta hringprjóninn nr. 5 á u.þ.b. miðri ermi. Gott er að nota prjónamerki til að merkja þar sem aukið er út. Prjónið uns ermi mælist 46-52 sm. Mælið handlegg og finnið út rétta ermalengd. Byrjað er að mæla 5 sm frá handarkrika og mælt fram á hendi.

Axlastykki heil peysa:

Sameinið nú bol og ermar á 80 sm hringprjóninn nr 5. Setjið 5-5-5-5-5 síðustu l og 5-5-5-5-5 fyrstu l af ermum á prjónanælu. Setjið fyrstu 10-10-10-10-10 l af bol á prjónanælu, prj fyrri ermi 42-49-49-54-54 l, prj næstu 54-59-63-70-78 l af bol, gerið þá eins með seinni ermina og þá fyrri, setjið svo næstu 10-10-10-10-10 l af bol á prjónanælu og að síðustu 54-59-63-70-78 l af bol. Þá eru 192-216-224-248-264 l á prjóninum. Prj mynstur eftir teikningu. Notið styttri hringprjóna eftir því sem lykkjum fækkar. Þegar mynstri lýkur er tekið úr aukalega þar til 70-75-75-80-80 l eru eftir á prjóninum. Þá er skipt á 40 cm hringprjón nr 3.5 og prj mynstur á stroff frá umf 8 til umf 1, prj 3 umf slétt með aðallit. Fellið laust af. Gangið vel frá öllum endum og lykkið saman undir höndum.

Axlastykki opin peysa:

Sameinið nú bol og ermar á 80 sm hringprjóninn nr 5. Setjið 5-5-5-5-5 síðustu l og 5-5-5-5-5 fyrstu l af ermum á prjónanælu. Prj 26-28-32-36-39 l af bol að framan, prjónið fyrri ermina við 42-49-49-54-54 l, setjið næstu 10-10-10-10-10 l af bol á prjónanælu. Prjónið næstu 54-57-65-71-81 l af bol og setjið næstu 10-10-10-10-10 l á prjónanælu. Prjónið seinni ermina við og gerið eins og með hina og að síðustu 26-28-32-36-39 l af bol. Þá eru 190-211-227-251-267 l á prjóninum. Prj mynstur eftir teikningu. Notið styttri hringprjóna eftir því sem lykkjum fækkar. Þegar mynstri lýkur er tekið úr aukalega þar til 68-73-78-83-88 l eru eftir á prjóninum. Þá er skipt á 40 cm hringprjón nr 3.5 og prj mynstur á stroff frá umf 8 til umf 1, byrjað á þremur sléttum lykkjum og endað á sama hátt, prjónaðar 3 umf slétt á réttu og brugðið á röngu. Fellið laust af. Gangið vel frá öllum endum og lykkið saman undir höndum.

Listi:

Saumið í vél með beinu þéttu spori og samlitum tvinna í brugðningu að framan sitt hvoru megin, sem næst slétta prjóninu. Gott er að sauma tvisvar hvoru megin. Klippið upp á milli saumanna. Snúið réttunni á peysunni að ykkur og notið heklunálina til að taka upp lykkjur í hneppulista þvert á prjónið. Krækið í bandið með heklunálinni í gegnum lykkjurnar, en sleppið alltaf fjórðu hverri umferð, það er ágætis þumalputtaregla, þá er listinn passlega langur. Færið lykkjurnar jafnóðum yfir á hringprjón nr 3.5 80 sm langan. Prjónið stroff 2-3 umf ef það á að setja rennilás en 5-6 umf. ef setja á tölur og gerið þá hnappagöt með jöfnu millibili á annan boðunginn. Passið að affellingin sé mátulega strekkt. Til að fela sárið innan á eftir saumaskapinn, er gott að hekla eina umf af fastahekli yfir það og varpa það svo niður með einföldu spori. Mælt er fyrir rennilás eftir þvott og er hann hafður 3-4 sm styttri en boðungurinn mælist. Þræðið hann á og passið að mynstur standist á. Ef hann er saumaður á í saumavél er gott að sauma hann í sömu átt beggja megin og byrja þar sem mynstur byrjar og sauma að hálsmáli og eins þegar saumað er niður. Með þessari aðferð gengur betur að láta mynstur stemma en ef saumað væri sitt í hvora áttina.

Þvottur:

Þvoið flíkina í volgu vatni með góðri ullarsápu eða sjampói. Skolið vel og vindið svo í hálfa mínútu í þvottavél. Mikilvægt er að vélin fari strax að vinda, (þær eru misjafnar að þessu leyti) en sé ekki að veltast með flíkina fyrst, þá getur hún þófnað. Leggið peysuna á handklæði til þerris.

Skammstafanir:
l = lykkja, umf = umferð
prj = prjónið/prjónað sl = slétt

Hönnun: Guðbjörg Björgvinsdóttir
Útfærslauppskriftar: AnnaDóraogMargrét.

Skylt efni: lopapeysa

Lillemor bylgjuteppi
Hannyrðahornið 23. apríl 2024

Lillemor bylgjuteppi

Uppskriftina með fleiri myndum og nánari leiðbeiningum er að finna á www.GARN.is...

Kaðlahúfa
Hannyrðahornið 10. apríl 2024

Kaðlahúfa

Ein stærð, fullorðins

Létt pils fyrir sumarið
Hannyrðahornið 19. mars 2024

Létt pils fyrir sumarið

Létt og skemmtilegt pils prjónað úr Drops Safran. Nýttu þér 30% bómullarafslátti...

Baldur
Hannyrðahornið 5. mars 2024

Baldur

Stærðir: S M L XL

Þykk og góð hipsterhúfa
Hannyrðahornið 20. febrúar 2024

Þykk og góð hipsterhúfa

Fljótprjónuð húfa úr DROPS Snow á prjóna númer 7. Snow er ullargarn sem fæst í 5...

Yrja vettlingar
Hannyrðahornið 6. febrúar 2024

Yrja vettlingar

EFNI: 75g Hörpugull og sauðalitaður þingborgarlopi – undið tvöfalt

Kaðlasmekkur fyrir litlu krílin
Hannyrðahornið 23. janúar 2024

Kaðlasmekkur fyrir litlu krílin

Prjónaður smekkur fyrir börn úr DROPS Safran. Stykkið er prjónað fram og til bak...

Jólahúfa
Hannyrðahornið 19. desember 2023

Jólahúfa

Ein stærð