Varðveisla Guðmundarlundar
Mynd / Úr safni
Skoðun 13. apríl 2026

Varðveisla Guðmundarlundar

Höfundur: Beitir Ólafsson
Beitir Ólafsson.

Guðmundarlundur í Vatnsendahlíð í vatnsendalandi er eitt vistlegasta útisvæði Kópavogs og algjör perla fyrir fjölskyldur og ungmenni. Lundinum er einstaklega vel við haldið af Skógræktarfélagi Kópavogs sem heldur nú úti flottu leiksvæði fyrir börn, mini-golf velli, frisbí-golf velli, útigrillum, salernisaðstöðu og hefur Skógræktarfélagið m.a. staðið fyrir Ævintýri í Jólaskógi við góðar undirtektir. Talið er að um 200.000 manns heimsæki Guðmundarlund árlega.

Nú er þó svo komið að ekki er hægt að fresta mikilvægri fjárfestingu á svæðinu sem hefur setið á hakanum allt of lengi.

Rafmagns- og vatnsæðar eru ekki nægilega sverar til þess að anna eftirspurn. Þetta er ekki bara öryggismál heldur hefur þetta einnig áhrif á vænleika á útleigu veislusalar svæðisins. Rafmagni slær ítrekað út og svarar vatnsæðin ekki magni og þrýstingi. Í sinubrunanum um daginn ætlaði slökkvilið höfuðborgarsvæðisins að tengjast brunahananum í lundinum en þurftu að nota dælu svo nægt vatnsmagn og þrýstingur næðist upp til að geta sinnt slökkvistarfinu.

Húsakostir á svæðinu eru tveir, annarsvegar Gamla Húsið sem Skógræktarfélagið á og er með afnot af fyrir sína starfsemi og hinsvegar nýtt félags- og þjónustuhús sem er jafnframt fræðslusetur og veislusalur, Nýja Húsið.

Gamla húsið stendur undir nafni og er bara tímaspursmál hvenær það verður ónothæft. Þessu hafa starfsmenn svæðisins og stjórnendur í leik- og grunnskólum áhyggjur af. Á svæðinu hefur útikennsla aukist til muna og fá börn í Kópavogi mikilvæga útivist, fræðslu og tengingu við náttúruna og hafa nýtt Gamla húsið til að hita mat og sem aðsetur ef t.d. barn meiðir sig eða veður verður vont. Er húsið einnig aðstaða starfsmanna og sumarstarfsmanna.

Skógræktarfélag Kópavogs hefur horft til gámaeininga í eigu Kópavogsbæjar sem nýttar hafa verið við Þingholtsskóla og Kársnesskóla sem mögulegan arftaka. Kennarar bera gámunum góða sögu og er tilvalið að nýta það sem bærinn á nú þegar.

Við í Miðflokknum í Kópavogi teljum að svara verði kalli á úrbótum á svæðinu í þágu Kópavogsbúa. Þegar horft er á heildarmyndina og til langs tíma þá snýst þetta um meira en bara að viðhalda grænu svæði. Þetta snýst um að auka aðgengi barnanna okkar á öllum stigum skólakerfisins að útiveru og fræðslu, lýðheilsumál fyrir fólk á öllum aldri, samverustundir fjölskyldna og vina, öryggismál og margt fleira.

Guðmundarlundur er án efa eitt besta útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins og hefur skapað sér stóran sess í hjarta íbúa, á Skógrækarfélag Kópavogs stóran þátt í því og skilið miklar þakkir fyrir.

Það er löngu tímabært að setjast niður og skipuleggja þetta fallega svæði til framtíðar. Varðveitum Guðmundarlund, hlustum á ákallið og framkvæmum í þágu Kópavogs.

Höfundur er byggingarverktaki og í 3. sæti á lista Miðflokksins í Kópavogi í komandi sveitarstjórnarkosningum.

Nautgripasjúkdómar í Evrópu, gin- og klaufaveiki á búi í Slóvakíu
Skoðun 14. apríl 2026

Nautgripasjúkdómar í Evrópu, gin- og klaufaveiki á búi í Slóvakíu

Dagana 23. og 24. febrúar var árlega nautgriparæktar ráðstefnan, Kvægkongres, ha...

Varðveisla Guðmundarlundar
Skoðun 13. apríl 2026

Varðveisla Guðmundarlundar

Guðmundarlundur í Vatnsendahlíð í vatnsendalandi er eitt vistlegasta útisvæði Kó...

Loftslags- og orkupólitík sem gagnast bændum
Skoðun 13. apríl 2026

Loftslags- og orkupólitík sem gagnast bændum

Frá því að ný ríkisstjórn tók við höfum við beitt Loftslags- og orkusjóði með ma...

Ekkert um samningsmarkmiðin
Skoðun 8. apríl 2026

Ekkert um samningsmarkmiðin

„Óásættanlegt er að ganga til aðildarviðræðna að þjóðinni forspurðri og án þess...

Hvað mun ESB aðild þýða fyrir íslenskan landbúnað?
Skoðun 8. apríl 2026

Hvað mun ESB aðild þýða fyrir íslenskan landbúnað?

Mikil umræða á sér nú stað í við eldhúsborð og á netmiðlum landsins um kosti og ...

Framhald viðræðna við Evrópusambandið í ljósi sögunnar
Skoðun 8. apríl 2026

Framhald viðræðna við Evrópusambandið í ljósi sögunnar

Þegar aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið hófust á árunum 2009–2010 var ...

Það má ýmislegt segja um pakkann
Skoðun 7. apríl 2026

Það má ýmislegt segja um pakkann

Þótt þingsályktun þess efnis hafi ekki formlega verið samþykkt þá má gera ráð fy...

Jarmað, hneggjað, baulað ...
Skoðun 7. apríl 2026

Jarmað, hneggjað, baulað ...

Sameinuðu þjóðirnar hafa tileinkað árið 2026 konum í landbúnaði. Konur eru stór ...