Burðarhjálp
Eins og margir vita, settu Karólína Elísabetar- dóttir, sauðfjárbóndi í Hvammshlíð og Axel Kárason, dýralæknir í Sólheimum, upp úr 2019 á fót ítarleg leiðbeiningarmyndbönd í kringum burðarhjálp og sauðburð. Margir bændur um landið allt sendu myndefni í gegnum árin auk þeirra myndbanda sem Karólína tók á mismunandi bæjum í Skagafirði og AusturHúnavatnssýslum – þannig að um sannkallað samstarfsverkefni sauðfjárbændasamfélags er að ræða. Myndböndin eru öllum opin á Youtuberásinni „Leiðbeiningar um burðarhjálp“ og helstu leiðbeiningarnar eru einnig aðgengilegar á ensku og á þýsku (sjá frétt).
Mikilvægur þáttur flestra myndbanda eru lambalíkön í raunstærð og raunveruleg mjaðmagrind, sem Axel notar til að útskýra hvað er að gerast inni í kindinni á meðan burðarhjálp er veitt. Þrjár mismunandi lambastærðir, þar af eitt hrútlamb með stór horn, eru í boði. Sérstaklega flókið burðarvandamál er snúið leg – til að lýsa hjálparaðferðinni sem best, bjuggu félagarnir jafnvel til „leghálslíkan“ úr vatnsrör og sokk sem þjónaði tilgangInum vel.
Nýlega bættist eitt myndband við um sérstaka aðferð, sem hentar vel þegar hausinn kemst ekki í gegnum grindina ef fæturnIr fylgja með eins og venjulega. Ástæður geta verið stór horn, stór haus, stórt lamb og/eða á sama tíma þröng grind. Í þessu tilfelli eru bönd fest á fótunum, fæturnir settir aftur inn fyrir grindina, þá er hausinn sóttur á undan fótunum og síðan fæturnir sóttir hvor eftir annan með hjálp bandanna – þar sem hálsinn er talsvert mjórri en hausinn er núna nóg pláss. Á þennan hátt er álagið bæði á lambið og ána miklu minna og í þó nokkrum tilfellum er meira að segja hægt að gera keisaraskurð óþarfan, sem hefði annars verið eina lausnin. En aðferðin krefst sérstakrar varúðar, því böndin mega alls ekki hrökkva fram af og einnig þarf að gæta vel að fæturnir skaðist ekki eða að þeir skaði leghálsinn.
Samtals eru núna 24 myndbönd á íslensku í boði, líka um önnur góð ráð t.d. til að venja undir, til að setja inn magaslöngu eða til að koma líflitlum lömbum af stað. Auk þess koma öll helstu atriðin fram í sérstökum útgáfum á ensku og á þýsku til að auðvelda erlendu aðstoðarfólki vinnuna sína.
Mökkur sæðingahrútur: lambalitir
Eitt enn sem tengist sauðburði. Flestir bændur skrá liti lambanna strax við merkingu. Síðan 2024 hefur rannsóknarverkefni um kolótta og gula litinn verið í gangi í samstarfi við Gesine Lühken, prófessor í Þýskalandi. Mökkur frá Teigi 1, kolóttur sæðingahrútur, var talsvert notaður í vetur – ómetanlegt tækifæri til að ná umfangsmiklum gögnum til að fá vísbendingar hvernig kolótti liturinn erfist. Bændur eru þess vegna hvattir sérstaklega til þess að skrá liti allra lamba undan Mekki með nákvæmt litanúmer í staðinn fyrir að nota litanúmer 10. Við skráningu skiptir engu máli hvort lambið sé kolótt sjálft eða hvítt, gult eða jafnvel mislitt – allar slíkar upplýsingar nýtast í rannsóknina.
Höfundur er Karólína Elísabetardóttir, sauðfjárbóndi í Hvammshlíð
