Vísnahornið
Mynd / Ástvaldur Lárusson
Líf og starf 28. apríl 2026

Vísnahornið

Höfundur: Magnús Halldórsson

Í síðasta þætti birti ég vísu um mun á Húnvetningum og Þingeyingum. Óskar í Meðalheimi á Ásum orti svar fyrir hönd Húnvetninga:

Þingeyinga mesta mein

er montið sem þeir bera.

Það er betra í þeirri grein

að þykjast en að vera.

Það er við hæfi að kímniskáldið Káinn leiði lesendur á brautir komandi sólskinsstunda vorsins:

Þegar vetur víkur frá

og veðrið fer að hlýna,

þá er fögur sjón að sjá

sólina okkar skína.

Trúlega hefur enginn fjósamaður í veröldinni orðið jafn ódauðlegur og Káinn varð með sínum kveðskap:

Eg heyrði kýrnar hjala

um hljóða aftanstund;

og held þær hafi verið

að halda „kvenfélagsfund.“

Því allar ræddu´ í einu

og engin þagað gat,

þær töluðu´ um allt og alla,

og oftast þó um mat.

„Við erum fullar og feitar,

og fóðrið brestur ei:

Mais og malaðir hafrar

og mikið og kjarngott hey.“

„Mig varðar jú ekkert um það

og ekki´ er það „buisness“ mitt.

En heyrðu hérna, Skjalda!

hvenær er talið þitt?

„Kominn er kveldmatartími,

hvað skulum við nú fá?“

„Jú, þarna kemur nú K.N.

og kemur með andskotans strá!“

Um Jón Sigmar slátrara orti K.N.:

Þegar ævin endar hér,

öllum þrautseigari,

sína hinstu ferð hann fer

með fáein naut í „cari“.

Ekki síður magnað kímniskáld var Hjálmar Freysteinsson læknir frá Vagnbrekku í Mývatnssveit. Hann fer á kostum í árshátíðarbrag sínum:

Gerist vetrar veður blíð,

verður margur galinn,

allir heimta árshátíð,

ærnar, kýr og smalinn.

Af því verða útgjöld stór

sem undir þarf að rísa,

buxur, vesti, brók og skór

borgað er með Visa.

Verulega er veislan fín

og veislustjórinn natinn,

hani, krummi, hundur, svín

hafðir eru í matinn.

Kátur margur maður er,

magnast glens og söngur,

einn ég veit sem ætlar sér

aftur að fara í göngur.

Er á borðum eðalvín

og ekki vantar bjórinn,

galar, krunkar, geltir, hrín

guðdómlega kórinn.

Hér er í boði hámenning,

heldur fátt til vansa,

þegar allt er komið í kring

kyssast menn og dansa.

Margur karlinn klökkur bað

af kellu hrifinn sinni:

„Leyf mér nú að lúta að

látúnshálsgjörð þinni.“

Ansar konan „asninn þinn“,

er með geðið snúið,

„jæja þá í þetta sinn.“

Þá er kvæðið búið.

Alveg kostuleg limru-endurvinnsla Hjálmars Freysteinssonar á þekktustu vísu Kristjáns fjallaskálds:

Á eyðisandi einn um nótt ég sveima,

erindinu löngu búinn að gleyma.

Norðurlandið týnt,

telja má einsýnt

að nú á ég hvergi nokkurs staðar heima.

Umsjón: Magnús Halldórsson

mhalldorsson0610[hjá]gmail.com

Skylt efni: vísnahornið

Blómlegt skáklíf í Hafnarfirði
Líf og starf 13. maí 2026

Blómlegt skáklíf í Hafnarfirði

Undanfarna mánuði hefur skáklífið blómstrað í Hafnarfirði. Auk skákæfinga Skákde...

Sveinn Pálsson
Líf og starf 13. maí 2026

Sveinn Pálsson

Eitt af því sem einkennir vora tíma er að flest fyrirbrigði á jörðinni eiga sér ...

Blómin á þakinu á Vesturbæjarskóla
Líf og starf 12. maí 2026

Blómin á þakinu á Vesturbæjarskóla

Mikil gróska er í gróðurhúsinu á þaki Vesturbæjarskóla þar sem nemendur í sjötta...

Vísnahornið
Líf og starf 11. maí 2026

Vísnahornið

Þættinum barst kveðja frá Tómasi Inga Þorgrímssyni varðandi leturstærð:

Hólmavík rétt svar við myndagetraun
Líf og starf 4. maí 2026

Hólmavík rétt svar við myndagetraun

Hólmavík var staðurinn sem sást úr lofti í myndagetraun Bændablaðsins sem kom út...

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 4. maí 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn: Næstu dagar færa óvænta krafta og hugmyndir sem geta breytt þeim fr...

Lausn á vísnagátunni
Líf og starf 4. maí 2026

Lausn á vísnagátunni

Lausnin á vísnagátu úr 8. tölublaði Bændablaðsins.

Vísnahornið
Líf og starf 28. apríl 2026

Vísnahornið

Í síðasta þætti birti ég vísu um mun á Húnvetningum og Þingeyingum. Óskar í Meða...