ÍSL-MEX
Matarkrókurinn 12. nóvember 2026

ÍSL-MEX

Höfundur: Haraldur Jónasson

Þakklæti mitt fyrir fólk sem flytur til landsins og tekur með sér góðan mat á sér fá takmörk. Ég er svo glaður að mest framandi kryddið í stórmörkuðunum er ekki lengur gult karrí og ég er ótrúlega glaður fyrir kebaba, sushi og pólska pierógía.

Auðvitað eru nýir og framandi réttir ekki nein nýlunda hér á fróni. Við fáum flest allt lóðbeint frá útlandinu. Fyrst frá Noregi, þá Danmörku og svo auðvitað Bandaríkjunum eftir seinna stríð. Fólkið sem kom frá Víetnam í snemm-áttunni kom með nýja matarsýn og auðvitað vinir okkar frá Póllandi. Ég er svo glaður að geta keypt margar tegundir af súrum gúrkum úti í búð að það nær engri átt. Svo ekki sé talað um búðirnar. Pólskar, asískar og miðausturlenskar búðir hafa séð okkur frostbitnum frónbúum fyrir framandi nýjungum og góðu kryddi í mörg herrans ár. Kryddjurtir og sósur sem fást jafnvel nú bara úti í Jóabúð hefðu talist til framandi matargerðar fyrir ekki svo löngu.

En það er eitt þjóðerni sem gjarnan mætti sækjast örlítið meira í slagveður og slabb. Það eru Mexíkóarnir. Ég vildi óska þess að fleira fólk þaðan eða í það minnsta frá Mið-Ameríku sækti í það að eiga hér heima. Kryddið þaðan fæst nefnilega ekki svo gjarnan í búðunum hér. Cummin er eiginlega það eina – en mig langar í alla flóruna af chilikryddi, sterku, mildu og reyktu. Mig langar í betri tortíur, meira korn, og hvar eru tómatíódósirnar? Mig vantar þetta í líf mitt. Getum við ekki tekið höndum saman og opnað á Mið-Ameríkubrú?

Mig langar í gott takkó og það byrjar oft eins og svo margt annað á góðu fólki og góðri sósu.

Sósusósa

Salsa þýðir sósa, svo salsasósa, þessi sem við dýfum flögum í, heitir því sósusósa. Svo er hún í rauninni TEX-MEX. Ættuð norðan Rio Grandefljótsins, í Bandaríkjunum. Sósan sem við ætlum að búa til er mörgum bragðlaukum betri en sósusósan, en þó ekki beinlínis ekta MEX meira svona ÍSL-MEX.

Það sem þarf til að búa til sósu sem minnir eitthvað á Mexíkó eru þurrkaðir chili-ávextir. Ekki endilega þessir litlu sterku heldur þessir stóru, tæknilega bragðmiklar paprikur. Gaman væri að sjá garðyrkjubónda á Stór-Flúðasvæðinu kynna sér þá til ræktunar. Sumir chilíarnir eru auðvitað sterkir en flestir frekar mildir. Stundum eru þeir líka reyktir. Um að gera að prófa þá sem flesta. Vandamálið er að þá er erfitt að finna. Best að fara í krydddeildina í appelsínugula stórmarkaðnum. Þar eru þeir oft í neðstu grindinni, gleymdir af öllum og meira að segja starfsfólkið veit ekki almennilega af þeim. Þessu þarf að breyta. En hvað um það, svona gerum við þetta:

Hita smá matarolíu í pönnu og steikja gróft skorinn lauk og ferska papriku, gróft skorna sömuleiðis. Þegar það er kominn smá litur á grænmetið fara þrjú, fjögur hvítlauksrif út í og fimm miðlungsstórir þurrkaðir chiliávextir. Taka fræin úr fyrst, þau eru bitur. Ég var með þrjá Guajillo og tvo New Mexico chilía. Steikja saman í mínútu eða svo, ekki of lengi því hvort tveggja getur orðið biturt við bruna. Þá fer þurrkað krydd út í. Sirka tvær matskeiðar í heildina. Mexíkóskt óreganó hef ég því miður ekki séð hér á fróni en evrópska afbrigðið fæst í öllum búðum. Matskeið af því. Teskeið af sítrónupipar færir það ítalska nær því mexíkóska. Sama magn af cummin bindur okkur svo kirfilega í Mið-Ameríku.

Næst er það steinselja. Teskeið af því líka. Kóríanderfólk notar kóríander. Það er mexíkóskara en langt frá því allra. Þegar kryddið hefur fengið nokkrar sekúndur í pönnunni setjum við vatn svo rétt fljóti yfir. Ekki of mikið, við viljum ekki missa of mikið bragð í vatnið. Sjóða í nokkrar mínútur með loki eða þangað til þurrkaði chilíinn er orðinn sæmilega mjúkur. Veiða grænfóðrið úr og setja í blandara ásamt tveimur tómötum úr niðursuðudós. Ekki vökvanum, bara tómatnum. Hægt að nota ferskan og steikja og sjóða þá saman með hinu grænmetinu. Ég átti bara ekki ferskan, auk þess sem niðursoðnir eru oftar bragðmeiri. Blanda saman og smakka til með kjúklingakrafti og smá hunangi. Ef sósan er of þykk er hægt að þynna hana með smá af soðvatninu. Um að gera að nýta bragðið sem lak úr.

Þessi sósa hentar vel út á flest sem hægt er að steikja eða sjóða. Frábært á kjúkling og svínakjöt, nautahakk og fisk. Hentar þetta sérlega vel í takkó en líka hægt að drekkja baunum og hrísgrjónum í þessu. Getur svo verið grunnur að alls konar. T.d. með því að bæta við ananas, þá erum við komin ansi nálægt marineringu af frægum mexíkóskum rétti, taco al pastor. Sagði annars einhver þorskhnakkatakkó?

Áfram ÍSL-MEX!

3 stk. Guajillo chili

2 stk. New mexico chili

2 tómatar (ferskir/úr dós)

1 stk. laukur (lítill)

4 hvítlauksrif

2 tsk. hunang

2 tsk. kjúklingakraftur

1 msk. origano

1 tsk. cummin

1 tsk. sítrónupipar

1 tsk. steinselja

Skylt efni: matarkrókur

ÍSL-MEX
Matarkrókurinn 12. nóvember 2026

ÍSL-MEX

Þakklæti mitt fyrir fólk sem flytur til landsins og tekur með sér góðan mat á sé...

Rjómarækjupestópasta
Matarkrókurinn 27. október 2026

Rjómarækjupestópasta

Rækjur eru besta próteinið þegar hakk og spagettí-þreytan leggst yfir mannskapin...

Heitasta lifrarpylsan
Matarkrókurinn 21. október 2026

Heitasta lifrarpylsan

Nú með haustinu er ýmislegt sem á alltaf við og hefur verið óhvikult í fjölda ár...

Uppskeruhátíð og menningin, maður minn
Matarkrókurinn 2. október 2026

Uppskeruhátíð og menningin, maður minn

Mér yrði seint fyrirgefið af okkar kæru sauðfjárbændum ef kjötsúpan myndi gleyma...

Tvídýfa
Matarkrókurinn 17. september 2026

Tvídýfa

Stundum verður það bragðbesta til af slysni eða af hreinni tilviljun. Eins og ví...

Núðlur & nautarif
Matarkrókurinn 2. september 2026

Núðlur & nautarif

Fyrr á árinu fjallaði pistill minn um þrýstipotta og það hvernig ódýrari en seig...

Rækjuloka 2.0
Matarkrókurinn 20. ágúst 2026

Rækjuloka 2.0

Samloka með rækjusalati er ein af grunnstoðum X-kynslóðarinnar. Sér í lagi pökku...

Hann setur ekki grillið inn
Matarkrókurinn 7. ágúst 2026

Hann setur ekki grillið inn

Við neitum að víkja frá grillinu hvað sem lægðum og hæðum veðurfarsins líður. Fy...