Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 11 ára.
Út að leika − engin aldursmörk
Á faglegum nótum 21. janúar 2015

Út að leika − engin aldursmörk

Höfundur: Hjörtur L. Jónsson
Um hver áramót er Íslendingum gjarnt að strengja ýmis áramótaheit. Ekki hefur mér tekist að efna öll mín áramótaheit undanfarin ár, en það að fara út og leika mér oftar á ís hefur mér tekist nokkuð oft.
Fátt finnst mér skemmtilegra en að leika mér á góðu svelli og það fólk sem ég þekki og finnst gaman að fara út á ísilögð vötn og veiða, á skauta, hestbak eða á vélknúnum farartækjum virðast öll sammála um að fátt sé skemmtilegra.
 
Of oft sér maður fréttir af óhöppum út af veikum ís
 
Það eina sem maður þarf að passa vel upp á er að ísinn þoli þann þunga sem á honum er. Oft hefur verið vitnað í óhapp þegar nokkrir hestar fóru niður um ís á Reykjavíkurtjörn þegar ísinn brast undan þunga hestanna. Í því tilfelli var ísinn ekki nema um 10 cm þykkur og þegar svo margir hestar voru saman hlið við hlið fór sem fór. Í þessu tilfelli varð engum meint af, en of oft hefur veikur ís verið orsök harmleiks. Til að vera viss um að ísinn þoli þungann sem á hann er lagður er gott að bora í hann á nokkrum stöðum og á meðfylgjandi mynd er ágætis viðmiðunartafla um styrk í mismunandi þykkum ís. 
 
Á að vera sjálfsagður hlutur að vara við hættum
 
Á mörgum vötnum eru þekktir staðir þar sem ísinn er þynnri en annars staðar eða jafnvel vakir. Viti menn af svoleiðis á að vera sjálfsagður hlutur að vara við veikum ís til þeirra sem hyggjast fara út á ísinn. Förum varlega á ísnum og látum ekki óvarfærni skemma þá miklu skemmtun sem ísilögð vötn geta veitt manni. Góða veiði og skemmtun.
Ein umsögn um breytingar á búvörulögum
Fréttir 13. ágúst 2026

Ein umsögn um breytingar á búvörulögum

Ein umsögn barst í samráðsgátt um breytingar á búvörulögum og framlengingu búvör...

Norrænir sérfræðingar tala um reynslu sína af ESB
Fréttir 13. ágúst 2026

Norrænir sérfræðingar tala um reynslu sína af ESB

Bændasamtök Íslands boða til málþings á morgun, föstudaginn 14. ágúst, þar sem r...

Langvarandi tjón á síðasta minkabúi landsins
Fréttir 13. ágúst 2026

Langvarandi tjón á síðasta minkabúi landsins

Dalsbú í Mosfellsdal er síðasta minkabú landsins. Aðfaranótt 29. júlí var brotis...

Einni milljón króna úthlutað
Fréttir 11. ágúst 2026

Einni milljón króna úthlutað

Samfélagsverkefnið „Voices of Vík; Language, Culture & Community“, undir forystu...

Merkingaróreiða ríkir
Fréttir 11. ágúst 2026

Merkingaróreiða ríkir

Sjö framleiðendur nota upprunamerkið Íslenskt staðfest á vörum sínum. Eigandi Só...

Tregt til að skera niður landbúnaðarstyrki
Fréttir 10. ágúst 2026

Tregt til að skera niður landbúnaðarstyrki

Landbúnaðarstyrkir Evrópusambandsins virðast ætla að halda velli í næstu sjö ára...

Háskóli Íslands gerir moltu
Fréttir 10. ágúst 2026

Háskóli Íslands gerir moltu

Háskóli Íslands hefur keypt jarðgerðarvél sem býr til moltu úr matarafgöngum. Vé...

Þröstur Norðurlandameistari
Fréttir 10. ágúst 2026

Þröstur Norðurlandameistari

Norðurlandameistaramót í eldsmíði fór fram dagana 11.14. júní síðastliðinn í Tid...