Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 8 ára.
Sindri Sigurgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands, Heiðar Ásgeirsson, framkvæmdastjóri Landsmóts hestamanna 2016, og Lárus Ástmar Hannesson, formaður Landssambands hestamanna, á einum af nýju keppnisvöllunum á landsmótssvæðinu.
Sindri Sigurgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands, Heiðar Ásgeirsson, framkvæmdastjóri Landsmóts hestamanna 2016, og Lárus Ástmar Hannesson, formaður Landssambands hestamanna, á einum af nýju keppnisvöllunum á landsmótssvæðinu.
Fréttir 16. október 2015

Uppbygging mun nýtast Hólaskóla til framtíðar

Mikill fjöldi gesta sótti Hóla í Hjaltadal heim til að skoða nýja og glæsilega aðstöðu sem byggð hefur verið þar upp vegna Landsmóts hestamanna sem þar verður haldið sumarið 2016 og nýtast mun Háskólanum á Hólum að því loknu. 
 
Athöfn var á svæðinu að lokinni Laufskálarétt þar sem flutt voru ávörp og framkvæmdir kynntar auk þess sem Magnús Bragi Magnússon á Birtu frá Laugardal tóku fyrsta sprettinn á nýjum keppnisvelli sem gerður var á liðnu sumri. Það voru skipuleggjendur Landsmótsins sem buðu heim, hestamannafélögin í Skagafirði buðu upp á dýrindis kjötsúpu, lifandi tónlist ómaði um svæðið í fallegu haustveðri.
 
Fulltrúar hestamannafélaganna í Skagafirði, sem senn verða sameinuð í eitt öflugt félag, riðu ásamt nýkrýndum heimsmeistara í tölti, Kristínu Lárusdóttur, inn á nýjan keppnisvöll.
 
Sindri Sigurgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands, og Lárus Ástmar Hannesson, formaður Landssambands hestamanna, fluttu ávörp og þökkuðu þeim sem að uppbyggingu svæðisins hafa staðið, ekki síst fulltrúum Háskólans á Hólum og Sveitarfélagsins Skagafjarðar.
 
Sindri vakti athygli á því að miðasala á Landsmótið 2016 væri þegar hafin og með því að kaupa miða í forsölu sem nú stæði yfir gætu væntanlegir áhorfendur náð hagstæðum kjörum. Forsala stendur til næstu áramóta. Með því að bjóða miða í forsölu væri lögð áhersla á að Landsmót væri viðburður fyrir alla fjölskylduna. Þá hefur miðaverð til ungmenna verið lækkað til muna samanborið við síðustu landsmót. Skrið er á miðasölu og fer hún betur af stað en nokkru sinni fyrr og þá er einnig góður gangur í allri skipulagsvinnu fyrir mótið.
 
Nýir vellir, ný áhorfendasvæði og vaxandi eftirvænting
 
Mikil vinna hefur staðið yfir á væntanlegu mótssvæði undanfarna mánuði, en m.a. er búið að byggja nýjan kynbótavöll og áhorfendasvæði við hann, byggður hefur verið nýr keppnisvöllur fyrir gæðingakeppni og áhorfendasvæði við hann einnig, ásamt því að vegir hafa verið lagðir utan um væntanlegt tjaldsvæði sem og víðar á svæðinu. 
 
Heiðar Ásgeirsson, framkvæmdastjóri Landsmóts, segir að fram undan sé vinna við raflagnir, lagningu ljósleiðara og fleiri verkefni í þeim dúr. „Þessar framkvæmdir utandyra mynda svo ásamt glæsilegum húsakynnum, reiðhöllum og hesthúsum frábært svæði fyrir landsmót. Við heyrðum ekki annað en gestum sem heimsóttu landsmótssvæðið hafi litist vel á og mikil eftirvænting er ríkjandi fyrir landsmóti, ekki síst því að nú verður haldið landsmót á Hólum fimmtíu árum eftir að það var haldið þar síðast,“ segir Heiðar.
 
Lyftistöng fyrir starfsemina á Hólum
 
„Vinna við skipulag flestra þátta varðandi mótshaldið er komin vel á veg og fyrr en oft áður. Við finnum mikinn meðbyr með verkefninu. Hestamenn í Skagafirði standa þétt að baki þessu verkefni og þá finnum við mikinn áhuga í hópi fyrrverandi nemenda Hólaskóla, þeir vilja ólmir koma á landsmót enda gefur það einstakt tækifæri til endurfunda við skólann og svæðið.“
 
Sindri og Lárus lögðu báðir áherslu á að landsmótssvæðið yrði mikil lyftistöng fyrir starfsemi Háskólans á Hólum, sem væri mikilvægasta einstaka stofnunin sem tengdist hestamennsku. „Þessi uppbygging mun nýtast Hólaskóla í framtíðinni og því eru þessar framkvæmdir mikil lyftistöng fyrir hestatengt nám á Hólum. Þær munu án efa efla hrossarækt og hestamennsku í landinu,“ segir Sindri.
 
„Hólaskóli er æðsta menntastofnun Íslandshestamennskunnar í heiminum og fjöregg okkar hestamanna. Allt sem gert er hér mun nýtast svæðinu vel,“ segir Lárus. 

12 myndir:

Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...