Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Undirritun viljayfirlýsingar, frá vinstri, Magnús Jóhannsson, fulltrúi Landgræðslu ríkisins, Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra, Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra og Þorsteinn Gunnarsson, sveitarstjóri Skútustaðahre
Undirritun viljayfirlýsingar, frá vinstri, Magnús Jóhannsson, fulltrúi Landgræðslu ríkisins, Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra, Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra og Þorsteinn Gunnarsson, sveitarstjóri Skútustaðahre
Fréttir 25. apríl 2018

Svartvatn nýtt til land­græðslu á Hólasandi

Höfundur: Margrét Þóra Þórsdóttir
Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra og Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra rituðu á dögunum, ásamt fulltrúum Skútustaðahrepps og fulltrúa Landgræðslu ríkisins, undir viljayfirlýsingu um samstarf við úrbætur í fráveitumálum við Mývatn. 
 
Unnið verður að framkvæmd þróunarverkefnis, sem felst í því að taka seyru úr skólpi í byggð við Mývatn og nýta hana til uppgræðslu á illa förnu landi á Hólasandi. 
 
Leitað hefur verið lausna um hríð á fráveitumálum við Mývatn, ekki síst vegna áhyggna vísindamanna um að næringarefni úr fráveitu geti haft neikvæð áhrif á lífríki vatnsins. Lausnin sem nú verður unnið að er að miklu leyti nýmæli á Íslandi, en hún felst í aðskilnaði svokallaðs svartvatns og grávatns, þar sem svartvatni er safnað og ekið burt og það síðan nýtt fjarri vatninu til landgræðslu. 
 
„Þetta er góð lausn fyrir Mývatn og fyrir umhverfið,“ segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra. „Ávinningurinn við þetta er þríþættur; álag á lífríki Mývatns minnkar, næringarefnin eru nýtt sem áburður til landgræðslu og þessi lausn er hagkvæmari en þær lausnir sem hafa lengst af verið á borðinu. Hér er varúðarreglan virkjuð og hagsmunir náttúrunnar hafðir í fyrirrúmi.“
 
„Með þessari viljayfirlýsingu er staðfestur ríkur vilji ríkisstjórnarinnar til að koma að þessu mikilvæga verkefni með heimamönnum“ segir Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra.
 
„Ein helsta forsenda fyrir aðkomu ríkisins að málinu er hið einstaka lífríki Mývatns- og Laxársvæðisins, sem nýtur verndar að lögum en Mývatn var fyrsta svæðið sem Ísland tilkynnti til alþjóðlegrar skrár um verndun votlendis á grundvelli Ramsar-sáttmálans. Það er sérstakt gleðiefni hversu vel heimamenn hafa haldið á þessu verkefni í samstarfi allra aðila. Þannig hefur verið fundin hagkvæm og umhverfisvæn lausn með aðkomu íslenskra sérfræðinga á fjölmörgum sviðum, allt frá verkfræði til landgræðslu.“
 
Umræða hefur verið um ástand lífríkis í Mývatni um nokkra hríð, meðal annars á Alþingi. Vísindamenn hafa lýst yfir áhyggjum að innstreymi næringarefna af mannavöldum kunni að ýta undir bakteríublóma og fleiri neikvæða þætti í vistkerfi vatnsins. Umhverfis- og auðlindaráðuneytið lét gera úttekt á fráveitumálum við Mývatn 2017 og í kjölfar hennar gerði Skútustaðahreppur umbótaáætlun, þar sem fram kom að sveitarfélagið taldi sig ekki geta hrint henni í framkvæmd án aðstoðar ríkisvaldsins, þar sem kröfur væru strangar og umbætur dýrar fyrir fámennt sveitarfélag. Í desember 2017 ákvað ríkisstjórnin að ganga til viðræðna við Skútustaðahrepp um mögulega aðkomu ríkisins að fráveitumálum.
 
Skútustaðahreppur setti svo fram nýja umbótaáætlun, sem var samþykkt af heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra í mars. Í kjölfar þess var gengið frá samkomulagi um aðkomu ríkisvaldsins að umbótaáætluninni, verkaskiptingu aðila og fjármögnun. Það samkomulag var formfest í viljayfirlýsingunni sem ritað var undir um liðna helgi.  
Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...