Vegagerðin áætlar talsverðar framkvæmdir í sumar og haust, m.a. á Austurlandi, þó ekki sérstaklega í Berufirði þar sem þessi mynd er tekin.
Vegagerðin áætlar talsverðar framkvæmdir í sumar og haust, m.a. á Austurlandi, þó ekki sérstaklega í Berufirði þar sem þessi mynd er tekin.
Fréttir 18. júní 2025

Stagað í innviðaskuldina

Höfundur: Steinunn Ásmundsdóttir

Vegagerðin hefur jafnan í nógu að snúast í vegaframkvæmdum um leið og vetri léttir og talsverðar framkvæmdir á dagskrá í sumar og haust.

Miklar umræður hafa verið um innviðaskuld í vegakerfinu og vanfjármögnun viðhalds á vegum. Stjórnvöld hyggjast veita þremur milljörðum til viðbótar í viðhald og þjónustu vega í ár og er það um 25% hækkun á framlögum sem voru á bilinu 5-6 ma. í fyrra og í ár. Hefur um 12 mö. verið veitt til árlegs viðhalds allra síðustu ár og því um það bil helmingur þess farið í slit- og burðarlagsframkvæmdir á vegum. Samkvæmt fjármálaáætlun 2026–2030 er stefnt að aukningu um allt að 5 ma. árlega í viðhald.

Strax á næsta ári á þó að verja 7 mö. aukalega til viðhalds og þjónustu á vegakerfinu.

Hér á eftir gefur að líta það helsta í vegaframkvæmdum ársins á landsbyggðinni skv. upplýsingum Vegagerðarinnar.

Stærstu verkefnin sem eru boðin út á þessu ári, klárast eða eru í gangi:

Vestfjarðavegur (60) um Gufudalssveit: Í Gufudalssveit er verið að vinna að þverun Gufufjarðar og Djúpafjarðar. Um þessar mundir er verið að setja út fyllingu í þessa firði ásamt bráðabirgðabrú yfir Gufufjörð. Verktaki við þessa framkvæmd er Borgarverk ehf. og eru áætluð verklok haustið 2025. Næsti áfangi í útboðsferli er að byggja 130 m brú á Gufufjörð og 58 m brú á Djúpafjörð. Tilboð voru opnuð í lok apríl 2025 en ekki er búið að semja við verktaka. Áætluð verklok eru í september 2026. Síðan er áætlað að bjóða út lokaáfangann í lok árs 2025 en þar er um að ræða smíði og uppsetningu á um 250 m langri stálbogabrú yfir Djúpafjörð ásamt lokafrágangi vega um firðina. Ekki er búið að áætla endanleg verklok en verið er að horfa til loka árs 2026 eða hausts 2027.

Vestfjarðavegur (60) um Dynjandisheiði: Núverandi framkvæmd er lokaáfangi verksins og er um 7,2 km auk Dynjandisvegar um 0,8 km. Þessi áfangi liggur af heiðinni niður í Arnarfjörð við Dynjandisfoss. Skrifað var undir samning um verkið í mars á þessu ári. Verktaki sem mun vinna verkið er Borgarverk ehf. Áætluð verklok eru í lok september 2026. Í 1. áfanga verksins var byggður upp 7,7 km kafli við Þverdalsá og einnig um 4,3 km kafli fyrir Meðalnes. Þær framkvæmdir stóðu yfir frá 2020–2022. Þá bættist einnig við um 650 m kafli á Bíldudalsvegi. Auk þess var um 1 km kafli frá Pennu niður að Flókalundi lagfærður. Í 2. áfanga verksins fólst nýbygging Vestfjarðavegar á um 12,6 km löngum kafla. Sú framkvæmd náði frá Norðdalsá, norðan Bíldudalsgatnamóta, og lá um hæsta hluta Dynjandisheiðar og norður fyrir sýslumörk. Verklok 2. áfanga voru árið 2024.

Hringvegur (1) um Kjalarnes: Framkvæmdum við 1. áfanga Kjalarness lauk árið 2023. Vinna við undirbúning 2. áfanga er í gangi og stefnt að því að bjóða þann hluta út þegar fyrir liggur samþykki um það í nýrri samgönguáætlun. Verktími er áætlaður um 3 ár frá samningsundirritun við verktaka. Hringvegur (1), hringtorg við Lónsveg: Stór öryggisaðgerð við innkomu inn á Akureyri og tenging við ört vaxandi hverfi í Hörgársveit. Verkið hófst um miðjan apríl og lýkur í október 2025. Þetta er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, sveitarfélagsins Hörgársveitar og Norðurorku hf. Verkið felur í sér gerð hringtorgs við Lónsbakka, vegtenginga og stíga. Einnig gerð á nýju ræsi fyrir Lónsá sem og lagning hitaveitulagna. Verklok eru áætluð 1. nóvember 2025.

Norðausturvegur (85) um Brekknaheiði, Langanesvegur-Vatnadalur: Nýbygging á vegi yfir Brekknaheiði, um 1 km af veginum verður í núverandi vegstæði en heildarlengd kaflans er 7,6 km, frá Langanesvegi og að Vatnadal á Brekknaheiði. Áætluð verklok eru ágúst 2027.

Hringvegur um Hornafjörð: Nýbygging á 19,1 km kafla Hringvegar, 9,0 km nýrra hliðarvega auk smíði fjögurra tvíbreiðra brúa (samtals 468 m) og hringtorg við vegtengingar til Hafnar og Nesjahverfis. Verklok eru áætluð í desember 2025. Með framkvæmdinni fækkar einbreiðum brúm á Hringvegi um þrjár.

Hringvegur (1) um Ölfusá: Verkið snýst um færslu Hringvegar (1) út fyrir þéttbýlið á Selfossi. Helstu verkþættir eru nýbygging 3,7 km Hringvegar, bygging nýrrar 330 m langrar stagbrúar yfir Ölfusá og um 1 km af öðrum tveggja akreina vegum. Gerð verða ný vegamót við Hringveg austan Selfoss, undirgöng undir Hringveg fyrir gangandi, hjólandi og hestamenn ásamt undirgöngum fyrir bíla og gangandi. Auk umferðar mun brúin bera uppi lagnir veituaðila, rafmagn, ljósleiðara, heitt vatn og kalt. Samið var um verkið í nóvember 2024. Verklok eru áætluð í október 2028.

Reykjanesbraut (41) Krýsuvíkurvegur-Hvassahraun: Breikkun Reykjanesbrautar frá Krýsuvíkurvegi að enda fjögurra akreina brautarinnar á Hrauni vestan Straumsvíkur. Lengd vegkaflans er um 5,6 km og er þetta eini kaflinn á Reykjanesbraut, frá Ásbraut í Hafnarfirði að Njarðvík, sem ekki hefur verið breikkaður. Góður gangur er í framkvæmdunum. Gert var ráð fyrir að framkvæmdum lyki um mitt ár 2026 en líkur eru á að hægt verði að klára fyrr.

Vestfjarðavegur (60), Fjarðarhornsá og Skálmardalsá: Smíði tveggja steinsteyptra eftirspenntra 34 m plötubrúa yfir Fjarðarhornsá og Skálmardalsá, ásamt vegagerð við hvora brú fyrir sig, samtals um 1,8 km. Brýrnar eru beggja vegna við Klettsháls. Brúin yfir Fjarðarhornsá var kláruð í fyrra en unnið er að byggingu brúar yfir Skálmardalsá. Verklok eru áætluð í desember 2025.

Arnarnesvegur (411)-framkvæmd á höfuðborgarsvæðinu.

Göngu- og hjólabrú á Sæbrautframkvæmd á höfuðborgarsvæðinu.

Fossvogsbrú, landfyllingar og sjóvarnir-framkvæmd á höfuðborgarsvæðinu.

Stærstu tengivegaverkefnin:

Hagabraut (286), Landvegur-Reiðholt: Styrking, breikkun og klæðing á 7,5 km kafla Hagabrautar í Rangárþingi ytra, frá Landvegi að Reiðholti. Núverandi vegur er 5-6 m breiður malarvegur sem verður breikkaður í 6,5 m með 6,3 m breiðri klæðingu og 2×10 cm malaröxlum. Verkinu skal lokið í ágúst 2026.

Örlygshafnarvegur (612) Hvalsker-Sauðlauksdalur og Hvallátrar: Nýbygging og endurbætur á tveimur hlutum Örlygshafnarvegar (612). Annars vegar er um að ræða endurbætur á hluta Örlygshafnarvegar (612-03/04) um Hvallátra. Lengd útboðskafla er um 1,9 km veghluti. Verkið felst í nýbyggingu vegarins, lagfæringu hans og frágangi með bundnu slitlagi með áherslu á að auka umferðaröryggi. Hins vegar er um að ræða endurbætur á hluta Örlygshafnarvegar (612) Hvalsker – Sauðlauksdalur. Lengd útboðskafla er um 4,0 km. Verkið felst í endurnýjun vegarins, lagfæringu hans og frágangi með bundnu slitlagi. Verkinu skal lokið í ágúst 2026.

Grafningsvegur efri (360), ÍrafossGrafningsvegur neðri: Uppbygging, breikkun og klæðing Grafningsvegar efri (360), frá norðurenda brúar við Írafossvirkjun að vegamótum Grafningsvegar neðri. Heildarlengd útboðskaflans er 1,33 km. Verki skal lokið í ágúst 2025.

Steinadalsvegur (690), Vestfjarðavegur-Ólafsdalur: Endurbygging á um 6,6 km kafla á Steinadalsvegi í Dalabyggð. Um er að ræða endurbætur á núverandi vegi ásamt vegtengingum og frágangi. Verkinu skal lokið í ágúst 2026.

Hafnarhólmavegur (947), Ölduhamar-Höfn: Endurbygging Hafnarhólmavegar (947), á um 1,2 km kafla frá Ölduhamri að Höfn. Um er að ræða endurbyggingu núverandi vegar á öllum vegarkaflanum. Gerðar eru lagfæringar á plan- og hæðarlegu vegarins. Lögð verður klæðing á endurbyggðan veg. Framkvæmdir hófust í lok árs 2024 og verkinu skal lokið í júlí 2025.

Jökuldalsvegur (923), Arnórsstaðir-Langagerði: Endurbygging Jökuldalsvegar (923) á um 4,6 km kafla frá Arnórsstöðum að Langagerði. Um er að ræða endurbyggingu núverandi vegar á öllum vegkaflanum. Gerðar eru lagfæringar á plan- og hæðarlegu vegarins á köflum. Framkvæmdir hófust sumarið 2024 og verkinu skal lokið í júlí 2025.

Vatnsdalsvegur (722), Hringvegur-Kornsá: Verkið felst í um 13 km endurbyggingu á Vatnsdalsvegi (722) frá vestari gatnamótum Hringvegar að Kornsá. Vegurinn er allur endurbyggður í núverandi vegstæði, gerðar lagfæringar á hæðarlegu og blindhæðir fjarlægðar, lítils háttar lagfæringar verða á planlegu. Vegurinn verður styrktur til að mæta aukinni umferð og breikkaður. Búast má við umtalsverðu raski þar sem farg verður á veginum. Áætluð verklok eru haustið 2027.

Vatnsnesvegur (711), Kárastaðir-Skarð: Verkið felst í endurbyggingu Vatnsnesvegar (711) á um 7,1 km löngum kafla frá núverandi slitlagsyfirborði og norður fyrir Krossavallalæk. Núverandi vegur er um 4,5 – 5,5 m breiður malarvegur og verður hann breikkaður í 6,0 m breiða akbraut með bundnu slitlagi með 0,5 m breiðum öxlum. Áætluð verklok eru lok júní á þessu ári.

Viðhaldsverkefni, styrkingar og endurbætur:

Snæfellsnesvegur (54) vestan við Grundarfjörð, styrking og klæðing: Þurrfræsing, festun burðarlags með sementi, útlögn burðarlagsefnis og tvöföldun klæðingu á völdum kafla á Snæfellsnesvegi, vestan við Grundarfjörð. Verklok eru 1. ágúst 2025.

Eyrarbakkavegur (34), StekkarTjarnarbyggð, styrking og malbik 2025: Styrking og malbikun á 1,7 km kafla á Eyrarbakkavegi, frá Stekkum að Tjarnarbyggð. Verkið felst í að fræsa upp núverandi slitlagi á vegunum, jafna því út og breikka veg lítils háttar og keyra að jafnaði 15 cm þykku burðarlagi yfir og leggja malbik. Einnig skal verktaki sjá um að fræsa hvinrendur í miðju. Verklok eru 25. ágúst 2025.

Þorlákshafnarvegur (38), Eyrarbakkavegur-Suðurstrandarvegur, styrking og malbik 2025: Styrking og malbikun á 3 km kafla á Þorlákshafnarvegi (38) frá Eyrarbakkavegi að Suðurstrandarvegi. Verki skal að fullu lokið 1. ágúst 2025.

Nesvegur (425), Hafnir-Hafnarsandur, styrking og breikkun: Styrking, breikkun og klæðing Nesvegar (425), frá Höfnum að Hafnarsandi. Heildarlengd útboðskaflans er um 4,9 km.

Hringvegur á Skeiðarár- og Breiðamerkursandi, styrking og breikkun og klæðing 2025: Fræsing, styrking, breikkun og klæðing Hringvegar á Skeiðarársandi (2,2 km kafli) og Breiðamerkursandi (2,0 km kafli). Áætluð verklok eru 1. september 2025.

Hvammstangavegur (72), sementsfestun: Um er að ræða fræsun og lagfæringar á hæðarlegu vegarins ásamt því að burðarlag verður styrkt með sementi. Heildarlengd 5 km. Verklok eru sumarið 2025.

Endurnýjun brúa:

Snorrastaðavegur (5610), brú á Kaldá við Eldborg: Hönnun, framleiðsla/smíði og uppsetning nýrrar 33,2 m langrar forsmíðaðrar yfirbyggingar á brú yfir Kaldá við Snorrastaði á Snorrastaðavegi. Yfirbyggingin skal forsmíðuð og hífast, í einu lagi eða einingum, á fyrirliggjandi brúarstólpa og festast/ tengjast þeim. Yfirbygging brúar skiptist í 3,0 m breiða akbraut og 1,5 m breiða gönguleið auk bríka beggja vegna fyrir H2-vegrið. Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1. október 2025.

Helgustaðavegur (954), ræsi/ stokk í Helgustaðaá: Stefnt er að því að rífa illa farna brú yfir Helgustaðaá og setja niður ræsi/stokk og færa vegstæði rétt ofan núverandi brúar

Skylt efni: Vegagerðin

Bændur harka af sér
Fréttir 16. júlí 2025

Bændur harka af sér

Ný rannsókn bendir til þess að fólk sem starfar í landbúnaði sé ólíklegt til að ...

Getur leyst plast af hólmi
Fréttir 16. júlí 2025

Getur leyst plast af hólmi

Frumkvöðlafyrirtækið Marea Iceland hyggst setja á markað umhverfisvænt húðunaref...

Auglýsingar um sveppadropa og -duft ámælisverðar
Fréttir 16. júlí 2025

Auglýsingar um sveppadropa og -duft ámælisverðar

Verslunin Hugur Studio, sem rekin er af Hemmet ehf., hefur verið kærð fyrir afdr...

Átak um öryggi barna í sundi
Fréttir 16. júlí 2025

Átak um öryggi barna í sundi

Rauði krossinn á Íslandi hefur hleypt af stokkunum fræðslu- og forvarnarátaki um...

Pöddur í hundamat
Fréttir 15. júlí 2025

Pöddur í hundamat

Fyrirtæki hafa sett á markað hundamat úr skordýrum. Slíkt fæði hefur minna kolef...

Orkuskipti í Flatey
Fréttir 15. júlí 2025

Orkuskipti í Flatey

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og Elías Jónatans...

Landeldi við Hauganes
Fréttir 15. júlí 2025

Landeldi við Hauganes

Laxós ehf. áformar uppbyggingu og rekstur fiskeldisstöðvar norðan Hauganess, þar...

Endurskoðuð landsáætlun um útrýmingu á riðu
Fréttir 14. júlí 2025

Endurskoðuð landsáætlun um útrýmingu á riðu

Landsáætlun stjórnvalda og bænda um útrýmingu á sauðfjárriðu var nýlega endurútg...