Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 ára.
Rúmum 70 milljónum króna úthlutað til verkefna á landsbyggðinni
Fréttir 10. apríl 2019

Rúmum 70 milljónum króna úthlutað til verkefna á landsbyggðinni

Höfundur: Vilmundur Hansen

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur úthlutað styrkjum að upphæð 71,5 milljónum króna til sjö verkefna á vegum sex landshlutasamtaka sveitarfélaga.

Styrkjunum er ætlað að efla byggðir landsins og er úthlutað til sértækra verkefna á sóknaráætlunarsvæðum fyrir árið 2019 í samræmi við stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2018-2024 (aðgerð C1). Alls bárust 19 umsóknir um styrki að fjárhæð rúmar 278 m.kr. fyrir árið 2019.

Þriggja manna valnefnd fór yfir umsóknir og gerði tillögur til ráðherra. Byggðastofnun annast umsýslu verkefnastyrkjanna. Verkefnin níu sem hljóta styrk árið 2019 eru:

• Gestastofa Snæfellsness. Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi fær styrk til að efla Gestastofu Snæfellsness. Gestastofan gegnir lykilhlutverki við eflingu ferðaþjónustu á sunnanverðu nesinu. Þar verður miðlað upplýsingum og þekkingu um svæðið til ferðamanna. Styrkurinn nýtist til endurbóta á húsnæði og lagfæringa á umhverfi þess. Verkefnið er styrkt um 10.000.000 kr. á árinu 2019, en hlaut 15 m.kr. styrk úr sama sjóði árið 2018.

• Þekkingarsetur í Skaftárhreppi. Samtök sunnlenskra sveitarfélaga fá styrk til að undirbúa hönnun á þekkingarsetri á heimavist Kirkjubæjarskóla. Breyta á heimavistarálmu, ljúka hönnun og gera útboðsgögn fyrir nýbyggingu Erróseturs. Verkefnið er styrkt um 17.500.000 kr. á árinu 2019 og um 25.000.000 kr. árlega árin 2020-2021, samtals kr. 67.500.000 kr.

• Sköpunarmiðstöðin á Stöðvarfirði. Samtök sveitarfélaga á Austurlandi hljóta styrk fyrir tilraunaverkefni um byggðaþróun á sviði menningar, menntunar og atvinnusköpunar. Ráðast þarf í endurbætur á húsnæðinu Sköpunarmiðstöðvarinnar og nýtist styrkurinn til þessa þáttar. Verkefnið er styrkt um 17.500.000 kr. á árinu 2019 og 20.000.000 kr. árlega árin 2020-2021, samtals kr. 57.500.000 kr. Verkefnið hlaut 5 m.kr. styrk úr sama sjóði árið 2018.

• Orkuskipti og bætt orkunýting í Grímsey. Eyþing hlýtur styrk til að skoða fýsileika orkuskipta fyrir Grímsey. Markmiðið er að hætta brennslu jarðefnaeldneytis í Grímsey, framleiða rafmagn og hita með lífdísli, vind- og sólarorku. Verkefnið er styrkt um 5.200.000 kr. á árinu 2019.

• Strandakjarni – undirbúningur og verkefnisstjórn. Fjórðungssamband Vestfirðinga hlýtur styrk til að undirbúa þjónustumiðstöðvarinnar Strandakjarna er hugsuð fyrir fjölbreytta starfsemi undir sama þaki. Markmið verkefnisins er að standa undir þjónustu við íbúa með rekstri verslunar og annarri grunnþjónustu. Verkefnið er styrkt um 4.300.000 kr. á árinu 2019.

• Vestfirðir á krossgötum – uppbygging innviða og atvinnulífs. Fjórðungssamband Vestfirðinga hlýtur styrk til að taka saman gögn til að byggja á ákvarðanatöku og stefnumótun varðandi þær breytingar sem framundan eru vegna samgöngubóta og breytinga í atvinnulífi, t.d. fiskeldi. Gera á viðhorfskönnun og greiningu á samfélagslegum áhrifum samgöngubóta og á áhrifum fiskeldis.  Verkefnið er styrkt um 12.000.000 kr. á árinu 2019.

• Hitaveituvæðing Óslandshlíðar, Viðvíkursveitar og Hjaltadals. Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hlýtur styrk til að leggja stofnlögn hitaveitu og tengja borholu í Fljótum. Þannig verður miðsvæði Skagafjarðar tengt hitaveitu árið 2021, en það er eina svæðið í sveitarfélaginu sem ekki hefur hitaveitu. Verkefnið er styrkt um 5.000.000 kr. á árinu 2019.

Í valnefndinni sátu þau Elín Gróa Karlsdóttir, verkefnisstjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Magnús Karel Hannesson, fv. starfsmaður Sambands íslenskra sveitarfélaga og Stefanía Traustadóttir, sérfræðingur í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, sem var formaður. Með valnefnd störfuðu Jóhanna Sigurjónsdóttir, sérfræðingur í ráðuneytinu og Sigríður K. Þorgrímsdóttir sérfræðingur hjá Byggðastofnun. Skipun valnefndar og mat umsókna voru í samræmi við reglur um úthlutun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra á framlögum sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2018-2024.

Alls hafa 363,5 m.kr. verið ráðstafað til verkefnanna fyrir árin 2018-2021 en markmiðið með framlögunum er að tengja sóknaráætlanir landshluta við byggðaáætlun og færa heimafólki aukna ábyrgð á ráðstöfun fjármuna. Áhersla er lögð á að styrkja svæði þar sem er langvarandi fólksfækkun, atvinnuleysi og einhæft atvinnulíf. Verkefni sem hljóta styrk skulu nýtast einstökum svæðum eða byggðarlögum innan landshlutans, eða landshlutanum í heild. Íbúaþróun, samsetning atvinnulífs og atvinnustig og meðaltekjur var meðal þess sem lagt til grundvallar við mat á umsóknum.

Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...