Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
Persónulegar göngu- og kanóferðir undir Eyjafjöllum
Mynd / Aðsend
Fréttir 17. ágúst 2020

Persónulegar göngu- og kanóferðir undir Eyjafjöllum

Höfundur: Ritstjórn
Parið Birta Guðmundsdóttir og Tor Holmgren opnuðu í vor ferðaþjónustuna Outdoor Activity í kringum göngu- og kanó­­ferðir undir Eyja­fjöllum. Hugmynd að rekstrinum fæddist þegar þau komust yfir kanóa sem geymdir höfðu verið í fjárhúsum í nágrenninu. Kanóarnir höfðu legið þar lítið notaðir í talsverðan tíma og þeim fannst tilvalið að nýta þá í eitthvað uppbyggilegt og spennandi. Út frá þessari hugmynd ákváðu þau svo að nýta þekkingu sína á svæðinu og bættu við gönguferðum í sínu nærumhverfi og fjöllunum sem þau þekkja svo vel.
 
Birta Guðmundsdóttir og Tor Holmgren, eigendur Outdoor Activity.
 
Tor kemur frá Svíþjóð, nánar tiltekið Helsingborg, og er mikill útivistarmaður sem hefur ferðast vítt og breitt um heiminn. Tor kom fyrst til Íslands árið 2016 og líkaði svo vel að hann kom til baka árið eftir og hóf þá störf í Skálakoti þar sem hann sá aðallega um hestaleiguna til að byrja með. Birta er hins vegar Eyfellingur í húð og hár, alin upp í Skálakoti undir Eyjafjöllum þar sem foreldrar hennar reka ferðaþjónustu. Hún er búfræðingur að mennt, en hún ákvað að námi loknu að snúa aftur í heimahagana í Skálakoti þar sem hún kynntist svo Tor. Tor hafði talsverða reynslu af bæði kanóum og kajaksiglingu frá heimalandinu þar sem fjölskyldan hans átti sumarhús við sjóinn og fór reglulega á sjókajak saman.
 
Upplifun fyrir hvern og einn
 
Með þessa reynslu í farteskinu, þekkingu og kunnáttu á svæðinu um kring og löngun til að prófa eitthvað nýtt og spennandi saman, varð á endanum úr ferðaþjónustufyrirtækið Outdoor Activity. Samkvæmt Tor fer eftirspurnin stöðugt vaxandi og hann horfir björtum augum til framtíðar. Á heimasíðu Outdoor Activity, á slóðinni myoutdooractivity.com, er hægt að finna góðar upplýsingar um hvers konar ferðir þau bjóða upp á. Lögð er áhersla á persónulega þjónustu og að búa til einstaka og eftirminnilega upplifun fyrir hvern og einn, að sögn Birtu og Tors.