Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 10 ára.
Sigurður Ingi Jóhannsson landbúnaðarráðherra var vígalegur með klippurnar þegar hann klippti á borðann og vígði þar með formlega nýju réttirnar að viðstöddu fjölmenni.
Sigurður Ingi Jóhannsson landbúnaðarráðherra var vígalegur með klippurnar þegar hann klippti á borðann og vígði þar með formlega nýju réttirnar að viðstöddu fjölmenni.
Mynd / MHH
Líf og starf 3. júlí 2014

Nýjar Tungnaréttir vígðar

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson

Í febrúar 2012 stofnuðu heima­menn í Biskupstungum félagið Vini Tungnarétta gagngert til að endurbyggja réttirnar í uppruna­legri mynd. Stofnfélagar voru um 100 talsins. Á stofnfundinum kom strax í ljós að mikill áhuga var fyrir verkefninu og fjöldi stofnfélaga fór fram úr björtustu vonum. Rúmlega tveimur árum síðar, eða laugardaginn 21. júní 2014 fór fram vígsla á nýjum og glæsilegum réttum með borðaklippingu Sigurðar Inga Jóhannssonar landbúnaðarráðherra.

Fyrsta embættisverk nýs oddvita

„Það var mér afskaplega mikil ánægja að vera í Tungnaréttum þennan laugardag og taka formlega við réttunum frá Vinum Tungnarétta en þetta var fyrsta embættisverk mitt, sem nýkjörinn oddviti Bláskógabyggðar,“ segir Helgi Kjartansson, oddviti Bláskógabyggðar, þegar hann var spurður út í vígsluna. Frá gamalli tíð stóðu Tungnaréttir á bakka Tungufljóts í landi Holtakota, rétt ofan við Koðralæk. Þær voru hlaðnar úr hraungrjóti eins og algengast var á þeim tíma. Árið 1955 var ráðist í að endurnýja réttirnar og þá voru þær færðar niður með fljótinu og reistar við fossinn Faxa eða á þeim stað þar sem þær eru núna. Á næsta ári verður haldið upp á 60 ára afmæli réttanna.

Vinir Tungnarétta og sjálfboðavinnan

Vinir Tungnarétta er hópur fólks úr Biskupstungum og víðar, sem hefur endurgert réttirnar á síðustu tveimur árum, allt unnið í sjálfboðavinnu. Stjórn félagsskaparins hélt vel utan um allar þær vinnustundir sem unnar hafa verið í sjálfboðavinnu en þær eru samtals 2.750 klst. Þá hefur mikil vélavinna verið gefin og samkvæmt bókhaldi félagsins voru þær samtals 627 klst. Efni hefur verið gefið af einstaklingum og fyrirtækjum fyrir tæpar þrjár milljónir. Einnig hafa einstaklingar gefið fjármuni beint til félagsins. „Ég er mjög ánægður með enduruppbyggingu réttanna og þá miklu vinnu, sem fólk hefur lagt á sig, það er stórkostlega að finna samtakamáttinn í sveitinni og langt fyrir utan hana, nú á Bláskógabyggð réttirnar og mun sjá um þær um ókomna tíð,“ segir Brynjar Sigurðsson, formaður Vina Tungnarétta og bóndi á Heiði.

5 myndir:

Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...