Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Runólfur Sigursveinsson og Anton Örn Brynjarsson handsala samstarfssamning AVH og RML.
Runólfur Sigursveinsson og Anton Örn Brynjarsson handsala samstarfssamning AVH og RML.
Á faglegum nótum 3. nóvember 2017

Norska leiðin og samstarf milli RML og AVH

Höfundur: Sigtryggur Veigar Herbertsson ráðunautur í bútækni og aðbúnaði sigtryggur@rml.is
Undanfarin misseri hafa verið miklar framkvæmdir hjá bændum sem miða að því að auka dýravelferð. Ráðgjafar­miðstöð landbúnaðarins hefur komið að því að ráðgefa og aðstoða bændur í nýbyggingum og breytingum á mismikinn hátt frá stofnun fyrirtækisins árið 2013.  
 
Sú ráðgjöf hefur falist í rekstrarráðgjöf, kostnaðar­útreikningum, innra skipulagi húsnæðis og möguleikum varðandi breytingar á gömlum húsum. Frá því að RML var stofnað 2013 hefur bútækniráðgjöf til bænda verið takmörkunum háð varðandi skil á teikningum til yfirvalda.  
 
Samstarf við arkitekta- og verkfræðistofuna AVH ehf
 
RML hefur verið að leita að heppilegum samstarfsaðila varðandi það að koma ráðgjöfinni í þann farveg að hægt sé að bjóða bændum þjónustu frá hugmynd að fullbyggðu gripahúsi. RML hefur hingað til vantað samstarf við  teiknistofu með skrifstofur nálægt viðskiptavinum sunnan og norðan heiða.  
 
Náðst hafa samningar við AVH sem er fyrirtæki sem getur skilað öllum tilskildum teikningum til yfirvalda. Ætlunin er að teikningarnar verði unnar í grunninn af RML en kláraðar af AVH í fullu samráði við bútækniráðgjafa RML, varðandi aðbúnað og vinnuumhverfi, sem ætti að minnka hönnunarkostnað. 
 
AVH ehf er alhliða teiknistofa sem sér um arkitekta-, burðarþols- og lagnateikningar og hönnun fyrir allar stærðir af mannvirkjum. AVH ehf. hefur sérhæft og reynslumikið starfsfólk með áratuga langa reynslu í öllu sem við kemur mannvirkjagerð.  AVH ehf. hefur hannað fjölmargar byggingar síðastliðin 40 ár. Fyrirtækið var formlega stofnað árið 1974 og hét þá Teiknistofa Hauks Haraldssonar sf., en var breytt í AVH arkitektúr – verkfræði – hönnun árið 2003. Hverjum bónda verður að sjálfsögðu áfram frjálst að velja aðrar leiðir varðandi fullvinnslu sinna teikninga kjósi hann svo.
 
Norska leiðin
 
Einnig hefur náðst samkomulag við Norsk Landbruksrådgivning (NLR sem er í eigu norskra bænda, á svipaðan hátt og RML er í eigu íslenskra bænda) um að þeir komi að mótun og aðstoði RML við að útfæra ráðgjöf til bænda í byggingarhugleiðingum að norskri fyrirmynd. 
 
Hjá NLR er mikið lagt upp úr því að grunnvinnan sé góð áður en farið er í framkvæmdir, og með útboðum og hlutlausri ráðgjöf nái sölumennskan (söluráðgjöf) ekki völdum í ákvarðanatöku og vali á byggingarhlutum og búnaði.
 
Í dag, með samvinnu við AVH, erum við hjá RML með flesta þá þætti sem þurfa að vera til staðar til að hægt sé að fylgja verkefnum alla leið og með því að nýta okkur reynslu Norðmanna getur RML fylgt  bónda betur í gegnum ferlið frá hugmynd að gripahúsi og í leiðinni stuðlað að öflugri samkeppni á markaðnum.
 
NLR mun senda sérfræðing í húsnæði fyrir nautauppeldi og holdakýr til Íslands í lok nóvember eða byrjun og er ætlunin að ferðast með hann um landið eins og áhugi er til.  
 
Samvinna RML og Norsk Landbruksrådgivning
 
NLR mun senda sérfræðing í húsnæði fyrir nautauppeldi og holdakýr til Íslands 27.–30. nóvember og er ætlunin að ferðast með hann um landið eins og áhugi er til. Eru áhugasamir sem vilja koma á fræðslufund með honum vinsamlegast beðnir um að senda tölvupóst á sigtryggur@rml.is, engin binding felst í því að hafa samband.
 
Mynd 1 Skema fyrir hugmynd að útihúsi.
Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...