Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 ára.
Stefán Tryggvason hjá Hotel Natur ásamt þeim Hjalta Páli Þórarinssyni og Halldóri Óla Kjartanssyni, starfsmönnum Markaðsskrifstofunnar, og Unni Valborgu Hilmarsdóttur, stjórnarformanni Markaðsskrifstofunnar, við afhendingu viðurkenninga fyrir fyrirtæki ár
Stefán Tryggvason hjá Hotel Natur ásamt þeim Hjalta Páli Þórarinssyni og Halldóri Óla Kjartanssyni, starfsmönnum Markaðsskrifstofunnar, og Unni Valborgu Hilmarsdóttur, stjórnarformanni Markaðsskrifstofunnar, við afhendingu viðurkenninga fyrir fyrirtæki ár
Fréttir 12. nóvember 2018

Natur, Laugarbakki og Svanhildur hlutu viðurkenningar

Höfundur: Margrét Þóra Þórsdóttir
Uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar á Norðurlandi fór nýverið fram  í Húnaþingi vestra. 
 
Húnvetningar tóku vel á móti kollegum sínum í ferðaþjónustu og farið var í heimsóknir til ýmissa fyrirtækja á svæðinu og nýr útsýnispallur við Kolugljúfur var sömuleiðis skoðaður. Um kvöldið var svo haldin vegleg veisla í veislusalnum á Hótel Laugarbakka, þar sem dansinn dunaði fram eftir nóttu. Venju samkvæmt voru þrjár viðurkenningar veittar, Sproti ársins, Fyrirtæki ársins og viðurkenning fyrir störf í þágu ferðaþjónustunnar.
 
Hotel Natur er Fyrirtæki ársins
 
Viðurkenningin Fyrirtæki ársins er veitt fyrirtæki sem er búið að slíta barnsskónum og hefur skapað sér sterka stöðu á markaði. Fyrirtækið hefur unnið að stöðugri uppbyggingu, vöruþróun og nýsköpun og er með höfuðstöðvar á Norðurlandi. Í ár féll viðurkenningin í skaut félaginu Hotel Natur sem þau Stefán Tryggvason og Inga Margrét Árnadóttir reka á Svalbarðsströnd.
 
Þau höfðu um árabil rekið kúabú en fóru í kringum árið 2004 að hugleiða að hætta þeim búskap og snúa sér að ferðamennsku. Árið 2005 höfðu þau gert breytingar á fjósinu og hlöðu, og opnuðu þar 10 herbergja hótel. Árin á eftir fylgdu fleiri breytingar og herbergin eru nú 36 talsins.
 
Hotel Natur er sannkallað fjölskyldufyrirtæki, þar sem foreldrarnir hafa séð um að stýra skútunni en börnin koma að daglegum rekstri og þá sérstaklega yfir sumartímann. Mikil áhersla hefur verið lögð á umhverfismál og endurnýtingu. Engar nýjar byggingar hafa verið byggðar heldur þeim gömlu breytt og nýjasta dæmið um það er útsýnispallurinn í súrheysturninum. Sumir myndu reyndar segja að Stefán hefði ákveðið blæti fyrir turnum, enda var hann ekki lengi að tryggja sér glerturnana sem áður hýstu keiluhöllina á Akureyri þegar hún var rifin niður. 
 
Hótel Laugarbakki er Sproti ársins
 
Viðurkenningin Sproti ársins er veitt ungu fyrirtæki sem hefur skapað eftirtektarverða nýjung í ferðaþjónustu á Norðurlandi. Það fyrirtæki sem fær verðlaunin í ár er Hótel Laugarbakki.
 
Það er ekkert lítið verkefni sem þau Hildur Ýr og Örn réðust í þegar þau ákváðu að breyta gamla héraðsskólanum á Laugarbakka í heilsárshótel. Vel tókst til með breytingar. Hótelið er hið stærsta á Norðurlandi vestra og með opnun þess opnuðust nýir möguleikar bæði fyrir ferðafólk og þá sem starfa í ferðaþjónustu í nágrenninu. Mikilvægt þykir fyrir fjórðunginn að hafa þennan valmöguleika í gistingu á svæðinu og skemmir ekki fyrir hve auðvelt er að halda alls kyns viðburði og ráðstefnu á hótelinu. Veitingastaðurinn Bakki setur svo punktinn yfir i-ið.
 
Svanhildur og störf í þágu ferðaþjónustu á Norðurlandi
 
Viðurkenninguna fyrir Störf í þágu ferðaþjónustu á Norðurlandi fær einstaklingur sem hefur haft góð áhrif á ferðaþjónustu á Norðurlandi í heild sinni og hefur starfað beint eða óbeint fyrir ferðaþjónustu á svæðinu. Í ár var það Skagfirðingurinn Svanhildur Pálsdóttir sem hlaut þá  viðurkenningu.
 
Svanhildur hefur starfað í ferðaþjónustu í meira en áratug, en hún ásamt öðrum keypti Hótel Varmahlíð árið 2006 og gerðist hótelstjóri eftir að hafa starfað sem kennari. Svanhildur hefur um árin sinnt samstarfi ferðaþjónustuaðila vel og var lengi í stjórn Markaðsstofu Norðurlands, þar af formaður í nokkur ár. Auk þess var hún ein af stofnendum Félags ferðaþjónustunnar í Skagafirði og gegndi einnig formennsku þar til langs tíma. Auk þess hefur hún setið í stjórnum Ferðamálasamtaka Íslands og Ferðamálasamtaka Norðurlands vestra.
 
Hótel Varmahlíð var selt til nýrra eigenda í fyrra og nú er veruleiki Svanhildar ekki bundinn við raunheima, því hún hóf nýlega störf hjá 1238 Battle of Iceland á Sauðárkróki. Sýndarveruleiki er þar nýttur til þess að leyfa gestum að upplifa Örlygsstaðabardaga og það er því ljóst að ferðaþjónusta í Skagafirði og á Norðurlandi öllu mun áfram njóta góðs af reynslu og kröftum Svanhildar.

7 myndir:

Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...