Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Mitsubishi – japanska kastaníutréð
Á faglegum nótum 1. ágúst 2017

Mitsubishi – japanska kastaníutréð

Höfundur: Hörður Kristjánsson
Mitsubishi Agricultural Machinery Co., Ltd. (MAM) var stofnað sem deild í Mitsubishi Group árið 1980. Það er með höfuðstöðvar í Higashiizumo, Shimane í Japan.
 
Grunnurinn að fyrirtækinu var Mitsubishi zaibatsu  sem stofnað var 1870 og starfaði til 1947 þegar því var lokað við hernám Japans. Upphaflega var fyrirtækið stofnað sem skipafélag af stofnandanum Yatarō Iwasaki.  
 
Kastaníutréð
 
Nafn fyrir­tækisins er samsett úr tveim orðum „mitsu“, sem merkir tré og „hishi“ sem seinna breyttist í „bishi“ og merkir vatna-­kastanía. Þannig mætti alveg útleggja nafnið á íslensku sem kastaníutré. 
 Fyrirtækið komst aftur á skrið með sitt fræga merki eftir seinna stríð og framleiðir dótturfélagið Mitsubishi Agricultural Machinery Co. dráttarvélar og ýmiss konar uppskerutæki og tól til jarðvinnslu. 
Mitsubishi Agricultural Machinery Co. varð til við samruna Mitsubishi Machinery Co., Ltd. og japanska landbúnaðarvélafyrirtækisins Satoh (Agricultural Machinery Mfg. Co., Ltd.) sem stofnað var  í júní árið 1914.
 
Kemur víða við
 
Mitsubishi Group kemur hins vegar víðar við í sinni iðnaðarframleiðslu og eru margar aflvélar raforkuvera á Íslandi t.d. smíðaðar þar. Má þar t.d. nefna vélar í Reykjanesvirkjun. Þá framleiðir þessi iðnaðarrisi líka bíla eins og Íslendingar þekkja vel, einnig þotur og rekur stærsta bankann í Japan (The Bank of Tokyo-Mitsubishi UFJ), svo eitthvað sé nefnt. 
 
Seldar í Bandaríkjunum og Bretlandi
 
Hið sameinaða fyrirtæki framleiddi m.a. dráttarvélar fyrir Ameríkumarkað og hafa þær verið seldar í gegnum indverska stórfyrirtækið Mahindra Group. Þá hafa dráttarvélar fyrirtækisins einnig verið seldar í Bretlandi undir Mitsubishi-nafninu. Í Japan hafa vélar fyrirtækisins líka verið seldar undir nöfnunum Kumiai, Suzue og Zen-Noh, sem eru allt nöfn í eigu samvinnufélaga bænda.  
 
Framleiddar víða með og án leyfis
 
Mitsubishi er með samstarfs­samning um framleiðslu á sínum dráttarvélum við LS Tractors í Suður-Kóreu sem er deild í LS Cable. Einnig er samningur við VST Tillers í Indlandi, en Mitsubishi Heavy Industries á jafnframt 3% í því félagi. Nákvæmlega eins vélar hafa verið framleiddar undir nafninu Shenniu í Kína, en eitthvað er óljóst með hvort það fyrirtæki er með framleiðsluleyfi eða hefur einfaldlega smíðað nákvæmar eftirlíkingar af Mitsubishi-traktorum.
 
Að 33% hluta í eigu Mahindra & Mahindra
 
Þegar mikið endurskipu­lagningar­ferli hófst hjá Mitsubishi 2013 var nafnið ASUMA (Agri SUpport Machinery) yfirtekið. Árið 2015 var svo 33,33% hlutur seldur indverska stórfyrirtækinu Mahindra & Mahindra. Mitsubishi Agricultural Machinery Co. er því nú að stærstum hluta í eigu Mitsubishi Group og Mahindra & Mahindra.
Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...